Gummi Gumm og Haukur fögnuðu sigri í einvígum Íslendingaliða Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. október 2024 18:27 Haukur Þrastarson er að komast í sitt besta form sem eru frábærar fréttir. Vísir/Vilhelm Tvö einvígi milli Íslendingaliða fóru fram í Meistaradeild Evrópu í handbolta í kvöld og fögnuðu rúmenska félagið Dinamo Búkarest og danska félagið Fredericia sigri í þessum leikjum.
Guðmundur Guðmundsson stýrði liði Fredericia til síns fyrsta sigurs í Meistaradeildinni í vetur og í sögu félagsins þegar liðið vann þriggja marka sigur á pólska félaginu Wisla Plock, 28-25. Fredericia hafði tapað fimm fyrstu Meistaradeildarleikjum tímabilsins. Liðið er hins vegar komið á gott skrið eftir krefjandi byrjun á leiktíðinni. Einar Þorsteinn Ólafsson og Arnór Viðarsson komust ekki á blað hjá Fredericia en Viktor Gísli Hallgrímsson stóð í marki Wisla Plock. Viktor varði níu skot í leiknum eða 25 prósent skota sem á hann komu. Einar var tvisvar rekinn útaf í tvær mínútur. Orri Freyr Þorkelsson skoraði sex mörk fyrir Sporting og var markahæstur í liðinu en það dugði ekki til sigur á móti Hauki Þrastarsyni og félögum í Dinamo Búkarest. Dinamo vann leikinn með fjórum mörkum, 33-29, eftir að hafa verið tveimur mörkum undir í hálfleik, 13-15. Haukur skoraði fmm mörk í leiknum og gaf líka þrjár stoðsendingar. Dinamo vann þrjá fyrstu leiki sína í Meistaradeildinni en hafði síðan tapað tveimur leikjum í röð. Þeir enduðu hins vegar taphrinuna með góðum sigri. Þetta var fyrsta tap Sporting í Meistaradeildinni í vetur en liðið hafði fyrir leikinn náði í níu stig af tíu mögulegum. Orri Freyr nýtti 6 af 9 skotum sínum en hann klikkaði á tveimur vítaskotum í leiknum.
Meistaradeild Evrópu í handbolta karla Mest lesið „Ég er rasisti og ég gerði þetta viljandi“ Sport Infantino hættir við allt saman Fótbolti „Ég mun að minnsta kosti sofa vel í nótt“ Fótbolti Uppgjörið: ÍBV - Fram 1-2 | Framarar unnu Þjóðhátíðarleikinn Íslenski boltinn „Þetta er mikið áfall fyrir okkur“ Íslenski boltinn JP Morgan veldur fjaðrafoki í annað sinn Fótbolti Konurnar fyrsta fórnarlambið eftir útspil Infantino Fótbolti Ný heimildarmynd um banaslys Ólympíumeistarans Sport Sagði nei við Love Island og vann svo silfur á Samveldisleikunum Sport Vinícius á förum? Fótbolti Fleiri fréttir Strákarnir áfram með fullt hús Ungverjagrýlan hrjáir ekki U18 lið Íslands Yngsti Skipagötu-bróðirinn skoraði þrettán mörk í fyrsta leik á EM Fjórtán marka stórsigur í fyrsta leik Var sagt upp á stórafmælinu og er haldinn út í heim Besti handboltamaður heims fór í markið Hafnaði mörgum góðum tilboðum og fór frekar heim „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Sjá meira