Rangar fullyrðingar forstjóra Landsvirkjunar – kafli 1 Haraldur Þór Jónsson skrifar 5. september 2024 08:33 Í Speglinum á Rás 2 í gær, miðvikudaginn 4. september, var rætt við forstjóra Landsvirkjunar. Viðtalið var rúmar 7 mínútur og átti ég í fullu fangi við að punkta niður allar þær röngu fullyrðingar sem forstjórinn hélt fram. Satt best að segja trúði ég ekki mínum eigin eyrum hvað var hægt að koma fyrir mörgum staðreyndavillum á framfæri á jafn stuttum tíma! Ég sé mig því tilneyddan að leiðrétta allar rangfærslurnar, en sökum hversu margar þær voru þá mun ég birta leiðréttingarnar í nokkrum köflum á næstu dögum. Í byrjun vill ég samt taka undir orð forstjórans, að okkar samskipti hafa ávallt verið góð og má segja að við séum fastir í hjónabandi, þ.e.a.s.. sveitarfélagið og Landsvirkjun. Við komumst ekki hjá því að eiga samskipti um ókomna tíð, svo mikill kostur er að geta haft þau samskipti góð. Vandamálið sem við báðir erum að kljást við er lagaumgjörð sem gerir þetta órjúfanlega hjónaband frekar erfitt síðustu misserin. Ábyrgðin á þeirri lagaumgjörð liggur hjá núverandi ríkisstjórn. En víkjum okkur að staðreyndavillunum. Ábyrgð forstjóra Landsvirkjunar er að reka orkufyrirtæki þjóðarinnar á meðan ábyrgð mín sem oddviti Skeiða- og Gnúpverjahrepps er að bera ábyrgð á samfélagi sem er í nærumhverfi virkjana sem Landsvirkjun starfhæfir. Forstjóri Landvirkjunar talar um að valdi fylgir ábyrgð og sveitarfélagið sé að misbeita því valdi. Þar greinir okkur á, því sveitarfélagið hefur samkvæmt sveitarstjórnarlögum helstu skyldur sínar gagnvar íbúum nærsamfélagsins. Það ríkir á því lagaleg óvissa um hvort okkur sé yfir höfuð heimilt að halda áfram í óbreyttri mynd sökum núverandi lagaumgjarðar. Samkvæmt fjárhagslegri greiningu sem KPMG gerði fyrir Landsvirkjun þar sem greind voru fjárhagsleg áhrif Landsvirkjunar á Skeiða- og Gnúpverjahrepp kom fram að starfsemi Landsvirkjunar leiðir í flestum tilfellum til fjárhagslegs tjóns á rekstur Skeiða- og Gnúpverjahrepps. Einnig hefur komið fram eftir samskipti og minnisblöð sveitarfélagsins við Innviðaráðuneytið á árinu 2023 að mesti áhættuþáttur í rekstri sveitarfélagsins séu núverandi virkjanir sem Landsvirkjun starfrækir í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Slík staða er ekki forstjóra Landsvirkjunar að kenna heldur núverandi lagaumgjarðar sem ríkisstjórn Íslands ber ábyrgð á. Samkvæmt sveitarstjórnarlögum bera sveitarfélög lagalega skyldu til að tryggja að sveitarfélagið hafi fjárhagslega getu til að standa við skuldbindingar sínar. Hluti að því er að heimila ekki framkvæmdir sem geta valdið sveitarfélaginu fjárhagslegu tjóni, sem núverandi lagaumgjörð getur gert. Forstjóri Landsvirkjunar fullyrðir að vindorkuverið Búrfellslundur eigi eftir að hafa jákvæð áhrif á samfélagið. Nú verð ég að staldra við og hvetja forstjórann til að lesa umhverfismatsskýrsluna sem Landsvirkjun framkvæmdi. Í skýrslunni eru margar blaðsíður um neikvæð umhverfisáhrif framkvæmdirnar. Ef umhverfisáhrifin eru svona gríðarlega jákvæð, af hverju er þá ekki verið að keppast við að skipuleggja vindorkuver þar sem orkan er notuð, í nágrenni t.d. höfuðborgarsvæðisins. Af hverju þarf að fara með vindorkuverið uppá Hálendi Íslands, tugum og hundruðum kílómetrum frá þeim stað sem nota á orkuna. Ég vil nota þetta tækifæri til að skora á forstjóra Landsvirkjunar að birta opinberlega rökstuðning fyrir máli sínu og samhliða birta öll neikvæðu áhrifin sem koma fram í umhverfismatsskýrslunni sem framkvæmd var árið 2016 um Búrfellslund. Almenningur getur þá vegið og metið hvort þau rök haldi sem forstjórinn fullyrði að séu svona jákvæð við vindorkuverið. Forstjórinn talar um að Búrfellslundur hafi farið í gegnum 10 ára ferli rammaáætlunar sem sé flókið og umsvifamikið samráðsferli. Það ferli endi með ákvörðun Alþingis og Alþingi setji virkjanakostinn í nýtingarflokk með lagasetningu. Þá skulum við rifja upp hvernig þetta ferli var allt saman. Búrfellslundur kom til umfjöllunar Verkefnastjórnunar rammaáætlunar árið 2015 sem vindorkuver með 200MW uppsett afl. Niðurstaða Verkefnastjórnunar var versta mögulega útkoma gagnvart ferðaþjónustu og útivist og lagði verkefnastjórnin til að Búrfellslundur yrði settur í biðflokk. Aftur kom Búrfellslundur inn í umfjöllun Verkefnastjórnunar rammaáætlunar árið 2020, en nú var búið að minnka hann niður í 120MW uppsett afl. Þrátt fyrir minnkunina, þá var niðurstaða Verkefnastjórnunar rammaáætlunar enn verri gagnvart ferðaþjónustu og útivist sökum þess að atvinnugreinin ferðaþjónusta hafði meira en tvöfaldast af stærð á þessum 5 árum. Verkefnastjórnin lagði því til að Búrfellslundur yrði settur í biðflokk aftur. Í júní árið 2022 tók svo Alþingi ákvörðun, gegn ráðleggingu Verkefnastjórnunar rammaáætlunar og setti Búrfellslund í nýtingarflokk. Það var ekki af því að það var búið að vinna þetta svona faglega, heldur pólitísk ákvörðun sem var ekki í samræmi við faglegu vinnu Verkefnastjórnunarinnar. Í 7. gr. laga um rammaáætlun hafa sveitarfélög heimild til að fresta því að setja virkjanakost í skipulag sitt. Til þess að nýja þá heimild, þarf að tilkynna Skipulagsstofnun um þá frestun innan eins árs frá því að Alþingi setur virkjanakost í nýtingarflokk. Það gerði sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps í júní 2023 og frá þeim tímapunkti skal samkvæmt lögum um rammaáætlun fara með virkjanakostinn eins og hann sé í biðflokki. Það þýðir að stjórnvöldum er ekki heimilt að veita leyfi fyrir virkjanakostinum. Frá þeim tímapunkti hefur Landsvirkjun ekki átt nein samskipti við Skeiða- og Gnúpverjahrepp um Búrfellslund heldur freistað þess að sækja aðeins um hjá Rangárþingi Ytra að koma virkjuninni í skipulag. Í umhverfismatinu sem Landsvirkjun vann og áliti Skipulagsstofnunar kemur skýrt fram af framkvæmdasvæði og áhrifasvæði Búrfellslundar er í Skeiða- og Gnúpverjahreppi og Rangárþingi Ytra. Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps hefur því í öllum tilfellum farið að núgildandi lögum á meðan Landsvirkjun hefur reynt að sneiða fram hjá löggjöfinni. Nú liggur fyrir að Skeiða- og Gnúpverjahreppur mun kæra útgefið virkjunarleyfi Orkustofnunar. Verði niðurstaða Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála að vera sammála sveitarfélaginu og fellir virkjunarleyfið úr gildi er ljóst að Búrfellslundur verður ekki byggður, að minnsta kosti ekki næstu 10 árin. Ætlar forstjóri Landsvirkjunar þá að axla ábyrgð á mistökum Landsvirkjunar ? Ég spyr hversu mörgum milljörðum er búið að eyða í undirbúning Búrfellslundar án þess að tryggja það að öll leyfi fáist ? Hvers vegna hefur Landsvirkjun ekki sótt um að setja Búrfellslund í skipulag hjá Skeiða- og Gnúpverjahreppi ? Ætlar Landsvirkjun að halda áfram undirbúningi Búrfellslundar áður en Úrskurðarnefndin kveður upp úrskurð sinn ? Gaman væri að fá svör við þessum spurningum. Það eru fjölmörg atriði eftir sem þarf að leiðrétta og mun ég birta kafla nr. 2 á morgun. Höfundur er oddviti í Skeiða- og Gnúpverjahreppi þar sem mest raforka hefur verið framleidd í sögu Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Skeiða- og Gnúpverjahreppur Orkumál Landsvirkjun Haraldur Þór Jónsson Vindorkuver í Búrfellslundi Mest lesið Er ég eins og ég er? - Svar við pistli heilbrigðisráðherra Eldur Smári Kristinsson Skoðun Opið bréf til utanríkisráðherra og alþingismanna: Farbann á hermenn sem taka þátt í þjóðarmorði Helen Ólafsdóttir Skoðun Raddir, sýnir og aðrar óhefðbundnar skynjanir Svava Arnardóttir Skoðun Erfðir og endurframleiðsla félagslegra vandamála milli kynslóða Halldóra Lillý Jóhannsdóttir Skoðun Óvelkomnar alls staðar Kristín Davíðsdóttir Skoðun Ég er eins og ég er – um heilbrigðisþjónustu við trans fólk Alma D. Möller Skoðun Halldór 13.09.2025 Halldór Eftir höfðinu dansa limirnir Hallfríður Þórarinsdóttir Skoðun Furðuleg meðvirkni með fúskurum Jón Kaldal Skoðun Sýklasótt – tími og þekking skiptir máli Alma Möller Skoðun Skoðun Skoðun Erfðir og endurframleiðsla félagslegra vandamála milli kynslóða Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Opið bréf til utanríkisráðherra og alþingismanna: Farbann á hermenn sem taka þátt í þjóðarmorði Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Raddir, sýnir og aðrar óhefðbundnar skynjanir Svava Arnardóttir skrifar Skoðun Er ég eins og ég er? - Svar við pistli heilbrigðisráðherra Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eftir höfðinu dansa limirnir Hallfríður Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Sýklasótt – tími og þekking skiptir máli Alma Möller skrifar Skoðun Frá upplausn til uppbyggingar Þór Pálsson skrifar Skoðun Hagsmunir sveitanna í vasa heildsala Anton Guðmundsson skrifar Skoðun Verið að vinna sér í haginn Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Ég er eins og ég er – um heilbrigðisþjónustu við trans fólk Alma D. Möller skrifar Skoðun Óvelkomnar alls staðar Kristín Davíðsdóttir skrifar Skoðun Samstillt átak um öryggi Íslands Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir,Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Við elskum pizzur Herdís Magna Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Grafið undan grunnstoð samfélagsins skrifar Skoðun Fjölbreytt líf í sjónum Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir,Jóhanna Malen Skúladóttir,Laura Sólveig Lefort Scheefer skrifar Skoðun Hæfniviðmið eða tölulegar einkunnir, hvað segir okkur meira um nám? Bryngeir Valdimarsson skrifar Skoðun Gætum eggja og forðumst náttúruleysi! Pétur Heimisson skrifar Skoðun Hraðara regluverk fyrir ómissandi innviði! Sólrún Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Lesblinda og skólahald á Norðurlöndunum Snævar Ívarsson skrifar Skoðun Heimspeki og hugmyndaheimur Kína Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Furðuleg meðvirkni með fúskurum Jón Kaldal skrifar Skoðun Þegar viska breytist í vopn Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Þingmálaskrá og fjárlagafrumvarp 2026: „Tiltekt“ á kostnað lífskjara Svandís Svavarsdóttir,Guðmundur Ingi Guðbrandsson skrifar Skoðun Verndum líffræðilega fjölbreytni í hafi! Laura Sólveig Lefort Scheefer,Valgerður Árnadóttir,Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar Skoðun Jafnréttisstofa í 25 ár: Er þetta ekki komið? Martha Lilja Olsen skrifar Skoðun Hvar er textinn? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Berklar, Krakk og Rough Sleep Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Blóðugar afleiðingar lyga Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Hinsegin samfélagið á heimili í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Áhrif Vesturlanda og vöxtur Kína Jón Sigurgeirsson skrifar Sjá meira
Opið bréf til utanríkisráðherra og alþingismanna: Farbann á hermenn sem taka þátt í þjóðarmorði Helen Ólafsdóttir Skoðun
Erfðir og endurframleiðsla félagslegra vandamála milli kynslóða Halldóra Lillý Jóhannsdóttir Skoðun
Skoðun Erfðir og endurframleiðsla félagslegra vandamála milli kynslóða Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Opið bréf til utanríkisráðherra og alþingismanna: Farbann á hermenn sem taka þátt í þjóðarmorði Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Samstillt átak um öryggi Íslands Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir,Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir skrifar
Skoðun Fjölbreytt líf í sjónum Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir,Jóhanna Malen Skúladóttir,Laura Sólveig Lefort Scheefer skrifar
Skoðun Hæfniviðmið eða tölulegar einkunnir, hvað segir okkur meira um nám? Bryngeir Valdimarsson skrifar
Skoðun Þingmálaskrá og fjárlagafrumvarp 2026: „Tiltekt“ á kostnað lífskjara Svandís Svavarsdóttir,Guðmundur Ingi Guðbrandsson skrifar
Skoðun Verndum líffræðilega fjölbreytni í hafi! Laura Sólveig Lefort Scheefer,Valgerður Árnadóttir,Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar
Opið bréf til utanríkisráðherra og alþingismanna: Farbann á hermenn sem taka þátt í þjóðarmorði Helen Ólafsdóttir Skoðun
Erfðir og endurframleiðsla félagslegra vandamála milli kynslóða Halldóra Lillý Jóhannsdóttir Skoðun