Líkur á aurskriðum og grjóthruni á Vesturlandi Jón Þór Stefánsson skrifar 13. júlí 2024 08:40 Viðvaranakort Veðurstofu Íslands Líkur eru á aurskriðum og grjóthruni á Vesturlandi vegna mikillar rigningar. Það verður til þess að aðstæður fyrir ferðamenn og útivistarfólk eru varasamar.
Þetta kemur fram á vef Veðurstofunnar, en þar er jafnframt bent á að veðurviðvaranir séu í gildi í tveimur landshlutum, á Faxaflóa og í Breiðafirði. Báðar viðvaranir tóku gildi skömmu fyrir átta í morgun og standa yfir til miðnættis í kvöld. „Ár og lækir munu vaxa mikið og geta orðið erfiðar yfirferðar, en einnig aukast líkur á aurskriðum og grjóthruni. Fólk er því hvatt til að forðast varasöm vöð og brattar fjallshlíðar,“ segir um veðrið í þessum tveimur landshlutum. Í textaspá veðurfræðings segir að útlit sé fyrir talsvert betra veðri fyrir austan. „Á austanverðu landinu er hins vegar útlit fyrir einmuna blíðu, fremur hægur vindur og léttskýjað og hiti gæti komist í 25 stig þar sem best lætur.” Veðurhorfur á landinu næstu daga Á mánudag: Norðaustlæg eða breytileg átt 3-10 m/s. Víða bjartviðri, en dálítil væta vestast framan af degi og sums staðar þokuloft við ströndina. Hiti 12 til 22 stig, hlýjast inn til landsins. Á þriðjudag: Austlæg eða breytileg átt 5-13. Skýjað og sums staðar dálítil væta, en lengst af þurrt og bjart á Norðurlandi. Hiti 8 til 20 stig, hlýjast í innsveitum norðanlands. Á miðvikudag: Norðaustlæg eða breytileg átt. Skýjað að mestu og dálítil rigning eða súld í flestum landshlutum. Hiti 8 til 17 stig, mildast suðvestantil. Á fimmtudag og föstudag: Breytileg átt og dálítil væta með köflum. Hiti 9 til 17 stig, svalast við norðurströndina.
Veður Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent Fleiri fréttir Veðrið ætti ekki að spilla hrekkjavöku eins og í fyrra Blautur dagur í flestum landshlutum Lægðin fyrr á ferðinni Norðan kaldi og snjókoma til fjalla Lægðardrag á leiðinni Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Krapi og hálkublettir víða Skafið og saltað Engar viðvaranir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Sjá meira