Þykknar upp síðdegis og hvessir í nótt Atli Ísleifsson skrifar 23. maí 2024 07:14 Hiti á landinu verður á bilinu tíu til tuttugu stig um helgina og hlýjast á Norðausturlandi. Vísir/Vilhelm Veðurstofan gerir ráð fyrir suðlægri átt í dag, fimm til tíu metrum á sekúndu en hvessa þegar líður á daginn.
Á vef Veðurstofunnar segir að það gangi í suðaustan átta til þrettán metra á sekúndu seinnipartinn um landið sunnan- og vestanvert með súld eða rigningu. Hiti verður á bilinu fimm til þrettán stig og verður hlýjast á Austurlandi. „Hvessir í nótt, suðaustan 13-20 og rigning á morgun en hægari og úrkomuminna austanlands. Hiti 9 til 15 stig yfir daginn,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Um helgina segir að það verði áframhaldandi suðaustanátt, rigning eða súld með köflum sunnanlands en bjart að mestu fyrir norðan. Hiti verður á bilinu tíu til tuttugu stig og hlýjast á Norðausturlandi. Eftir helgi er útlit fyrir breytilegar áttir. Dálítil væta í fleirum landshlutum og frekar milt í veðri. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á föstudag: Vaxandi suðaustanátt, 13-20 m/s eftir hádegi, hvassast í vindstrengjum við fjöll á vestanverðu landinu. Víða rigning eða súld, en hægari vindur og þurrt að kalla norðaustan- og austanlands. Hiti 8 til 16 stig, hlýjast norðaustantil. Á laugardag og sunnudag: Suðaustan 5-13. Bjartviðri norðantil á landinu. Skýjað annars staðar og dálítil væta um landið suðaustanvert. Hiti 10 til 20 stig, hlýjast á Norðausturlandi. Á mánudag: Breytileg átt. Skýjað að mestu og dálítil væta af og til í flestum landshlutum. Hiti 7 til 15 stig, svalast við austurströndina. Á þriðjudag: Norðlæg eða breytileg átt og lítilsháttar væta en bjart með köflum sunnanlands. Hiti 5 til 12 stig, svalast við norðurströndina. Á miðvikudag: Útlit fyrir norðaustlæga átt. Dálítil væta í flestum landshlutum en lengst af þurrt suðvestantil. Hiti breytist lítið.
Veður Mest lesið Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Innlent Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Innlent Fleiri fréttir Gefa út gular veðurviðvaranir Tvær lægðir á leiðinni Veðrið ætti ekki að spilla hrekkjavöku eins og í fyrra Blautur dagur í flestum landshlutum Lægðin fyrr á ferðinni Norðan kaldi og snjókoma til fjalla Lægðardrag á leiðinni Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Krapi og hálkublettir víða Skafið og saltað Engar viðvaranir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Sjá meira