Meira en áratugur síðan KR byrjaði mótið á tveimur sigurleikjum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. apríl 2024 14:30 KR-ingar fagna fyrra marki Atla Sigurjónssonar í 4-3 sigrinum á Fylki í fyrstu umferðinni. Vísir/Anton Brink Gregg Ryder getur í kvöld tekist það sem engum þjálfara hjá KR hefur tekist undanfarin ellefu ár. KR vann 4-3 sigur á Fylki í fyrstu umferð Bestu deildar karla eftir að hafa komist í 4-1 í leiknum. Í kvöld heimsækir liðið Stjörnuna í Garðabæinn en Stjörnumenn eru stigalausir eftir tap á móti Íslandsmeisturum Víkings í fyrstu umferðinni. KR á möguleika á því að vera með fullt hús, sex stig, eftir tvo fyrstu leiki sína. Það hefur ekki gerst síðan sumarið 2013 þegar KR-liðið vann fjóra fyrstu leiki sína. Þá var KR-liðið undir stjórn Rúnars Kristinssonar og liðið fagnaði einnig Íslandsmeistaratitlinum um haustið. Þegar Rúnar gerði KR síðast að Íslandsmeisturum sumarið 2019 þá náði liðið í fjögur stig í fyrstu tveimur umferðunum. KR-ingar náðu einnig fjórum stigum í fyrstu tveimur leikjunum í fyrra sem var þá fyrsta tímabilið í fjögur ár þar sem liðið fór taplaust í gegnum fyrstu tvær umferðirnar. Leikur Stjörnunnar og KR hefst klukkan 19.15 og verður hann sýndur beint á Stöð 2 Sport. Upphitun hefst klukkan 19.00.
KR vann 4-3 sigur á Fylki í fyrstu umferð Bestu deildar karla eftir að hafa komist í 4-1 í leiknum. Í kvöld heimsækir liðið Stjörnuna í Garðabæinn en Stjörnumenn eru stigalausir eftir tap á móti Íslandsmeisturum Víkings í fyrstu umferðinni. KR á möguleika á því að vera með fullt hús, sex stig, eftir tvo fyrstu leiki sína. Það hefur ekki gerst síðan sumarið 2013 þegar KR-liðið vann fjóra fyrstu leiki sína. Þá var KR-liðið undir stjórn Rúnars Kristinssonar og liðið fagnaði einnig Íslandsmeistaratitlinum um haustið. Þegar Rúnar gerði KR síðast að Íslandsmeisturum sumarið 2019 þá náði liðið í fjögur stig í fyrstu tveimur umferðunum. KR-ingar náðu einnig fjórum stigum í fyrstu tveimur leikjunum í fyrra sem var þá fyrsta tímabilið í fjögur ár þar sem liðið fór taplaust í gegnum fyrstu tvær umferðirnar. Leikur Stjörnunnar og KR hefst klukkan 19.15 og verður hann sýndur beint á Stöð 2 Sport. Upphitun hefst klukkan 19.00. Sigurleikir og stig KR í fyrstu tveimur umferðum: 2023: 1 sigur, 4 stig (Markatala:3-1) 2022: 1 sigur, 3 stig (4-2) 2021: 1 sigur, 3 stig (3-3) 2020: 1 sigur, 3 stig (1-3) 2019: 1 sigur, 4 stig (4-1) 2018: 1 sigur, 3 stig (4-4) 2017: 1 sigur, 3 stig (3-3) 2016: 0 sigrar, 2 stig (2-2) 2015: 0 sigrar, 1 stig (3-5) 2014: 1 sigur, 3 stig (3-3) 2013: 2 sigar, 6 stig ( 4-1)
Sigurleikir og stig KR í fyrstu tveimur umferðum: 2023: 1 sigur, 4 stig (Markatala:3-1) 2022: 1 sigur, 3 stig (4-2) 2021: 1 sigur, 3 stig (3-3) 2020: 1 sigur, 3 stig (1-3) 2019: 1 sigur, 4 stig (4-1) 2018: 1 sigur, 3 stig (4-4) 2017: 1 sigur, 3 stig (3-3) 2016: 0 sigrar, 2 stig (2-2) 2015: 0 sigrar, 1 stig (3-5) 2014: 1 sigur, 3 stig (3-3) 2013: 2 sigar, 6 stig ( 4-1)
Besta deild karla KR Stjarnan Tölfræði Bestu deilda Mest lesið Biður Dag afsökunar Handbolti Leynast öflugar íslenskar skyttur einhvers staðar? Handbolti Gísli Þorgeir og Viktor Gísli á toppnum en Óðinn í öðru sæti Handbolti Sjáðu sturlað mark Solanke og ótrúlegar lokamínútur á Old Trafford Enski boltinn Gísli Þorgeir og allir hinir verðlaunastrákar sögunnar Handbolti Með fleiri mörk með langskotum en Ísland og samt með sex færri leiki spilaða Handbolti „Fáránlegt ef við ætlum að fara breyta til“ Handbolti Bónus frá ríkinu, bannaða bandið og aftur hátíð fyrir Dag og hans menn Handbolti Ákváðu að spila þrátt fyrir banaslys á leið á mótið og unnu síðan mótið Sport Segja að bestu árin hjá þessum hóp séu fram undan Handbolti Fleiri fréttir Meistararnir fá liðsstyrk af Akranesi „Búið að vera smá erfitt fyrir hausinn en svona gerist“ Bragi Karl stimplaði sig inn með marki í fyrsta leik Íslandsmeistararnir byrja vel og KR sótti sigur á Akureyri Valur er Reykjavíkurmeistari árið 2026 Davíð Smári sækir fleiri leikmenn úr bikarævintýrinu Varafyrirliða FH sagt að finna sér nýtt félag Berglind Björg ólétt Fram fær liðsstyrk úr Mosó og markvörðurinn framlengir Heiðdís leggur skóna á hilluna Víkingur og Þróttur mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins Elísa fer frá Val til Breiðabliks Oliver hættur í fótbolta vegna meiðsla Rugluðust á nafni nýja leikmannsins Sigurður Bjartur á leið til Spánar? Stjarnan selur Adolf Daða til FH Þór/KA fær þrjá leikmenn frá Stólunum á fimm leikmanna degi Fyrirliði FHL er mættur í Laugardalinn Telma eltir þjálfarann í Garðabæinn Hringdu dag og nótt til að klófesta Guðmund: „Konan var að verða geðveik á þeim“ Bryndís Arna er komin heim og samdi við Breiðablik Gummi Tóta orðinn leikmaður ÍA Þróttur skellti KR í Reykjavíkurmótinu KR fær tvo unga Ganverja Breytingar hjá Breiðabliki „Á eftir bolta kemur barn“ Viðar Örn leitaði sér aðstoðar við áfengis- og spilafíkn Trúin eykst á Suðurnesjum með komu McLaughlin Blikar farnir að fylla í skörðin Víkingur og Breiðablik mætast í fyrsta leik Bestu deildarinnar Sjá meira