Gular viðvaranir og versnandi akstursskilyrði Eiður Þór Árnason skrifar 31. mars 2024 08:07 Vorið er ekki farið að minna á sig í öllum landshlutum. vísir/vilhelm Spáð er nokkuð hvassri norðan- og norðaustanátt í dag, víða 13 til 20 metrum á sekúndu og snjókomu eða él, einkum á Norður- og Austurlandi þar sem gul viðvörun verður í gildi. Þurrt að kalla sunnan heiða og bjart veður fram eftir degi, en lítilsháttar snjókoma þar í kvöld. Frost 0 til 6 stig, en frostlaust yfir daginn syðst.
Norðaustan 10 til 18 metrar á sekúndu og él á morgun, en léttskýjað sunnan- og suðvestanlands. Hiti breytist lítið. Hægari vindur og bjart veður á þriðjudag, en dálítil él austast. Gul viðvörun vegna norðaustan hríðar gildir á Norðurlandi eystra, Ströndum og Norðurlandi vestra og Austurlandi að Glettingi í allan dag frá klukkan 8 um morgun og fram yfir miðnætti. Þá tekur gul viðvörun gildi á Austfjörðum klukkan 16. Búast má við 13 til 20 metrum á sekúndu, talsverðri snjókomu með skafrenningi, lélegu skyggni og versnandi akstursskilyrðum. Nokkuð er um ófærð á vegum nú í morgunsárið og er til að mynda Víkurskarð, Öxnadalsheiði, Þverárfjall, Vopnafjarðarheiði og Fjarðarheiði lokuð samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni en staðan verður endurmetin þegar líður á daginn. Veðurviðvaranir hafa verið gefnar út á Norður- og Austurlandi.Veðurstofa Íslands Veðurhorfur á landinu næstu daga Á mánudag: Norðaustan 8-15 m/s og él norðan- og austanlands, en léttskýjað suðvestantil. Frost 0 til 7 stig. Á þriðjudag: Minnkandi norðaustanátt og bjart að mestu, en skýjað á Norðaustur- og Austurlandi og dálítil él framan af degi. Frost 0 til 7 stig og kólnar meira um kvöldið. Á miðvikudag: Hæg breytileg átt, bjart veður og kalt en frostlaust syðst yfir hádaginn. Á fimmtudag: Austlæg átt og líkur á slyddu eða snjókomu sunnantil, en þurrt norðan heiða. Frost 0 til 7 stig, en hiti 0 til 5 stig sunnan- og suðvestanlands að deginum. Á föstudag og laugardag: Útlit fyrir norðaustlæga átt með dálitlum éljum á víð og dreif. Hiti breytist lítið.
Veður Mest lesið Fjölskyldufaðir stunginn meðan sonurinn horfði á Innlent Fékk sex milljónum of há laun og neitaði að endurgreiða þau Innlent Þjóðhátíð í Eyjum: Farþegafjöldi í Herjólfi komi á óvart Innlent Vann skemmdir á golfvelli og skildi eftir smokk Innlent „Manneskja sem er komin á þetta plan hlýtur að vera rökþrota“ Innlent Sagði foreldrana líklega hafa dottið í aðdraganda andlátsins Innlent Trump ræsir út kjarnorkukafbáta eftir „ögrandi“ ummæli Rússa Erlent „Ég upplifi þetta sem mikinn yfirgang og ofbeldi“ Innlent Tollar á vörur frá Íslandi verða 15 prósent samkvæmt forsetatilskipun Erlent Búast við þrumuveðri og vatnavöxtum Innlent Fleiri fréttir Varasamar aðstæður fyrir ferðalanga „Eins og að vera úti á rúmsjó“ í Eyjum annað kvöld Spáin versnar á ný og gul viðvörun í Eyjum Rok og rigning sama hvert er litið Allt að nítján stiga hiti á Suðurlandi Lægðardrag yfir vestanverðu landinu en hiti gæti náð 18 stigum Hiti gæti náð tuttugu stigum fyrir austan Spá þoku fyrir norðan og austan Líkur á eldingum norðantil og gasmengun vestantil Reykvíkingar fengu loksins tuttugu gráður Landshitametið ekki fallið en hitamet fallin á ákveðnum stöðvum „Raunhæfur möguleiki“ að hitamet falli á morgun Hiti gæti náð 25 stigum í dag Veðurblíða víða um land Spá hitabylgju í byrjun næstu viku og allt að 29 stigum Hlýnar um helgina Skýjað með skúrum í höfuðborginni Rigning í Reykjavík en hlýtt og gott fyrir austan „Við sáum að veðrið var best fyrir austan þannig við drifum okkur austur“ Hiti nær tuttugu stigum víða á morgun Fínasta veður um land allt Hægviðri, hafgola og hiti að átján stigum Skúrir á víð og dreif Rigning með köflum sunnan- og vestanlands Skúrir víða um land og lægð nálgast Sjá meira