Ómar Ingi sá um Gummersbach | Stiven markahæstur hjá Benfica Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 2. mars 2024 21:36 Ómar Ingi var óstöðvandi í kvöld. Vísir/Getty Images Magdeburg vann Gummersbach með átta marka mun í uppgjöri Íslendingaliðanna í þýska handboltanum. Lokatölur kvöldsins 38-30 Magdeburg í vil. Þá var Stiven Tobar Valencia markahæstur í sigri Benfica.
Lærisveinar Guðjóns Vals Sigurðssonar í Gummersbach hafa komið gríðarlega á óvart það sem af er leiktíð en því miður áttu þeir engin svör við frammistöðu Ómars Inga í kvöld. Á endanum vann Magdeburg átta marka sigur en án Ómars Inga hefði Gummersbach vel getað stolið sigrinum. Ómar Ingi var markahæstur allra á vellinum með 12 mörk ásamt því að gefa 4 stoðsendingar. Janus Daði Smárason skoraði 2 mörk og gaf 2 stoðsendingar og þá skoraði Gísli Þorgeir Kristjánsson einnig 2 mörk ásamt því að gefa staka stoðsendingu. Hjá Gummersbach var Elliði Snær Viðarsson markahæstur með 8 mörk. Arnór Snær Óskarsson átti einnig fantaflottan leik en hann skoraði 5 mörk og gaf staka stoðsendingu. Magdeburg er í 2. sæti með 38 stig, stigi á eftir toppliði Füchse Berlin. Gummersbach er í 7. sæti með 24 stig. Stiven fór á kostum í öruggum sigri Stiven Tobar Valencia átti líklega sinn besta leik í treyju Benfica þegar liðið vann gríðarlega öruggan tíu marka útisigur á Braga/Uminho í efstu deild handboltans í Portúgal. Sigur gestanna í Benfica var aldrei í hættu en þegar flautað var til leiksloka var staðan 28-38. Stiven var markahæstur allra á vellinum með níu mörk. Eftir sigurinn er Benfica í 2. sæti með 52 stig, fimm stigum á eftir nágrönnum sínum í Sporting sem á leik til góða. Orri Freyr Þorkelsson leikur með Sporting.
Handbolti Þýski handboltinn Mest lesið Unnusta leikmanns fyrir aðkasti í verslun eftir leik í Árbæ Íslenski boltinn Tuchel kallaði dómara fyrsta leiks Englendinga „E-flokks-dómara“ Fótbolti Klopp segir þá halda fótboltanum í gíslingu Fótbolti „Skyldan kallar hjá kærastanum“ Fótbolti „Fyrirgefið okkur, vinsamlegast“ Fótbolti Hermaðurinn Haukur í Stólana Körfubolti „Það sem hræðir mann er það sem er mest þess virði að gera“ Sport Sýning Svía og Diallo hetja Fílanna Fótbolti „Með mikið samviskubit gagnvart eiginkonu minni og dóttur“ Fótbolti Ísak Bergmann trúlofaður Fótbolti Fleiri fréttir Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Sjá meira