Búinn að missa af tvö hundruð leikjum með Man. United Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. febrúar 2024 17:30 Luke Shaw hefur verið afar óheppinn með meiðsli sem leikmaður Manchester United. Getty/James Baylis Manchester United óttast það að tímabili sé búið hjá enska varnarmanninum Luke Shaw.
Shaw er enn á ný að glíma við meiðsli og verður nú líklegast frá í að minnsta kosti tvo til þrjá mánuði vegna þeirra. Þeir bjartsýnu sjá hann koma inn undir lok leiktíðar en þeir svartsýnustu sjá hann ekki spila aftur fyrir liðið fyrr en í haust. Shaw byrjaði síðasta leik liðsins á móti Luton Town en fór meiddur af velli fyrir hálfleik. Hann tognaði á vöðva og eftir myndatöku kom í ljós að þessi meiðsli eru af alvarlegri gerðinni. ESPN segir frá og hefur heimildir fyrir því að Shaw spili líklega ekkert meira á tímabilinu. Hinn 28 ára gamli Shaw hefur verið fastamaður í United liðinu þegar hann hefur verið leikfær og oft spilað vel. Reynsla hans og fjölhæfni nýtist liðinu vel. Það er ekki nóg með að Shaw missi mögulega af restinni af tímabilinu þá er ólíklegt að hann verði með enska landsliðinu á EM í sumar. Shaw hefur oft spilað sem miðvörður í miðvarðarhallæri United liðsins en á meiðslalistanum er einnig annar öflugur miðvörður, Lisandro Martínez. Það er líka skortur á vinstri bakvörðum hjá United því Tyrell Malacia er að ná sér af hnémeiðslum og lánssamningur Sergio Reguilón endaði í janúar. Victor Lindelöf og Sofyan Amrabat hafa báðir þurft að spila í vinstri bakvarðarstöðunni í neyð. Shaw hefur aðeins náð að spila fimmtán leiki á þessu tímabili en hann missti einnig þrjá mánuði út frá ágúst til nóvember síðastliðnum. Síðan að Shaw kom til United árið 2014 þá hefur hann misst af tvö hundruð leikjum vegna meiðsla sem er ótrúleg tala.
Enski boltinn Mest lesið De la Fuente: „Við teljum okkur ósigrandi“ Fótbolti Reyndu að brjótast inn í hús Yamals Fótbolti Leikmenn Argentínu með borða eftir leik: „Falklandseyjar eru argentínskar“ Fótbolti Messi allt í öllu þegar Argentína fór í úrslitaleikinn Fótbolti FIFA rukkar tíu þúsund krónur fyrir að mæta á blaðamannafund Fótbolti Brjóta lög fótboltans með sýningunni í hálfleik Fótbolti Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Körfubolti Tvenna Daníels tryggði Víkingi meira en hundrað milljónir Fótbolti „Mig dreymdi þetta“ Fótbolti „Er dómarinn á því getustigi sem þarf í undanúrslitum HM?“ Fótbolti Fleiri fréttir Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Sjá meira