Lægð skilar okkur rigningu eða slydda með köflum Atli Ísleifsson skrifar 2. janúar 2024 06:50 Gera má ráð fyrir að hiti verði á bilinu núll til fimm stig í dag. Vísir/Vilhelm Lægð er nú stödd skammt suðvestur af Reykjanesskaga og mun hún stýra veðrinu á landinu í dag. Lægðin er þó hvorki djúp né kröpp og hljóðar vindaspáin upp á suðaustan og austan fimm til þrettán metra á sekúndu.
Á vef Veðurstofunnar segir að lægðin beini flákum af úrkomu yfir landið og verði því víða rigning eða slydda með köflum, en lítil úrkoma mun ná yfir á Norðurland. Gera má ráð fyrir að hiti verði á bilinu núll til fimm stig. „Á morgun fjarlægist lægðin og gliðnar á milli þrýstilína. Þá er spáð austan 3-10 m/s. Bjartviðri nokkuð víða, en búast má við dálitlum éljum á austanverðu landinu. Það frystir inn til landsins, en allvíða frostlaust við strendur. Að lokum má geta þess að spár gera ráð fyrir að svipað og aðgerðalítið veður haldist áfram til fimmtudags,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á miðvikudag: Austan og norðaustan 3-8 m/s, en 8-13 með suðausturströndinni. Dálitlir skúrir eða él á austanverðu landinu, annnars víða bjartviðri. Hiti kringum frostmark. Á fimmtudag: Norðaustan 5-10. Skýjað með köflum og þurrt að kalla á Suður- og Vesturlandi, en svolítil él austantil landinu. Frost 0 til 8 stig. Á föstudag: Suðlæg átt með slyddu eða snjókomu og hita kringum frostmark, en þurrt veður austanlands með frosti að 7 stigum. Á laugardag: Suðlæg eða breytileg átt og víða þurrt og bjart veður. Frost 0 til 10 stig, mest í innsveitum fyrir norðan. Á sunnudag og mánudag: Útlit fyrir sunnanátt. Skýjað með köflum og þurrt að kalla á Suður- og Vesturlandi, hiti 0 til 5 stig. Léttskýjað norðan- og austanlands og frost 1 til 7 stig.
Veður Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Erlent Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Innlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Erlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent Fleiri fréttir Blautur dagur í flestum landshlutum Lægðin fyrr á ferðinni Norðan kaldi og snjókoma til fjalla Lægðardrag á leiðinni Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Krapi og hálkublettir víða Skafið og saltað Engar viðvaranir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Sjá meira