Víðáttumikil lægð stýrir veðrinu næstu daga Atli Ísleifsson skrifar 25. október 2023 07:11 Búast má við að það verði yfirleitt hægur vindur á landinu en strekkingur syðst. Vísir/Vilhelm Víðáttumikil lægð er nú stödd langt suður af landinu og mun hún stjórna veðrinu á landinu næstu daga.
Í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar segir að það verði austlæg átt, yfirleitt hægur vindur en strekkingur syðst. Á Suðaustur- og Austurlandi þykknar upp með lítilsháttar rigningu, en í öðrum landshlutum verður yfirleitt þurrt og allvíða má búast við björtum köflum. Suðvestanlands gæti þó orðið vart við einhverja vætu fram eftir morgni. Hiti 2 til 9 stig yfir daginn, mildast sunnantil. Það er litlar breytingar að sjá til morguns, og á föstudag er áfram útlit fyrir svipað veður en þó mun heldur bæta í vind við suðurströndina,“ segir á vef Veðurstofunnar. Hiti verður á bilinu tvö til níu stig í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á fimmtudag: Austan og norðaustan 3-10 m/s, en 10-15 syðst. Bjart með köflum, en lítilsháttar væta á Suðaustur- og Austurlandi. Hiti 2 til 9 stig, mildast suðvestantil. Á föstudag: Austan og norðaustan 5-13, en 13-18 syðst. Dálítil væta suðaustan- og austantil, annars þurrt að kalla. Hiti breytist lítið. Á laugardag (fyrsti vetrardagur): Austan 5-15, hvassast við suðurströndina. Stöku skúrir eða él á Suðaustur- og Austurlandi, en bjart að mestu um landið vestanvert. Hiti 0 til 7 stig yfir daginn. Á sunnudag: Fremur hæg breytileg átt, bjart með köflum og yfirleitt þurrt. Kólnar í veðri. Á mánudag og þriðjudag: Breytileg átt og bjart með köflum, en stöku skúrir eða él við ströndina. Hiti um eða yfir frostmarki að deginum.
Veður Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Fleiri fréttir Blautur dagur í flestum landshlutum Lægðin fyrr á ferðinni Norðan kaldi og snjókoma til fjalla Lægðardrag á leiðinni Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Krapi og hálkublettir víða Skafið og saltað Engar viðvaranir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Sjá meira