Batnandi ástand í Venesúela réttlæti brottvísanir Árni Sæberg skrifar 29. september 2023 15:09 Þorsteinn Gunnarsson er formaður Kærunefndar útlendingamála. Vísir Kærunefnd útlendingamála kvað í vikunni upp þrjá úrskurði þess efnis að Útlendingastofnun hefði verið heimilt að synja umsóknum venesúelskra ríkisborgara um alþjóðlega vernd hér á landi. Kærunefndin vísaði til batnandi ástands í Venesúela.
Óöld hefur litað daglegt líf Venesúelabúa síðustu ár en kúgunartilburðir Nicolasar Maduro forseta og öryggissveita hans hafa leitt til þess að íbúar hafa flúið unnvörpum það ofbeldi og hótanir sem þeir hafa sætt. Sjö milljónir Venesúelabúa eru á flótta samkvæmt opinberum tölum. Yfirgnæfandi meirihluti þeirra hefur flúið til Kólumbíu og annarra landa nærri heimahögunum. Kærunefnd útlendingamála kvað upp úr síðasta sumar um að ríkisborgurum frá Venesúela skyldi veitt hér sérstök viðbótarvernd vegna ástandsins í heimalandinu. Ástandið hefði ekki breyst til hins betra frá því síðast var úrskurðað. Nú virðist sem stefnubreyting hafi orðið í nefndinni. Ástandið batnað Kærunefndin kvað á miðvikudag upp þrjá úrskurði í málum fjögurra einstaklinga sem kært höfðu ákvarðanir Útlendingastofnunar um að synja umsóknum þeirra um alþjóðlega vernd. Í öllum úrskurðunum segir að í nóvember árið 2022 hafi Útlendingastofnun ákveðið að stöðva tímabundið afgreiðslu mála sem vörðuðu umsóknir einstaklinga frá Venesúela um alþjóðlega vernd hér á landi og beðið með að taka ákvarðanir í slíkum málum fram í mars þessa árs. Með ákvörðunum Útlendingastofnunar í málum kærenda, dagsettum þann 31. mars 2023, hafi stofnunin komist að þeirri niðurstöðu að gögn um Venesúela bæru ekki með sér að almennar aðstæður í landinu næðu því alvarleikastigi að þær einar og sér ættu að leiða til þess að allir sem staddir væru í Venesúela ættu á hættu að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð vegna aðstæðna sem stjórnvöld eingöngu eða að mestu leyti hafi valdið. Þá hafi Útlendingastofnun talið gögn benda til þess að efnahags- og mannúðarástand hefði stöðugt batnað í landinu frá árinu 2019. Mat Útlendingastofnunar væri að þrátt fyrir aðgerðir stjórnvalda til að bæla niður andstöðu í landinu næðu þær aðgerðir ekki því alvarleikastigi að þær teldust einar og sér leiða til þess að allir sem staddir væru í Venesúela ættu á hættu að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Gögnin bæru með sér að aðgerðir og athafnir venesúelskra stjórnvalda, sem talist gætu ómannúðleg eða vanvirðandi meðferð, hafi beinst að tilteknum einstaklingum sem álitnir væru andstæðingar stjórnvalda. Þá hafi Útlendingastofnun horft til upplýsinga frá mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna þess efnis að dauðsföllum vegna öryggisaðgerða stjórnvalda og andlátum vegna ofbeldis hefði fækkað verulega, auk þess sem alþjóðlegar skýrslur bæru með sér að hætta á dauðsföllum í öryggisaðgerðum stjórnvalda væri bundin við tengsl eða ætluð tengsl við glæpastarfsemi og að þær öryggisaðgerðir ættu sér aðallega stað í jaðarsettum hverfum þar sem fátækt væri mikil. Þá hafi gögn bent til þess að þrátt fyrir að skort hafi á skilvirkni í réttarvörslukerfi landsins þá veitti lögregla í landinu almenningi aðstoð. Þá bæru gögnin einnig með sér að aðstæður hvers og eins í Venesúela væru breytilegar og bæru ekki með sér að allir íbúar landsins liðu alvarlegan skort sem væri ósamrýmanlegur mannlegri reisn. Það var því mat Útlendingastofnunar í ljósi þess að ástandið í Venesúela færi batnandi ásamt því að stjórnvöld hafi sýnt vilja og getu til að bæta aðstæður einstaklinga þar í landi að aðstæður nú væru ekki þær sömu og voru uppi þegar úrskurður kærunefndar útlendingamála nr. 231/2022 var kveðinn upp í júlí árið 2022. Því þyrfti að meta hverja og eina umsókn út frá einstaklingsbundnum aðstæðum og fyrirliggjandi heimildum. Kærunefndin sammála Í úrskurðum Kærunefndar útlendingamála segir að nú liggi fyrir alþjóðlegar skýrslur sem benda til þess að ástandið í Venesúela hafi breyst til hins betra frá því að leiðbeiningar Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna voru settar fram árið 2019. Í úrskurðum varðandi tvo kærendur, sem eru samkynhneigðir, segir að þrátt fyrir að kærendur tilheyri minnihlutahópi í heimaríki sem samkynhneigðir einstaklingar sé ekkert í gögnum málsins eða framburði kærenda sem gefi tilefni til að ætla að sérstakar aðstæður þeirra leiði til þess að þeir eigi á hættu að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu snúi þeir til baka. Með vísan til þess taldi nefndin að þeir uppfylltu ekki skilyrði til þess að hljóta alþjóðlega vernd hér á landi. Hvað varðar hina kærendurna tvo segir að heimildir beri ekki með sér að vopnuð átök eða árásir á almenna borgara séu tíðar í heimabæ þeirra. Því verði ekki talið að þeir eigi á hættu að verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum verði þeri sendir aftur til heimaríkis. Því var ekki talið að þeir uppfylltu skilyrðin. Ákvarðanir Útlendingastofnunar voru því staðfestar og kærendum þannig bæði synjað um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi hér á landi. Gæti haft áhrif á gríðarlegan fjölda Í sumar greindi Vísir frá því að á tímabilinu frá og með janúar og til og með júlí hafi Útlendingastofnun borist 2.751 umsókn um vernd. Stærsti hlutinn hafi verið vegna einstaklinga frá Venesúela, 1.208 umsóknir. Af afgreiddum umsóknum Venesúelamanna voru 42 samþykktar en 435 synjað. Því er ljóst að framangreindir úrskurðir geti haft áhrif á mikinn fjölda fólks.
Flóttafólk á Íslandi Stjórnsýsla Mest lesið Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Innlent Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum Innlent „Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ Innlent „Minnstu munaði að þetta yrði hennar hinsta ferð“ Innlent Hafði fé af mótsgesti Innlent Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Innlent Undarlegt mál á Þingvöllum og þýsk öfgaöfl Innlent Slysið austan við Vík var alvarlegt Innlent Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Innlent Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Erlent Fleiri fréttir Mótmæla hvalveiðum Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Bergmál, biðlistar og bongóblíða Hafi ræst úr málum eftir martraðir um 1994 „Minnstu munaði að þetta yrði hennar hinsta ferð“ Þrjár alvarlegar líkamsárásir til rannsóknar: „Puttabrotinn á Sjallanum“ Undarlegt mál á Þingvöllum og þýsk öfgaöfl „Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Hafði fé af mótsgesti HR útskrifaði rúmlega sjö hundruð í dag Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Slysið austan við Vík var alvarlegt Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Aukin hætta á skriðum og grjóthruni Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Til skammar að málið hafi sofnað í meðferð þingsins Fjöldi bíður niðurstöðu og stór stund á Þingvöllum Jensína Edda er Reykvíkingur ársins Sektaður fyrir að aka á göngugötu Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta „Ég hef verið kölluð þingmaður dauðans“ Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Sjá meira