Vilja bæta sig eftir að innra eftirlit virkaði ekki sem skyldi Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 12. september 2023 14:14 Kvíarnar sem laxinn slapp úr eru í sunnanverðum Patreksfirðu, undan Kvígindisdal. Egill Aðalsteinsson Forstjóri Arctic Sea, sem á Arctic Sea Farm, viðurkennir að innra eftirlit fyrirtækisins hafi ekki virkað sem skyldi í ljósi alvarlegs umhverfisslyss sem varð í Patreksfirði í ágúst. Framkvæmdastjóra Landssambands veiðifélaga berast ábendingar um eldislaxa sem veiddir hafa verið í íslenskum ám á hverjum degi en ábendingarnar eru orðnar 106 talsins.
Forstjóri Arctic Sea, sem á Arctic Sea Farm, viðurkennir að innra eftirlit fyrirtækisins hafi ekki virkað sem skildi í ljósi alvarlegs umhverfisslyss sem varð í Patreksfirði í ágúst. Framkvæmdastjóra Landssambands veiðifélaga berast ábendingar um eldislaxa í íslenskum ám á hverjum degi en ábendingarnar eru orðnar 106 talsins. Tvö göt komu í ljós á einni kvínni í Kvígindisdal í Patreksfirði í ágúst en Hafrannsóknarstofnun hefur undanfarnar vikur tekið tugi laxa til erfðagreiningar en þegar hefur hún staðfest að 27 eru eldislaxar. Gunnar Örn Petersen er framkvæmdastjóri Landssambands veiðifélaga. Gunnar Örn Petersen er framkvæmdastjóri Landssambands veiðifélaga. Landssamband veiðifélaga „Við, landeigendur og bændur erum í sjokki yfir stöðunni. Þetta er í rauninni versta áfall sem gengið hefur yfir þennan iðnað. Þau eru nú mörg og af nógu að taka. Það er bara umhverfis-og mengunarslys á verulega stórum skala.“ Gunnar Örn segir að sambandinu berist ábendingar um eldisfiska í íslenskum ám daglega en Hafrannsóknarstofnun hefur biðlað til laxveiðimanna að vera vakandi fyrir mögulegum eldiseinkennum á löxum sem þeir veiða til að hægt sé að kortleggja slysið betur og takmarka skaða. „Í gær voru þetta 90 fiskar og svo skömmu seinna var þetta 106 og við áttum okkur ekki á umfanginu og hvar þetta mun enda. Þetta eru veiddir fiskar, þetta eru ekki bara fiskarnir sem við erum búin að sjá, því það sjást torfur víða sem menn hafa ekki náð til þannig að það eru hundruð ef ekki þúsundir fiska að ganga núna upp í laxveiðiárnar.“ Þannig megi ætla að umfangið sé gríðarlegt og hinir veiddu laxar mögulega aðeins toppurinn á ísjakanum. Gunnar segir alveg ljóst að innra eftirlit sem eldisfyrirtækjunum er gert að viðhafa hafi brugðist. „Það mun hafa eftirmála fyrir stjórnendur þessara fyrirtækja, það eru hreinar línur og fyrir því eru heimildir í lögum. Það er bara svo grátlegt að stjórnvöld hafi látið þetta viðgangast og fyrirtækin hafi fengið að vaða uppi í allan þennan tíma og fúskað þetta eftirlit og fúskað þessi gæði sem eiga að vera að baki iðnaðinum. En það sem við höfum alltaf sagt alveg frá upphafi að þetta er einfaldlega ekki framkvæmanlegt. Það er það sem reynsla nágrannaþjóða sýnir.“ „Þetta er auðvitað slys“ En hinn norski forstjóri Arctic Fish, Stein Ove, var í hádegisfréttum Bylgjunnar spurður hvort hann áttaði sig á alvarleika málsins og að margir Íslendingar lýstu þessu sem alvarlegu umhverfisslysi. „Þetta er auðvitað slys. Nú reynum við hvað við getum til að laga þetta erum í góðu samtali við MAST. Þar stöndum við í dag. Hvað viðkemur slysinu sjálfu og stærðargráðu þess þá þurfum við að taka mið af sögunni, að okkar mati. Eins og ég sagði þá er þetta eitthvað sem á ekki að geta gerst en þetta gerðist og við munum gera okkar besta til að koma í veg fyrir að svona nokkuð geti komið fyrir aftur. Saga sjókvíaeldis á Vestfjörðum byggir á því að það er takmörkuð hætta á erfðablöndun en einnig á áhættumati frá Hafrannsóknarstofnun sem tekur mið af því að atburðir eins og þessir geti átt sér stað. Þetta módel tekur mið af því að það þurfi tiltölulega háa tölu slysasleppinga til að þetta geti haft áhrif á villta stofna.“ Ove var spurður hvort þeirra innra eftirlit væri nægilega gott í ljósi þess að þeim er gefið rekstrarleyfi á grundvelli þess að viðhafa slíkt. „Okkar eftirlit, teymi og verkferlar eru yfirfarnir af MAST á hverju ári og þar er tekið mið af okkar verkferlum en þegar svona kemur upp á þá geturðu augljóslega sagt að verkferlarnir okkar og fyrirkomulagið sé ekki nægilega gott og það er eitthvað sem við vinnum nú hörðum höndum að við að bæta. Það er okkar aðalmarkmið.“ En hvað viltu segja við alla þá laxveiðimenn og landeigendur sem eru algjörlega niðurbrotnir vegna slyssins? „Eins og ég sagði þá er þetta eitthvað sem á ekki að gerast en þetta gerðist og við erum í áframhaldandi samtali við Hafrannsóknarstofnun og Fiskistofu,“ segir Ove sem bætti við að fyrirtækið tæki þátt í að reyna að takmarka skaðann.
Lax Fiskeldi Tengdar fréttir Gera kröfu um að eftirlitið verði í námunda við fiskeldið Andstæðingar sjókvíaeldis hafa ítrekað kröfur sínar um að eldi á laxi í fjörðum landsins verði bannað eftir að staðfest var að 27 eldislaxar, sem fundist hafa í laxveiðiám víða um land að undanförnu, eru úr kvíum Arctic Fish í Patreksfirði. 11. september 2023 22:55 Íslenski laxastofninn deyi út verði ekkert gert Framkvæmdastjóri Verndarsjóðs Villtra Laxastofna segir íslenska laxastofninn deyja út haldi laxeldi áfram í opnum sjókvíum. Í gær var staðfest að eldislax hafi fundist í að minnsta kosti ellefu ám en þeir höfðu sloppið úr sjókví Arcitc Sea Farm í Patreksfirði í síðasta mánuði. 9. september 2023 12:01 Matvælastofnun staðfestir eldislax frá Artic Sea Farm í fjölda ám Matvælastofnun hefur staðfest að eldislax, strokulax frá Arctic Sea Farm á Patreksfirði, hafi fundist í fjölda ám, meðal annars í Víðidalsá, Vatnsdalsá og í Selá í Ísafjarðardjúpi. 8. september 2023 17:46 Grunur um mikið magn strokulaxa: „Þetta er umhverfisslys“ Grunur er um það að strokulax hafi komist mjög víða í ár á Vestfjörðum og allt að ám í Húnavatnssýslu. Tæpar tvær vikur eru frá því að greint var frá gati á sjókvíum í Patreksfirði. Veiðimenn furða sig á litlu eftirliti Fiskistofu og hafa miklar áhyggjur af villta íslenska stofninum. 7. september 2023 08:01 Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Fleiri fréttir Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Sjá meira
Gera kröfu um að eftirlitið verði í námunda við fiskeldið Andstæðingar sjókvíaeldis hafa ítrekað kröfur sínar um að eldi á laxi í fjörðum landsins verði bannað eftir að staðfest var að 27 eldislaxar, sem fundist hafa í laxveiðiám víða um land að undanförnu, eru úr kvíum Arctic Fish í Patreksfirði. 11. september 2023 22:55
Íslenski laxastofninn deyi út verði ekkert gert Framkvæmdastjóri Verndarsjóðs Villtra Laxastofna segir íslenska laxastofninn deyja út haldi laxeldi áfram í opnum sjókvíum. Í gær var staðfest að eldislax hafi fundist í að minnsta kosti ellefu ám en þeir höfðu sloppið úr sjókví Arcitc Sea Farm í Patreksfirði í síðasta mánuði. 9. september 2023 12:01
Matvælastofnun staðfestir eldislax frá Artic Sea Farm í fjölda ám Matvælastofnun hefur staðfest að eldislax, strokulax frá Arctic Sea Farm á Patreksfirði, hafi fundist í fjölda ám, meðal annars í Víðidalsá, Vatnsdalsá og í Selá í Ísafjarðardjúpi. 8. september 2023 17:46
Grunur um mikið magn strokulaxa: „Þetta er umhverfisslys“ Grunur er um það að strokulax hafi komist mjög víða í ár á Vestfjörðum og allt að ám í Húnavatnssýslu. Tæpar tvær vikur eru frá því að greint var frá gati á sjókvíum í Patreksfirði. Veiðimenn furða sig á litlu eftirliti Fiskistofu og hafa miklar áhyggjur af villta íslenska stofninum. 7. september 2023 08:01