Arsenal hulduliðið sem gerði mettilboð í Earps Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 30. ágúst 2023 23:00 Mary Earps á ferð og flugi á HM. PA-EFE/DAN HIMBRECHTS Fyrir tæpri viku var greint frá því að ónefnt lið hefði boðið í Mary Earps, markvörð Manchester United. Talið er að um hafi verið að ræða metupphæð þegar kemur að markverði en Man Utd neitaði tilboðinu.
Arsenal sótti Alessiu Russo, framherja enska landsliðsins, í sumar frá Man United eftir að hafa reynt að gera hana að dýrasta leikmanni heims í janúar en Man United neitaði tilboðinu þar sem liðið var að berjast á toppi ensku úrvalsdeildarinnar. Á endanum endaði Man Utd í 2. sæti og spilar því í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð á meðan Arsenal endaði sæti neðar. Samningur Russo rann hins vegar út og samdi hún við Arsenal. Russo er greinilega ekki eini leikmaður Man United sem Arsenal hefur heillast af en nú vill liðið fá landsliðsmarkvörðinn Mary Earps í sínar raðir. Hin þrítuga Earps var frábær á HM í sumar og stóð uppi með Gullna hanskann en þau verðlaun fær besti markvörður HM. Skömmu eftir að HM lauk bárust fréttir af því að Man Utd hefði hafnað risatilboði í Earps og nú hefur The Mirror greint frá því að huldufélagið sem um er ræðir sé Arsenal. Earps á aðeins ár eftir af samningi sínum og er Man Utd í viðræðum um að framlengja þann samning. Man United hefur misst nokkuð af sterkum leikmönnum í sumar en Russo fór til Arsena,l Ona Batlle fór til Barcelona og María Þórisdóttir fór til Brighton & Hove Albion. Það er ljóst að félagið má ekki við því að missa Earps ef það ætlar sér að berjast við Chelsea á toppi deildarinnar annað árið í röð.
Fótbolti Enski boltinn Mest lesið Arnar missti af ræsingu en vann: „Ha? Eru þau farin?“ Sport Fékk hafnabolta í andlitið á 170 km hraða Sport Fá 500 þúsund dollara fyrir að skipta frá Jamaíka yfir til Tyrklands Sport „Einn skemmtilegasti veturinn sem ég hef tekið þátt í“ Sport Spenntari fyrir NFL en EM: „Við horfum á einhverja leiki“ Sport Fylkir ennþá bara unnið einn leik í deild Sport Fimm spennandi leikmenn af EM U-21 Sport Ísland lýkur leik í 11. sæti á Billie Jean King Cup Sport Fyrrum hollenskur landsliðsmaður framseldur til Hollands Sport Tap og rautt spjald hjá Chelsea í HM félagsliða Sport Fleiri fréttir Tveir frá Arsenal og Bournemouth tilnefndir með nýjustu stjörnu Chelsea Samkomulag um kaupverð Kerkez í höfn Á förum frá Arsenal Erfiðasta byrjunin er hjá Arsenal og Man. United Liverpool gæti misst Mo Salah í sex leiki Bernardo Silva nýr fyrirliði Manchester City Liverpool byrjar titilvörnina á móti Bournemouth „Ég vil líka skora mörk“ Kæra Coote vegna ummæla sinna um Jürgen Klopp Spilaði í fyrsta skiptið eftir bílslysið Man. United sagt í viðræðum við Ekitike sem var líka orðaður við Liverpool „Ég vil drepa Manchester United“ Baulað stanslaust á Carlos Tevez í góðgerðaleik á Old Trafford Hafa ekki efni á að borga „Man United skattinn“ Garnacho vill vera áfram á Englandi Tottenham festir fyrstu kaup í stjóratíð Frank Man City að fá einn efnilegasta miðjumann Evrópu Atlético hætt við Hernandez og sýnir Robertson áhuga Milner spilar til fertugs í von um að slá leikjametið Þrátt fyrir að vera með fimm vill Newcastle einn markvörð til viðbótar Guðlaugur Victor fær nýjan þjálfara Tottenham leitar réttar síns eftir ákvörðun INEOS Vilja að Mbeumo elti stjórann Veltir því fyrir sér hvort „24 klukkutíma reglan“ lifi af vistaskiptin Gamli liðsfélagi Arnars og Bjarka gæti bæst í þjálfarateymi Liverpool „Barcelona og Real Madrid hefðu rekið mig“ Fer fyrst í frí en semur svo við Liverpool Borga fimm milljarða fyrir táning Man. Utd með í slaginn um Ekitike Daninn orðinn stjóri Tottenham Sjá meira