Birkir sagður fara frítt eftir að hafa spilað nánast kauplaust Sindri Sverrisson skrifar 8. ágúst 2023 14:01 Birkir Bjarnason með fyrirliðabandið í einum af 113 A-landsleikjum sínum. Hann var í landsliðshópnum í leikjunum í júní, gegn Slóvakíu og Portúgal, en kom ekki við sögu. VÍSIR/HULDA MARGRÉT Birkir Bjarnason, sá leikjahæsti í sögu íslenska karlalandsliðsins í fótbolta, virðist hafa lokið dvöl sinni hjá Viking í Noregi. Hann gæti verið á leið aftur til Ítalíu, á kunnuglegar slóðir.
Frá þessu greina norskir miðlar og í frétt Aftenbladet segir að ítalska félagið Brescia vilji endurheimta Birki, sem síðast lék með liðinu á árunum 2020-21. Brescia féll úr ítölsku B-deildinni í vor, eftir umspil, og leikur því í C-deildinni í vetur. Birkir, sem er 35 ára gamall, lék með Adana Demirspor í Tyrklandi í tvö ár en skipti yfir til Viking í vor í kjölfarið á jarðskjálftanum mannskæða í febrúar, skömmu áður en samningur hans við tyrkneska félagið átti að renna út. Í grein Aftenbladet segir að þegar Birkir kom í mars hafi planið aðeins verið að hann gæti spilað sig í form með Viking, og að hann hafi varla verið með nein laun hjá félaginu. Birkir hafi verið opinn fyrir því að vera áfram hjá Viking, félaginu sem hann hóf meistaraflokksferilinn með á sínum tíma, en á sama tíma verið skýr varðandi það að mögulega færi hann frá félaginu í sumar, eins og nú virðist ætla að verða raunin. Birkir er búinn að spila ellefu deildarleiki fyrir Viking í sumar og skora tvö mörk.
Norski boltinn Ítalski boltinn Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Gæti komið í bakið á stjörnuliði Álftaness Körfubolti Fleiri fréttir „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Thelma með stoðsendingu og er Svíþjóðarmeistari Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Ronaldo var skilinn eftir heima Fer frá Stjörnunni í FH Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Fimmta árið í röð eru Noregsmeistararnir með eina íslenska í liðinu Leikmaður Freys varð fyrir kynþáttaníði frá mótherja Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Þjálfari Hákonar grét eftir leik Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Messi tryggði Inter Miami mikilvægan sigur Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Markvörður ársins náði að stöðva Orra Sjá meira