Veðrið að skýrast um helgina Eiður Þór Árnason skrifar 5. ágúst 2023 07:26 Yfirleitt verður þurrt á Norðausturlandi í dag. Hátíðin Ein með öllu fer nú fram á Akureyri. Vísir/Vilhelm Spáð er suðaustlægri eða breytilegri vindátt í dag, þremur til átta metrar á sekúndu og verður skýjað með köflum víða á landinu. Dálítil rigning á suðvestanverðu landinu en annars líkur á dálitlum skúrum, einkum inn til landsins og bætir í skúrina eftir hádegi. Yfirleitt þurrt um landið norðaustanvert. Hiti ellefu til sextán stig.
Á morgun, sunnudag snýst í austlæga átt, þrjá til átta metra á sekúndu en átta til þrettán syðst á landinu seinnipartinn. Rigning sunnantil, annars stöku skúrir, einkum eftir hádegi. Hiti tíu til átján stig, hlýjast um norðan- og vestanvert landið. Svo hljóðar spá Veðurstofu Íslands en á frídag verslunarmanna er gert ráð fyrir hægri breytilegri átt eða hafgolu. Bjart með köflum, en austlæg átt fimm til tíu metrar á sekúndu við suður- og suðausturströndina. Stöku skúrir um sunnan- og vestanvert landið eftir hádegi. Hiti tólf til sautján stig. Á þriðjudag snýst í hæga norðlæga átt með stöku síðdegisskúrum en á miðvikudag verður yfirleitt þurrt. Hiti níu til sextán stig, hlýjast sunnan heiða. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á sunnudag: Austlæg átt 3-8 m/s, en 5-10 syðst á landinu. Rigning með köflum á sunnanverðu landinu en annars víða skúrir, einkum síðdegis. Hiti 10 til 15 stig. Á mánudag (frídagur verslunarmanna): Austlæg eða breytileg átt 3-10. Rigning með köflum um suðaustanvert landið. Bjart með köflum í öðrum landshlutum en líkur á skúrum, sérílagi síðdegis. Hiti breytist lítið. Á þriðjudag: Hæg norðlæg eða breytileg átt og skýjað að mestu. Dálítil væta, einkum á sunnanverðu landinu. Hiti 11 til 16 stig. Á miðvikudag: Norðvestan og vestan 3-8, en 8-13 á norðausturhorni landsins. Víða léttskýjað en skýjað með dálítilli rigningu við norðurströndina. Hiti 8 til 18 stig, hlýjast á Suðausturlandi. Á fimmtudag: Vaxandi austanátt og fer að rigna, fyrst á sunnanverðu landinu. Þurrt að kalla norðaustantil. Hiti 9 til 14 stig. Á föstudag: Útlit fyrir austlæga átt og rigningu í flestum landshlutum. Hiti 13 til 18 stig.
Veður Mest lesið Stúlkan sem fór í sjóinn er látin Innlent Beinaber gísl látinn grafa eigin gröf á Gasa Erlent Grunaður um að myrða heila fjölskyldu en skilja ungabarnið eftir á lífi Erlent Landsvirkjun sé ekki „löngu búin að semja“ við alla landeigendur Innlent Fagna afmæli virkjunar sem sökkti sveitajörðum en rafvæddi síldarbæ Innlent Kvenfólkið í Eyjum bjargaði deginum Innlent Stúlka í sjóinn við Reynisfjöru Innlent Að bugast á hálf nöktum ferðamönnum og beita sektum Erlent Aldrei upplifað annað eins: „Það eru öll stígvél á þessari eyju uppseld“ Innlent „Varla gangfær“ og „skulfu eins og hríslur“ Innlent Fleiri fréttir Varasamar aðstæður fyrir ferðalanga „Eins og að vera úti á rúmsjó“ í Eyjum annað kvöld Spáin versnar á ný og gul viðvörun í Eyjum Rok og rigning sama hvert er litið Allt að nítján stiga hiti á Suðurlandi Lægðardrag yfir vestanverðu landinu en hiti gæti náð 18 stigum Hiti gæti náð tuttugu stigum fyrir austan Spá þoku fyrir norðan og austan Líkur á eldingum norðantil og gasmengun vestantil Reykvíkingar fengu loksins tuttugu gráður Landshitametið ekki fallið en hitamet fallin á ákveðnum stöðvum „Raunhæfur möguleiki“ að hitamet falli á morgun Hiti gæti náð 25 stigum í dag Veðurblíða víða um land Spá hitabylgju í byrjun næstu viku og allt að 29 stigum Hlýnar um helgina Skýjað með skúrum í höfuðborginni Rigning í Reykjavík en hlýtt og gott fyrir austan „Við sáum að veðrið var best fyrir austan þannig við drifum okkur austur“ Hiti nær tuttugu stigum víða á morgun Fínasta veður um land allt Hægviðri, hafgola og hiti að átján stigum Skúrir á víð og dreif Rigning með köflum sunnan- og vestanlands Skúrir víða um land og lægð nálgast Sjá meira