Skipta með sér skýjunum Eiður Þór Árnason skrifar 3. ágúst 2023 07:09 Það verður bjart veður suðvestantil í dag. vísir/vilhelm Spáð er hægri vestlægri eða breytilegri vindátt í dag og björtu veðri að mestu suðvestantil en skýjað með köflum og dálitlum skúri í öðrum landshlutum. Líkur eru á skúrum á víð og dreif en úrkomumagnið yfirleitt lítið. Léttir til norðan- og austanlands um kvöldið. Hiti 9 til 17 stig og hlýjast suðvestantil.
Á morgun föstudag verður áfram hæg breytileg átt víðast hvar. Ívið meiri úrkoma en yfirleitt þurrt um landið norðaustanvert. Þá er útlit fyrir bjartviðri á Norður- og Austurlandi en lengst af skýjað suðvestantil. Hitastigið verður á svipuðum nótum áfram og þar sem sólar nýtur getur hitinn farið í 15 til 18 stig þar sem best lætur. Þetta kemur fram í spá veðurfræðings hjá Veðurstofu Íslands en líkt og að undanförnu halda lægðirnar sig fjarri landinu og veður með allra rólegasta móti. Á laugardag er spáð austlægri eða breytilegri átt og 3 til 8 metrum á sekúndu. Allvíða skúrir, einkum síðdegis. Hiti 7 til 15 stig en svalast við norðausturströndina. Á sunnudag er gert ráð fyrir austlægri átt, 3 til 10 metrum á sekúndu og dálítilli rigningu eða skúri á sunnanverðu landinu. Yfirleitt þurrt fyrir norðan. Hiti 6 til 15 stig, hlýjast sunnanlands. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á föstudag:Suðlæg eða breytileg átt, 3-8 m/s og víða skýjað, en sums staðar dálítil væta, einkum sunnan- og vestantil. Hiti yfirleitt 10 til 15 stig. Á laugardag:Austlæg eða breytileg átt, 3-8 m/s og allvíða skúrir, einkum síðdegis. Hiti 7 til 15 stig, svalast við norðausturströndina. Á sunnudag:Austlæg átt, 3-10 m/s og dálítil rigning eða skúrir á sunnanverðu landinu, en yfirleitt þurrt fyrir norðan. Hiti 6 til 15 stig, hlýjast sunnanlands. Á mánudag (frídagur verslunarmanna):Áframhaldandi austlæg átt. Víða síðdegisskúrir, en úrkomulítið um landið norðaustanvert. Hiti víða 8 til 14 stig. Á þriðjudag:Hæg norðlæg átt, víða þurrt og bjart veður, en fremur svalt fyrir norðan og austan. Á miðvikudag:Útlit fyrir norðvestanátt með rigningu á norðan- og austanverðu landinu og svalt þar, en þurrt og mildara syðra.
Veður Mest lesið Stóra tjaldið fellt og hætt við brennuna vegna óveðurs Innlent „Það var töluvert verra veður en spáin sagði“ Innlent Klíndu límmiðum á Ormsson sem versla ekki einu sinni við Rapyd Innlent „Manneskja sem er komin á þetta plan hlýtur að vera rökþrota“ Innlent Læti í miðbænum og í veðrinu Innlent Þjóðhátíðargestum hleypt inn í Herjólfshöll meðan veðrið gengur yfir Innlent Breyti engu á jörðu niðri að viðurkenna sjálfstæði Palestínu Erlent Fjölskyldufaðir stunginn meðan sonurinn horfði á Innlent Hávaðarok á Snæfellsnesi og Faxaflóa Innlent Opnun Samverks á Hellu fagnað Innlent Fleiri fréttir Varasamar aðstæður fyrir ferðalanga „Eins og að vera úti á rúmsjó“ í Eyjum annað kvöld Spáin versnar á ný og gul viðvörun í Eyjum Rok og rigning sama hvert er litið Allt að nítján stiga hiti á Suðurlandi Lægðardrag yfir vestanverðu landinu en hiti gæti náð 18 stigum Hiti gæti náð tuttugu stigum fyrir austan Spá þoku fyrir norðan og austan Líkur á eldingum norðantil og gasmengun vestantil Reykvíkingar fengu loksins tuttugu gráður Landshitametið ekki fallið en hitamet fallin á ákveðnum stöðvum „Raunhæfur möguleiki“ að hitamet falli á morgun Hiti gæti náð 25 stigum í dag Veðurblíða víða um land Spá hitabylgju í byrjun næstu viku og allt að 29 stigum Hlýnar um helgina Skýjað með skúrum í höfuðborginni Rigning í Reykjavík en hlýtt og gott fyrir austan „Við sáum að veðrið var best fyrir austan þannig við drifum okkur austur“ Hiti nær tuttugu stigum víða á morgun Fínasta veður um land allt Hægviðri, hafgola og hiti að átján stigum Skúrir á víð og dreif Rigning með köflum sunnan- og vestanlands Skúrir víða um land og lægð nálgast Sjá meira