Sjáðu draumabyrjun Arons Elíss ásamt öllum mörkunum úr Bestu í gærkvöldi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. júlí 2023 09:01 Víkingar fagna marki í sigrinum á KR á Meistaravöllum í gærkvöldi. Vísir/Hulda Margrét Toppliðin Víkingur og Valur fögnuðu í gærkvöldi bæði sigri í leikjum sínum í sextándu umferð Bestu deildar karla í fótbolta en Stjörnumenn tóku aðeins eitt stig með sér úr Kórnum.
Vísir hefur nú tekið saman mörkin úr leikjunum þremur frá því í gærkvöldi og má sjá þau hér fyrir neðan. Umferðinni lýkur svo með tveimur leikjum í kvöld. Topplið Víkinga er enn með sex stiga forskot á toppnum eftir 2-1 sigur á KR í Vesturbænum. Aron Elís Þrándarson lék sinn fyrsta leik með Víkingi í níu ár og skoraði seinna markið með laglegum skalla en það fyrra skoraði Helgi Guðjónsson eftir að hafa fengið boltann á silfurfati frá markverði KR. Kristján Flóki Finnbogason minnkaði muninn úr vítaspyrnu. Patrick Pedersen tryggði Val 1-0 sigur á Fram með eina marki leiksins sem kom strax á sextándu mínútu. Pedersen skoraði markið eftir frábæran undirbúning frá Kristni Frey Sigurðssyni og Aroni Jóhannssyni. HK og Stjarnan gerðu 1-1 jafntefli í Kórnum. Atli Hrafn Andrason kom HK yfir í fyrri hálfleik en Adolf Daði Birgisson jafnaði metin í þeim seinni. Hér fyrir neðan má sjá mörkin úr leikjunum þremur. Klippa: Mörkin úr leik KR og Víkings Klippa: Markið úr leik Vals og Fram Klippa: Mörkin úr leik HK og Stjörnunnar
Besta deild karla Víkingur Reykjavík Valur KR Fram HK Stjarnan Mest lesið Bielsa með böggum hildar: „Skildi ekkert eftir mig fyrir úrúgvæskan fótbolta“ Fótbolti Kólumbía - Portúgal | Toppsæti riðilsins undir Fótbolti Tveir kantmenn gætu verið úr leik hjá Evrópumeisturunum Fótbolti Bellingham braut ísinn og England vann riðilinn Fótbolti Elísa vann aftur á Ítalíu Sport Ummæli Tuchels um Reece James vekja furðu: „Enginn gat séð þetta fyrir“ Fótbolti Króatar tóku annað sætið af Ganverjum Fótbolti Sextán ára bjargaði Gróttu á Húsavík Íslenski boltinn Tyrkland yfirgefur HM sem „heimsmeistari“ Fótbolti 91 árs og mættur á sitt 18. heimsmeistaramót Fótbolti Fleiri fréttir KR skoraði sex og fór á toppinn Sextán ára bjargaði Gróttu á Húsavík Nú tók Arnar Bjarki met af Eiði Smára Guðmundur Andri í FH eins og faðir hans forðum Víkingur nælir í Eið Orra sem kemur eftir tímabilið Sumarmótin: Norðurálsmótið 2026 Sjáðu mörkin úr stórsigri Víkings í Smáranum Þurfum að draga lærdóm hratt og koma peppaðir á sunnudaginn „Mér fannst við ekki góðir“ Uppgjörið: Breiðablik - Víkingur 1-4 | Flengdu Blika og hafa unnið tólf í röð Oliver til FH Safnaði átta milljónum fyrir Kolfinnu: „Takk, íslenska þjóð“ Krakkarnir fögnuðu eins og Ronaldo á Norðurálsmótinu Stjörnur framtíðarinnar og risaleikur Orðrómur um Val borinn undir Eið Smára í beinni „Eru allir í bústað klukkan sex á sunnudegi?“ „Það er stórt“ að skáka Eiði Smára Baldur baunar á Birni Snæ og hans lélega „attitjúd“ Sjáðu átta marka veislu í Vesturbænum Uppgjörið: KR - ÍA 5-3 | Átta marka súpa á Meistaravöllum Birna með þrennu þegar Stjarnan lagði Fram í Garðabæ Blikar aftur á toppinn eftir öruggan sigur í Eyjum Fyrsti sigur deildarinnar kominn í hús Einum mánuði yngri en Eiður Smári Sjáðu þrennu Elíasar, mark þess nýfermda og svar Eyjamanna Stuðningsmenn Blika og Víkinga spyrja fyrir hverja leikurinn sé Uppgjörið: Víkingur - Fram 5-0 | Elías Már með þrennu í stórsigri Víkings í toppslagnum Uppgjörið og viðtöl: Breiðablik - KA 3-1| Mikilvægur sigur Blika en vandræði KA halda áfram Stál í stál í toppslag á Meistaravöllum Efstu lið lentu í kröppum dansi en sigldu heim sigrum Sjá meira