Óformlegu tilboði Bayern í Kane hafnað Smári Jökull Jónsson skrifar 27. júní 2023 22:01 Harry Kane á eitt ár eftir af samningi sínum hjá Tottenham. Vísir/Getty Tottenham Hotspur hefur hafnað 60 milljóna punda tilboði frá FC Bayern í stjörnuframherjann Harry Kane. Kane á eitt ár eftir af samningi sínum við Tottenham.
Harry Kane hefur verið töluvert í fréttunum undanfarið og aðallega í tengslum við mögulega brottför hans frá Tottenaham Hotspur. Í morgun bárust fregnir af því að FC Bayern hefði lagt fram tilboð í framherjann knáa sem á eitt ár eftir af samningi sínum við Lundúnaliðið og gæti því yfirgefið það frítt að ári liðinu. Í frétt Skysports um málið kemur fram að Bayern hafi lagt fram munnlegt tilboð í Kane og að ekkert formlegt tilboð hafi borist. Tottenham hafnaði hins vegar tilboði Bayern en félagið vill alls ekki missa Kane frá sér sem hefur töluvert verið orðaður við Manchester United í sumar. Harry Kane sló markamet Tottenham Hotspur í vetur og er kominn ansi nálægt markameti Alan Shearer í ensku úrvalsdeildinni. Shearer skoraði 260 mörk á sínum ferli fyrir Blackburn og Newcastle en Kane er kominn með 212 mörk í ensku deildinni. Í dag staðfesti Tottenham komu Guglielmo Vicario frá ítalska liðinu Empoli. Vicario er ítalskur markvörður sem virðist eiga að taka stöðu Hugo Lloris sem líklegast er á leiðinni frá Tottenham.
Enski boltinn Þýski boltinn Mest lesið Laufey Lín hjálpaði Alysu Liu að vinna gullið Sport Drukkin í útsendingu og baðst afsökunar Sport Þórsarar fá nýtt íþróttahús Sport „Þegar ég lít til baka veit ég ekki hvað ég var að hugsa“ Enski boltinn Uppgjör: Haukar - FH 25-32| Haukar létu valta yfir sig á heimavelli Handbolti Ísraelskir Ólympíuforkólfar vilja banna sjónvarpslýsanda Sport „Það væri bara mjög hrokafullt að vera ekki ánægður“ Sport Slot býst við Isak í mars og vonast eftir „bestu útgáfunni“ af honum Enski boltinn Hákon tekinn af velli í hálfleik í tapleik Fótbolti Víkingur og Breiðablik unnu bæði 1-0 sigra í kvöld Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Þegar ég lít til baka veit ég ekki hvað ég var að hugsa“ Slot býst við Isak í mars og vonast eftir „bestu útgáfunni“ af honum Sjáðu Arsenal renna á rassinn gegn Úlfunum „Mjög erfitt að sætta sig við þetta“ „Okkur var refsað fyrir það“ Arsenal missti niður tveggja marka forskot í jafntefli við botnliðið Saka verður sá launahæsti Salah og trúfélagar fá drykkjarhlé í miðjum leikjum Mikel Arteta óttast að tímabil Arsenal stefni í kunnuglega átt Lærisveinar Lampard höfðu betur í toppslagnum Chelsea og Manchester United hafi spurst fyrir um Klopp Hákon hélt hreinu er Brentford sló út spútnik liðið Dregið í enska bikarnum: Chelsea heimsækir Hollywood lið Wrexham Heldur ævintýri Rooney og lærisveina hans í Macclesfield áfram í kvöld? Kemur til varnar liðsfélaga sínum hjá Liverpool Tók Arsenal bara korter að tæta Wigan í sig Úrvalsdeildarliðin áfram í 16-liða úrslit Úlfarnir mörðu D-deildarliðið í leðjuslag Sneri aftur á völlinn eftir hjartastopp Perri varði víti og Leeds áfram Hristu hausinn yfir ævintýralegum klúðrum „Sönnun þess hvernig VAR hefur skaðað dómara“ Flugu af öryggi áfram í fimmtu umferð Tonali tryggði Newcastle áfram eftir skelfileg afglöp Bizot C-deildarlið sló Burnley út með draumamarki Stálheppnir gegn C-deildarliðinu Þægilegt hjá City og Guéhi getur varið titilinn Finnst fátt skemmtilegra en skítkastið Teddy trúir ekki að Tottenham taki Tudor Hjólar í hræsnarann Ratcliffe: „Hann er sjálfur innflytjandi“ Sjá meira