Arnar biðst afsökunar | „Ekkert eðlilega hallærisleg ummæli“ Aron Guðmundsson skrifar 16. maí 2023 08:31 Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkings Reykjavíkur Vísir/Hulda Margrét Arnar Gunnlaugsson, þjálfari karlaliðs Víkings Reykjavíkur í knattspyrnu, hefur beðist afsökunar á ummælum sem hann lét falla í viðtali við Fotbolti.net í gær.
Ummælin lét Arnar Gunnlaugsson þjálfari Víkings falla í samtali við Fótbolta.net eftir að Heimir Guðjónsson þjálfari FH gagnrýndi lið hans í samtali við Stöð 2 Sport fyrir að vera grófasta lið deildarinnar. Sagðist Arnar taka því sem hrósi. „Af því við vorum algjörar píkur í fyrra.“ Arnar hefur nú beðist afsökunar, það gerir hann í færslu á samfélagsmiðlinum Facebook. „Biðst innilegrar afsökunar á ekkert eðlilega hallærislegum ummælum sem höfð voru eftir mér í gær. Árið er 2023 og ég er að nota frasa sem er bæði móðgandi og viðheldur úreltri og rangri staðalímynd. Arnar Bergmann Gunnlaugsson – gera betur,“ skrifar Arnar í færslu á Facebook. Ummæli Arnars vöktu gríðarlega athygli á samfélagsmiðlum. Er Arnar gagnrýndur fyrir líkinguna af ótal mörgum sem segja þau ekki eiga sérlega vel við. Þakkaði Heimi fyrir hrósið Eftir sigur Víkinga á FH í Bestu deild karla á dögunum sagði Arnar, í viðtali við Vísi, að FH-ingar hefðu komið út í síðari hálfleik með það sem markmið að meiða leikmenn Víkings en Hafnfirðingarnir voru þá tveimur mörkum undir. Heimir svaraði þessum ummælum Arnars í viðtali við Vísi í kjölfarið. Hann sagði Arnar tala oft mikið og að lið hans væri grófasta lið Bestu deildarinnar. Arnar var spurður út í ummæli Heimis í viðtali við Fótbolti.net í gær og þar sagðist hann taka ummælum Heimis sem hrósi í garð sinna manna. „Af því við vorum algjörar píkur í fyrra,“ sagði Arnar í viðtali við Fótbolti.net.
Besta deild karla Víkingur Reykjavík Mest lesið Kári og Logi vilja henda Ými út úr landsliðinu Handbolti Fótboltamaður skotinn til bana Fótbolti Óttast að besti leikmaður Liverpool verði frá Enski boltinn Úr Bestu deild yfir í að slá í gegn í Meistaradeild: „Ég elska pressuna“ Fótbolti Hleyptu Þorsteini ekki heim og vilja ekki að hann fari á EM Handbolti Sagður utan hóps fyrir Bjarka og Orra Handbolti Snýr aftur á æfingar eftir 100 daga í burtu Fótbolti Snéri aftur í fótbolta eftir 35 ára hlé: „Kalla mig Jackie Grealish“ Enski boltinn Alcaraz sjokkerar tennisheiminn Sport Gat ekki komið í veg fyrir að City færi áfram Enski boltinn Fleiri fréttir Víkingur í úrslit Bose-bikarsins eftir sigur „Verið heiður að spila í appelsínugulu með frábærum liðsfélögum“ Þekkir Egilshöllina vel og skoraði gegn fyrrum félögum Strákar Heimis Guðjóns fengu slæman skell í fyrsta leik Axel verður áfram hjá Aftureldingu Kveður pabba sinn í Laugardalnum og fer til FH „Félag sem var í basli með að ná endum saman og greiða laun á réttum tíma“ Skrýtið og taktlaust: „Ég er ekkert sátt með niðurstöðuna“ Fanndís kveður sviðið: „Ég er búin að fella nokkur tár“ Gylfi með tvö og Víkingar byrja á sigri Frá Akureyri til Danmerkur Markadrottningin heldur að landsliðið sé búið spil Strákarnir í 2. flokki Vals þeir einu sem ekki spila fyrir áramót Dæturnar vildu norður: „Mun alltaf gera allt fyrir þær“ Stjarnan sækir markvörð í 3. deildina „Ég var orðinn algjörlega bugaður“ Jónatan áfram á Hlíðarenda: „Var alltaf jákvæður fyrir því að framlengja“ Óli Jó kallar ráðninguna á Jóa Kalla algjört bull „Ég elska þig Ísland, takk fyrir allt!“ Sextán ára með fernu fyrir meistara Víkings Valur dregur sig úr Bose-bikarnum „Sagði bara við hann: Djöfulsins fíflið þitt“ Yngir upp í allt of gamalli deild Þróttur keypti Adam Árna frá Grindavík Ástæðan fyrir því að Þorlákur hætti: „Ég var ekki hrifinn af þessu“ Þorlákur sagði upp störfum hjá ÍBV Þrjár ungar KR-konur leggja skóna á hilluna Murielle elti Óskar í Garðabæinn Segir dökk ský yfir íslensku knattspyrnuhreyfingunni Rúnar sækir gamlan félaga sinn inn í þjálfarateymið Sjá meira