Vaxandi sunnanátt og fer að rigna Atli Ísleifsson skrifar 11. maí 2023 07:11 Reikna með að hiti verði á bilinu átta til tólf stig sunnan- og vestanlands. Myndin er tekin á toppi Úlfarsfells í morgun. Vísir/Vilhelm Mildur og rakur loftmassi er nú yfir landinu og í morgunsárið er vindur með hægasta móti og þoka lætur á sér kræla í flestum landshlutum.
Á vef Veðurstofunnar segir að það sem stýri veðrinu í dag sé lægð við Hvarf, sem sendi skil yfir landið. Það verði því vaxandi sunnnanátt, átta til fimmtán metrar á sekúndu seinnipartinn og fer að rigna sunnan- og vestanlands. Reikna með að hiti verði á bilinu átta til tólf stig sunnan- og vestanlands. Sunnanáttin verði hægari um landið norðaustanvert þar sem þar léttir til og má búast við allt að sextán til sautján stiga hita í sólskininu þegar best lætur. „Á morgun verður áttin áfram suðlæg, en vindhraði skaplegur víðast hvar, nema á austanverðu landnu, þar má búast við strekkingi. Væta með köflum nokkuð víða og útlit fyrir drjúga rigningu á Suðausturlandi framan af degi. Hitatölurnar svipaðar eða aðeins lægri en í dag.“ Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á föstudag: Suðlæg átt 3-10 m/s, en 8-15 austantil fram eftir degi. Rigning með köflum, einkum suðaustanlands. Hiti 7 til 14 stig. Á laugardag: Gengur í austan og norðaustan 8-13 með rigningu, fyrst um landið sunnanvert. Hiti 6 til 12 stig. Á sunnudag: Norðvestan- og vestanátt með rigningu eða slyddu, en úrkomulítið á Suðaustur- og Austurlandi. Kólnandi veður. Á mánudag: Vestlæg eða breytileg átt og stöku skúrir eða él. Svalt í veðri. Á þriðjudag: Suðvestanátt og smá væta vestantil, en bjartviðri á austanverðu landinu. Hlýnandi veður. Á miðvikudag: Sunnanátt með súld eða rigningu, en bjartviðri um landið norðaustanvert. Hiti 7 til 16 stig, hlýjast norðaustanlands.
Veður Mest lesið Stúlka í sjóinn við Reynisfjöru Innlent Stúlkan sem fór í sjóinn er látin Innlent Stóra tjaldið fellt og hætt við brennuna vegna óveðurs Innlent Að bugast á hálf nöktum ferðamönnum og beita sektum Erlent Stúlka flutt á sjúkrahús eftir fall í sjóinn við Reynisfjöru Innlent „Það var töluvert verra veður en spáin sagði“ Innlent „Varla gangfær“ og „skulfu eins og hríslur“ Innlent „Fordæmalaus hitabylgja“ leikur Skandínava grátt Erlent Aldrei upplifað annað eins: „Það eru öll stígvél á þessari eyju uppseld“ Innlent Herjólfur siglir ekki meira í dag Innlent Fleiri fréttir Varasamar aðstæður fyrir ferðalanga „Eins og að vera úti á rúmsjó“ í Eyjum annað kvöld Spáin versnar á ný og gul viðvörun í Eyjum Rok og rigning sama hvert er litið Allt að nítján stiga hiti á Suðurlandi Lægðardrag yfir vestanverðu landinu en hiti gæti náð 18 stigum Hiti gæti náð tuttugu stigum fyrir austan Spá þoku fyrir norðan og austan Líkur á eldingum norðantil og gasmengun vestantil Reykvíkingar fengu loksins tuttugu gráður Landshitametið ekki fallið en hitamet fallin á ákveðnum stöðvum „Raunhæfur möguleiki“ að hitamet falli á morgun Hiti gæti náð 25 stigum í dag Veðurblíða víða um land Spá hitabylgju í byrjun næstu viku og allt að 29 stigum Hlýnar um helgina Skýjað með skúrum í höfuðborginni Rigning í Reykjavík en hlýtt og gott fyrir austan „Við sáum að veðrið var best fyrir austan þannig við drifum okkur austur“ Hiti nær tuttugu stigum víða á morgun Fínasta veður um land allt Hægviðri, hafgola og hiti að átján stigum Skúrir á víð og dreif Rigning með köflum sunnan- og vestanlands Skúrir víða um land og lægð nálgast Sjá meira