Gott að treysta fagaðilum fyrir beðahreinsuninni Hreinir garðar 15. maí 2023 11:27 Meðal helstu nauðsynlegu vorverka er beðahreinsun en henni þarf að sinna á hverju vori. Hreinir garðar bjóða upp á beðahreinsun fyrir heimili, fyrirtæki, stofnanir og bæjarfélög. Í maí mánuði byrja flestir garðeigendur að huga að görðum sínum fyrir sumarið.
Meðal helstu nauðsynlegu vorverka er beðahreinsun en henni þarf að sinna á hverju vori að sögn Þorgríms Haraldssonar, skrúðgarðyrkjumeistara hjá Hreinum görðum sem er rótgróið fjölskyldufyrirtæki sem sérhæfir sig í viðhaldi og snyrtingu garða á stór-höfuðborgarsvæðinu. „Beðahreinsun er oft ansi seinleg og mikil þolinmæðisvinna, fyrir utan líkamlegu áreynsluna og svo förgun úrgangsins,“ segir Þorgrímur. „Þannig hafa mjög margir ekki tök á að sinna þessu sjálfir og þurfa þá að treysta á fagaðila sem vita hvað þarf að gera.“ Meðal þess sem þarf að huga að er að þekkja muninn á illgresi og fjölæringum, taka ákvarðanir hvort bæta skuli mold í beðin, gefa áburð, fjarlægja eða bæta við plöntum, setja yfirlagsefni til að aftra illgresisvexti og ýmislegt fleira.“ Hreinir garðar bjóða upp á beðahreinsun, hvort sem er fyrir einkaaðila, fyrirtæki, stofnanir eða bæjarfélög segir Þorgrímur. „Yfirleitt er um að ræða 4-6 manna teymi sem sér þá um að hreinsa illgresi og óæskilegan gróður úr beðum ásamt því að fjarlægja lauf, sprek, rusl og fleira svo garðurinn líti fallega út.“ Hann segir flesta garðeigendur eðlilega vilja að garður þeirra sé til prýði og því sé mikilvægt að viðhalda honum. „Beðahreinsun er lykilatriðið í þeirri viðleitni þar sem hætt er við því að illgresi og óæskilegur gróður taki yfir beðin. Svipað og að ryk verður líklega fljótt orðið yfirþyrmandi innanhúss ef aldrei er þurrkað af eða ryksugað. Ég mæli því með því að einstaklingar, fyrirtæki og sveitarfélög kynni sér þjónustu okkar og óski eftir tilboði frá okkur í beðahreinsun. Það mun enginn sjá eftir því.“ Nánar á hreinirgardar.is.
Garðyrkja Hús og heimili Mest lesið Ferðamálastofa fellir úr gildi starfsleyfi Eagle golfferða Viðskipti innlent Eldi verður eitt stærsta félag sinnar tegundar í heiminum Viðskipti innlent Kaup Netflix á hluta Warner Bros. gætu reynst „vandamál“ Viðskipti erlent „Beindu skammbyssu að höfðinu á mér og sögðu: I will kill you“ Atvinnulíf Reyna fjandsamlega yfirtöku á Warner Bros. Viðskipti erlent Linda fer ekki fram til áframhaldandi stjórnarsetu Viðskipti innlent Sjónvarpseríur á samfélagsmiðlum og gjörbreytt notkun á Facebook og Instagram Atvinnulíf Stærsti nóvembermánuður í sögu Icelandair Viðskipti innlent Fjöldi erlendra farþega stendur í stað en Íslendingum fækkar Viðskipti innlent Til Borealis Data Center eftir 22 ár hjá Össuri Viðskipti innlent Fleiri fréttir Einn áhrifamestu markaðsfræðimanna heims með erindi á ÍMARk Gatnamótin opin á ný við Fjarðarkaup Yfir milljón dagskrárliðir sóttir vikulega Greiðsluáskorun Jólagjöf ársins 2025 veltir sigurvegara síðustu tveggja ára úr sessi Ertu þremur mínútum frá draumastarfinu? Kerfi sem virka eins og lungu landeldisstöðva Sjá meira