Áfram svalt í veðri og víða næturfrost Atli Ísleifsson skrifar 26. apríl 2023 07:10 Reikna má svipuðu veðri á morgun, en úrkomuminna, einkum um landið suðvestanvert. Vísir/Vilhelm Veðurstofan gerir ráð fyrir að það verði áfram svalt í veðri og víða næturfrost. Lengst af verður norðlæg vindátt og milda loftið mun halda sig langt suður í hafi næstu daga hið minnsta.
Frá þessu segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar. Þar segir að yfirleitt fylgi þessu lítil úrkoma og geti hún fallið hvort heldur sem er í fljótandi eða föstu formi. Þar sem frost sé almennt lítið í jörðu stoppi úrkoman stutt við á yfirborðinu, falli hún sem snjór. Hiti verður núll til sjö stig yfir hádaginn og verður mildast vestanlands. Víða verður næturfrost og kaldast í innsveitum norðaustantil. Reikna má svipuðu veðri á morgun, en úrkomuminna, einkum um landið suðvestanvert. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á fimmtudag: Norðlæg átt, 3-10 m/s og skúrir eða dálítil él á austanverðu landinu og sums staðar sunnan- og vestanlands, en annars bjart með köflum. Víða vægt frost, en hiti að 6 stigum suðvestantil að deginum. Á föstudag: Norðan 5-13 m/s, vægt frost og úrkomulítið á norðanverðu landinu. Bjartviðri sunnan heiða og hiti að 5 stigum yfir daginn. Á laugardag og sunnudag: Norðanátt og dálítil él á norðanverðu landinu, en annars bjart með köflum. Hiti breytist lítið. Á mánudag: Hæg norðlæg eða breytileg átt, skýjað með köflum og stöku él, en yfirleitt bjart veður sunnan- og vestantil. Áfram svalt í veðri.
Veður Mest lesið Ferðamaður réðst á leiðsögukonu: „Ísland hefur brugðist mér“ Innlent Þungir dómar í Gufunesmálinu: „Það eru ekki alltaf jólin“ Innlent Vaktin: Stefán og Lúkas dæmdir í 17 ára fangelsi Innlent Anna ljósa fallin frá Innlent „Ég hef aldrei séð svona mikið vatn í Jökulsá“ Innlent Afplána líklegast í fjögur til fimm ár á Litla Hrauni Innlent Verjandi Matthíasar hnýtir í dóminn Innlent Yfirgáfu salinn þegar Netanjahú hóf ræðu sína Erlent Vímuefnaneysla talin meginorsök banaslyss við Hraunsnef Innlent Gat ekki lengur lesið en sagði engum frá því Innlent Fleiri fréttir Fyrsta haustlægðin mætt til landsins Von á mesta vindinum í marga mánuði Búast við auknu álagi á fráveitu vegna mikillar úrkomu Röð lægða með hefðbundnu haustveðri Lægðagangur næstu daga býður upp á sígilt haustveður Strekkingsvindur og fremur vætusamt næstu daga Vaxandi vindur þegar líður á daginn Grunn lægð yfir landinu í dag en suðlægir vindar á morgun Víða kaldi og allhvasst en lægir smám saman í dag Gular viðvaranir og svalri norðanátt beint til landsins Slydduél norðantil en þurrt og bjart sunnan heiða Kólnar í kvöld og allvíða næturfrost Kólnar þegar líður á vikuna Milt veður og víða væta Rigning með köflum víðast hvar Blautt víðast hvar Dálítil rigning og lægðir á sveimi Væta með köflum og dregur úr vindi Víða rigning og hiti að fjórtán stigum Hvasst og samfelld rigning austast Má reikna með vatnavöxtum suðaustantil Rigning í dag Víðast hægur vindur og hiti að fimmtán stigum Rigning norðan- og austantil en bjart suðvestanlands Léttskýjað vestan- og sunnantil en blautara annars staðar Hiti að tuttugu stigum og hlýjast sunnantil Líkur á hellidembu, þrumum og eldingum suðvestantil Hlýtt og rakt loft yfir landinu Vindur á undanhaldi og hiti að tuttugu stigum Blæs hressilega af austri á landinu Sjá meira