Svalt í veðri en lítill vindur og úrkoma í minna lagi Atli Ísleifsson skrifar 24. apríl 2023 07:10 Hiti verður á bilinu eitt til átta stig að deginum, mildast suðvestanlands. Vísir/Vilhelm Víðáttumikil hæð er yfir Grænlandi um þessar mundir og yfir Skandinavíu er lægðasvæði. Þetta hefur í för með sér norðaustlægar áttir hér við land.
Í hugleiðingum veðurfræðings segir að það sé þó bót á máli að vindur sé ekki mikill og úrkoma í minna lagi. Það er þó heldur svalt. Hiti verður á bilinu eitt til átta stig að deginum, mildast suðvestanlands. „Í dag stefnir í norðaustan 5-13 m/s seinni partinn, hvassast norðvestantil. Það þykknar heldur upp norðaustanlands, en áfram verður bjart á norðvestanverðu landinu. Sunnantil ætlar lítil lægðabóla að senda skýjað veður og dálitla vætu inn á land. Á morgun er útlit fyrir hægari vind og stöku él norðaustanlands, skúri syðra og bjart norðvestantil. Kólnandi veður,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag: Norðan og norðaustan 3-10 m/s og dálítil él eða skúrir, en þurrt norðvestanlands. Víða vægt frost, en upp í 6 stig að deginum suðvestantil. Á föstudag: Norðlæg átt 5-13 m/s með éljum fyrir norðan og hita undir frostmarki, en bjart syðra og frostlaust að deginum. Á laugardag: Norðlæg átt og smáél fyrir norðan, annars bjart með köflum. Hiti breytist lítið. Á sunnudag: Útlit fyrir vaxandi austlæga átt og rigningu eða slyddu sunnanlands, annars þurrt. Hlýnar í veðri.
Veður Mest lesið „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Erlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Erlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Fleiri fréttir Lægðin fyrr á ferðinni Norðan kaldi og snjókoma til fjalla Lægðardrag á leiðinni Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Krapi og hálkublettir víða Skafið og saltað Engar viðvaranir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Sjá meira