Geðþóttaákvörðun IHF gæti skilað Íslandi á HM Sindri Sverrisson skrifar 18. apríl 2023 15:24 Ísland veitti Ungverjalandi ágæta keppni í umspili um sæti á HM og gæti enn mögulega komist á mótið. VÍSIR/HULDA MARGRÉT Íslenska kvennalandsliðið í handbolta á enn möguleika á að komast á HM í desember, þrátt fyrir tapið gegn Ungverjalandi í umspili um sæti á mótinu.
Handknattleikssamband Íslands hefur ákveðið að sækja um það að fá annað af tveimur boðssætum sem IHF, alþjóða handknattleikssambandið, heldur lausum þar til í sumar. Þetta kemur fram í grein RÚV í dag. Alls taka 32 lið þátt á HM og fer mótið fram í Danmörku, Noregi og Svíþjóð. Það hefst 29. nóvember og stendur yfir til 17. desember. IHF heldur tveimur sætum opnum og úthlutar þeim eftir eigin geðþótta, og þannig fengu til að mynda Slóvakía og Pólland boðssæti á síðasta heimsmeistaramóti, árið 2021. Karlalandslið Íslands fékk sams konar boðsæti á heimsmeistaramótinu í Katar í janúar 2015, eftir að hafa mistekist að vinna sig inn á mótið. Í grein RÚV er bent á að Ísland hafi verið einna næst því að komast inn á HM af Evrópuþjóðunum sem ekki náðu því, og að bestu landslið heims komi flest frá Evrópu. Þá muni HSÍ geta nýtt sér það hve margir Íslendingar fylgdu íslenska karlalandsliðinu á HM í Svíþjóð í janúar, og benda á að mótsstaðurinn í desember henti Íslendingum vel. Búast má við ákvörðun IHF í júní eða júlí.
Landslið kvenna í handbolta HSÍ HM kvenna í handbolta 2023 Mest lesið Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Lögreglumenn dulbjuggu sig sem lukkudýr HM fyrir fíkniefnaaðgerð Fótbolti Beckham fékk sína stjörnu á götuna frægu í Hollywood Fótbolti Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Siggi Raggi með NSÍ á toppnum Fótbolti „Ennþá er boltinn ekki að fara inn í markið“ Íslenski boltinn Uppgjör: FH komið á toppinn Fótbolti Katarmenn stálu stiginu með marki í uppbótartíma Fótbolti Uppgjörið: Valur – Þór/KA 0-0 | Markalaust í bragðdaufum leik á Hlíðarenda Fótbolti Fleiri fréttir Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Sjá meira