Skemmtileg rapp-viðbót en er blótað of mikið? SS 18. apríl 2023 11:00 Sprite Zero Klan dúettinn er skipaður Daníel og Kolbeini. Þeir eru fimmti flytjandinn sem er kynntur til sögunnar í Skúrnum. Dúettinn Sprite Zero Klan er skipaður félögunum Daníel og Kolbeini en þeir kynntust á göngum Kvennaskólans árið 2016 þar sem þeir stunduðu báðir nám. Þeir segjast hafa stofnað sveitina upphaflega í gríni sem YouTube rás með íþróttamyndböndum og fleiri skemmtilegum hlutum. Fljótlega byrjuðu þeir þó að búa til tónlist. „Þetta gerðist allt bara óvart og það má segja að Sprite Zero Klan hafi eiginlega verið grín sem fór of langt,“ segir Kolbeinn. „Við semjum allt okkar efni sjálfir,“ bætir Daníel við. „Svo reynum við að finna góðan farveg fyrir þessar hugmyndir hjá góðu fólki eins og lenskan er í tónlistinni.“ Skúrinn hóf göngu sína á Vísi í síðustu viku en þar keppa sex flytjendur um bestu nýju útgáfuna af gamla góða SS pylsulaginu auk þess sem þeir flytja einnig frumsamið lag. Klippa: Skúrinn - Leitin að nýja SS pylsulaginu: Fimmti þáttur Glöggir hlustendur heyra að það er talsvert meira blótað í þessari útgáfu SS pylsulagsins en öðrum lögum sem keppa í Skúrnum. „Það er svolítið blótað í laginu, það verður bara að segjast. Það er bara eitthvað sem kemur til okkar. Stundum hefur maður það mikið að segja að orðin gusast út úr manni. Og þetta er það kom út að þessu sinni, það er bara þannig. Listamaður á auðvitað aldrei að ritskoða sig, nema stundum. Klárlega stundum.“ Frumsamda lag þeirra félaga heitir Í góðum gír og kemur frá hjarta þeirra að eigin sögn: „Lagið er í takt við kjarnagildi bandsins sem er stuð og stemning, gaman og fjör. Innihald lagsins snýst um það að vera í góðum gír. Við leggjum mikið upp úr því að vera hressir, a.m.k. ekki fúlir.“ Sjötti og síðasti flytjandinn verður kynntur á morgun miðvikudag. Að loknum sjötta þætti seinni umferðar munu lesendur Vísis og dómnefnd velja besta nýja SS pylsulagið. Sigurvegarinn hlýtur að launum tvær milljónir króna, annað sætið hlýtur eina milljón og þriðja sætið fimm hundruð þúsund. Til viðbótar hljóta höfundar besta frumsamda lagsins eina milljón króna. Skúrinn Mest lesið Stjörnulífið: Undir hárlengingum og bótoxi leynist íslenskur karlmaður Lífið Einn mánuður án áfengis breytti öllu Lífið Sjálfið okkar: Þynnkan eftir mannamót (samt drakkstu ekki neitt!) Áskorun Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Lífið 50+: Má maður fagna því þegar börnin flytja að heiman? Áskorun Skemmtilega söguhornið: Hefði fólk skilið Óskar fyrir 100 árum síðan? Áskorun Eitt allra krúttlegasta mót ársins Lífið Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Lífið Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Lífið Myndin tileinkuð mömmu Lífið Fleiri fréttir Allt í ferðalagið og jafnvel það sem þú vissir ekki að þig vantaði Gleðibankinn fær nýjan búning í tilefni fertugsafmælis Gula miðans Úr verkfræðinni í listina: „Stundum verður maður bara að fylgja innsæinu“ Beint flug til Portó Daría fagnar tíu árum – úr lítilli snyrtivöruverslun í lífsstílsverslun Hlaupa fyrir Ljósið í Reykjavíkurmaraþoninu Harpa býður heim á 15 ára afmæli á Menningarnótt Bylgjan fagnar 40 árum með stórveislu á Menningarnótt Gamall klassíker fær helvíti góða yfirhalningu Golfmót FM957 Vinsælasta ABBA-sýning heims í Hörpu og Hofi „Ísland, biðin er á enda!“ Loksins hægt að panta ilmvötn á Boozt Allt undir einu þaki í hjarta Hafnarfjarðar „Ég hélt að ég þyrfti bara að harka af mér“ Afmælisbomba í Beautybox og verk Sögu Sig í pottinum Þurrsjampó eru ekki öll eins, svona velur þú réttu vöruna fyrir þitt hár Pylsur eins og þú hefur líklega aldrei grillað þær áður Frá jólamörkuðum Evrópu til ævintýra í Asíu og Afríku Grillaður Gaggalagú með leynisósu landsliðskokksins Sjá meira
Þeir segjast hafa stofnað sveitina upphaflega í gríni sem YouTube rás með íþróttamyndböndum og fleiri skemmtilegum hlutum. Fljótlega byrjuðu þeir þó að búa til tónlist. „Þetta gerðist allt bara óvart og það má segja að Sprite Zero Klan hafi eiginlega verið grín sem fór of langt,“ segir Kolbeinn. „Við semjum allt okkar efni sjálfir,“ bætir Daníel við. „Svo reynum við að finna góðan farveg fyrir þessar hugmyndir hjá góðu fólki eins og lenskan er í tónlistinni.“ Skúrinn hóf göngu sína á Vísi í síðustu viku en þar keppa sex flytjendur um bestu nýju útgáfuna af gamla góða SS pylsulaginu auk þess sem þeir flytja einnig frumsamið lag. Klippa: Skúrinn - Leitin að nýja SS pylsulaginu: Fimmti þáttur Glöggir hlustendur heyra að það er talsvert meira blótað í þessari útgáfu SS pylsulagsins en öðrum lögum sem keppa í Skúrnum. „Það er svolítið blótað í laginu, það verður bara að segjast. Það er bara eitthvað sem kemur til okkar. Stundum hefur maður það mikið að segja að orðin gusast út úr manni. Og þetta er það kom út að þessu sinni, það er bara þannig. Listamaður á auðvitað aldrei að ritskoða sig, nema stundum. Klárlega stundum.“ Frumsamda lag þeirra félaga heitir Í góðum gír og kemur frá hjarta þeirra að eigin sögn: „Lagið er í takt við kjarnagildi bandsins sem er stuð og stemning, gaman og fjör. Innihald lagsins snýst um það að vera í góðum gír. Við leggjum mikið upp úr því að vera hressir, a.m.k. ekki fúlir.“ Sjötti og síðasti flytjandinn verður kynntur á morgun miðvikudag. Að loknum sjötta þætti seinni umferðar munu lesendur Vísis og dómnefnd velja besta nýja SS pylsulagið. Sigurvegarinn hlýtur að launum tvær milljónir króna, annað sætið hlýtur eina milljón og þriðja sætið fimm hundruð þúsund. Til viðbótar hljóta höfundar besta frumsamda lagsins eina milljón króna.
Að loknum sjötta þætti seinni umferðar munu lesendur Vísis og dómnefnd velja besta nýja SS pylsulagið. Sigurvegarinn hlýtur að launum tvær milljónir króna, annað sætið hlýtur eina milljón og þriðja sætið fimm hundruð þúsund. Til viðbótar hljóta höfundar besta frumsamda lagsins eina milljón króna.
Skúrinn Mest lesið Stjörnulífið: Undir hárlengingum og bótoxi leynist íslenskur karlmaður Lífið Einn mánuður án áfengis breytti öllu Lífið Sjálfið okkar: Þynnkan eftir mannamót (samt drakkstu ekki neitt!) Áskorun Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Lífið 50+: Má maður fagna því þegar börnin flytja að heiman? Áskorun Skemmtilega söguhornið: Hefði fólk skilið Óskar fyrir 100 árum síðan? Áskorun Eitt allra krúttlegasta mót ársins Lífið Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Lífið Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Lífið Myndin tileinkuð mömmu Lífið Fleiri fréttir Allt í ferðalagið og jafnvel það sem þú vissir ekki að þig vantaði Gleðibankinn fær nýjan búning í tilefni fertugsafmælis Gula miðans Úr verkfræðinni í listina: „Stundum verður maður bara að fylgja innsæinu“ Beint flug til Portó Daría fagnar tíu árum – úr lítilli snyrtivöruverslun í lífsstílsverslun Hlaupa fyrir Ljósið í Reykjavíkurmaraþoninu Harpa býður heim á 15 ára afmæli á Menningarnótt Bylgjan fagnar 40 árum með stórveislu á Menningarnótt Gamall klassíker fær helvíti góða yfirhalningu Golfmót FM957 Vinsælasta ABBA-sýning heims í Hörpu og Hofi „Ísland, biðin er á enda!“ Loksins hægt að panta ilmvötn á Boozt Allt undir einu þaki í hjarta Hafnarfjarðar „Ég hélt að ég þyrfti bara að harka af mér“ Afmælisbomba í Beautybox og verk Sögu Sig í pottinum Þurrsjampó eru ekki öll eins, svona velur þú réttu vöruna fyrir þitt hár Pylsur eins og þú hefur líklega aldrei grillað þær áður Frá jólamörkuðum Evrópu til ævintýra í Asíu og Afríku Grillaður Gaggalagú með leynisósu landsliðskokksins Sjá meira