Um 18 þúsund kýr drápust eftir sprengingu í Texas Atli Ísleifsson skrifar 13. apríl 2023 07:31 Sprengingin varð á mánudaginn. Castro County EM Áætlað er að um 18 þúsund kýr hafi drepist í sprengingu og eldsvoða á kúabúi í Texas á mánudag.
USA Today segir að mögulega sé um að ræða mesta staka kúadauða í sögunni. Þar segir að eldurinn hafi verið fljótur að dreifast á búinu þar sem þúsundir kúa hafi verið í básum sínum og beðið þess að verða mjólkaðar. Eftir að tókst að ráða niðurlögum eldsins á kúabúinu South Fork í Dimmitt í Texas rak embættismenn í rogastans að sjá fjölda þeirra kúa sem hafði farist í sprengingunni og eldsvoðanum sem fylgdi. Starfsmaður kúabúsins var fluttur á sjúkrahús en er ekki talinn alvarlega slasaður. Talið er að bilun í tæknibúnaði hafi valdið sprengingunni. Kúabúið hóf starfsemi fyrir þremur árum síðan og starfa þar milli fimmtíu og sextíu manns. Áætlað er að um 90 prósent kúa á búinu hafi drepist í eldsvoðanum.
Bandaríkin Mest lesið Á sjötta tug vísað úr landi Innlent Fyrsta vindmyllulestin um Suðurland í nótt Innlent Birta bréf sem Epstein á að hafa skrifað áður en hann lést Erlent Telur forsætisnefnd hafa brotið á sér og leitar réttar síns Innlent „Hlutirnir eru málaðir upp eins og allt sé að fara í kaldakol“ Innlent Deilir djúpfalsaðri mynd af sér sjálfri til að vara aðra við Erlent Þrír fluttir til Hollands og hantaveiruskipið á leið til Tenerife Erlent Minnst ánægja þar sem sorphirða er ekki boðin út Innlent Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu Innlent „Við erum bara komin aftur í Icesave-tímann“ Innlent Fleiri fréttir Birta bréf sem Epstein á að hafa skrifað áður en hann lést Þrír fluttir til Hollands og hantaveiruskipið á leið til Tenerife Deilir djúpfalsaðri mynd af sér sjálfri til að vara aðra við Gerðu árás á Beirút í fyrsta skipti eftir að vopnahlé tók gildi Ted Turner er látinn Segja Bandaríkin enn með óásættanlegar kröfur Telja sig hafa fundið lofthjúp utan um örreikistjörnu handan við Plútó Íslendingar mótmæla við skála Rússa á Feneyjatvíæringnum Vilja ekki fá hantaveiruskipið til Kanaríeyja Telja samkomulag líklegt á næstu dögum Engin ríkisstjórn enn og stefnir í met Stefna á að hýða eineltisseggi í Singapúr Fjórar „brúðir ISIS“ snúa aftur til Ástralíu Hantaveiruskipið á leið til Kanarí og kemur ekki til Íslands Gerir hlé á „frelsisaðgerðum“ í Hormússundi Segja vopnahléið enn í gildi þrátt fyrir árásir Dansar við úlfa-leikari dæmdur í lífstíðarfangelsi Hundruð þúsunda krefjast atkvæðagreiðslu um sjálfstæði Alberta Sífellt meira einangraður: Heldur til í neðanjarðarbyrgjum af ótta við banatilræði Vopnahléið hangir á bláþræði Tugir látnir eftir sprengingu í flugeldaverksmiðju Bandaríski sjóherinn vildi taka skip á leigu og gera út til Grænlands Minnst einn lést þegar keyrt var inn í mannfjölda í Leipzig Líkja forseta Taívan við rottu vegna Afríkuferðar Segjast hafa skotið á bandarískt herskip Giuliani á sjúkrahúsi í alvarlegu ástandi Japanir mótmæla fyrirhuguðum breytingum á stjórnarskránni Boðar „frelsisaðgerðir“ til að koma skipum um sundið Þrír taldir hafa látist vegna hantaveirusmits Talinn hafa stungið þann þriðja fyrr um daginn Sjá meira