Magdeburg mistókst að ná toppsætinu Smári Jökull Jónsson skrifar 2. apríl 2023 14:02 Gísli Þorgeir átti frábæran leik fyrir Magdeburg í dag. Vísir/Getty Melsungen tók á móti Magdeburg í Íslendingaslag í þýska handboltanum í dag. Magdeburg tryggði sér stig með marki úr vítakasti eftir að leiktíminn var liðinn.
Fyrir leikinn í dag var Magdeburg í þriðja sæti þýsku deildarinnar, einu stigi á eftir Kiel en tveimur á eftir toppliði Fusche Berlin. Melsungen, sem Arnar Freyr Arnarsson og Elvar Örn Jónsson var hins vegar um miðja deild. Magdeburg þurfti því nauðsynlega á stigum að halda í baráttunni um titilinn en það voru heimamenn í Melsungen sem byrjuðu betur og komust meðal annars í 6-3 í upphafi leiks. Gestirnir sáu þó til þess að munurinn varð ekki meiri en Melsungen leiddi 16-13 í hálfleik. Í síðari hálfleik hélt sama baráttan áfram. Í stöðunni 18-14 fyrir Melsungen náði Magdeburg 8-2 kafla og komst í tveggja marka forystu. Melsungen náði hins vegar að jafna á ný og komast yfir og eftir það var jafnt á öllum tölum. David Mandic kom Melsungen í 27-26 þegar fjörtíu sekúndur voru eftir en á lokasekúndunni fékk lið Magdeburg vítakast sem Kay Smits skoraði úr. Niðurstaðan 27-27 og bæði lið eflaust svekkt með niðurstöðuna. Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði fimm mörk fyrir Magdeburg í leiknum og gaf þar að auki tvær stoðsendingar. Elvar Örn skoraði þrjú mörk fyrir heimamenn en Arnar Freyr Arnarsson komst ekki á blað.
Þýski handboltinn Mest lesið Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Bræður bættu stigamet pabba þeirra Körfubolti KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Íslenski boltinn Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Fótbolti Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Körfubolti „Guð morning!“ Enski boltinn „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Íslenski boltinn Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Körfubolti Fleiri fréttir Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Reynir Þór með stórleik í þýsku Bundesligunni Ísland-Pólland 34-35 | Naumt tap á móti Pólverjum FH-ingar sóttu tvö stig í Kórinn Valsmenn með þriðja sigurinn í röð HSÍ gat ekki styrkt Sérsveitina: Fékk yfir þrjár milljónir í fyrra Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Sjá meira