Læknir áminntur fyrir að gefa út vottorð fyrir dýralyfi gegn Covid Kjartan Kjartansson skrifar 30. mars 2023 09:58 Ivermerctin er bæði til fyrir menn og dýr. Stungulyfið sem læknirinn gaf út vottorð fyrir er gefið dýrum eins og hestum gegn snýkjudýrum. Vísir/Getty Heilbrigðisráðuneytið staðfesti áminningu sem embætti landlæknis veitti heimilislækni fyrir að gefa út rangt og villandi læknisvottorð fyrir sjúkling sem flutti inn dýralyf sem fyrirbyggjandi meðferð við Covid-19. Læknirinn bar fyrir sig að hann vissi ekki að lyfið væri ætlað dýrum en ekki mönnum.
Embætti landlæknis barst tilkynning um að tollayfirvöld hefðu stöðvað sendingu einstaklings sem innihélt stungulyf fyrir dýr í desember árið 2021. Virka efni þess var ivermerctin en það er lyf sem samsæriskenningasinnar um kórónuveirufaraldurinn héldu á lofti sem fyrirbyggjandi meðferð við Covid-19. Engin gögn styðja þá virkni lyfsins og bandaríska lyfjastofnunin segir beinlínis hættulegt að taka dýraútgáfu lyfsins sem fyrirbyggjandi meðferð við Covid-19. Dæmi eru um að fólk hafi látist af þekktum aukaverkunum þess. Sá sem pantaði lyfið til landsins framvísaði læknisvottorði heimilislæknisins sem gaf til kynna að sjúklingurinn ætlaði að nota lyfið fyrir sjálfan sig en ekki dýr. Niðurstaða landlæknis var að heimilislæknirinn hefði gefið út rangt og villandi læknisvottorð sem hefði getað falið í sér hættu fyrir sjúklinginn. Þannig hefði læknirinn brotið alvarlega gegn starfsskyldum sínum sem læknir. Læknirinn var áminntur á þeim forsendum. Heimilislæknirinn kærði ákvörðun embættis landlæknis til heilbrigðisráðuneytisins. Hún vægi að starfsheiðri hans og æru og takmarkaði jafnvel atvinnumöguleika hans að einhverju leyti. Kæran byggði meðal annars á að embættið hefði ekki rannsakað máli til hlítar. Varð við beiðninni vegna andlegrar líðanar Læknirinn sagði að sjúklingurinn hefði leitað til sín einu sinni og óskaði eftir því að hann ritaði vottorð. Sjúklingurinn hefði að eigin sögn notað ivermerctin yfir lengri tíma sem fyrirbyggjandi meðferð við Covid-19. Hann hefði pantað lyfið erlendis frá en tollgæsluyfirvöld hefðu stöðvað sendingu á því, eins og rakið er í úrskurði heilbrigðisráðuneytisins. Sjúklingurinn hafi þjáðst af mikilli vanlíðan, kvíða og áhyggjum vegna faraldursins. Læknirinn sagðist hafa bent honum sérstaklega á að ivermerctin-meðferð væri ekki virk gegn Covid-19 og aukaverkanir lyfsins. Í ljósi andlegrar líðanar sjúklingsins hafi læknirinn talið rétt að koma til móts við óskir hans og rita vottorðið. Byggði læknirinn á að vottorðið hefði þannig verið gefið út samkvæmt brýnni beiðni sjúklings hans og að í því hafi aðeins falist yfirlýsing hans sem læknis um að sjúklingurinn hefði langa reynslu af notkun lyfsins með góðum heilsufarslegum árangri. Læknirinn hafi verið í góðri trú um að lyfið teldist ætlað mönnum en ekki dýrum. Hann hafi byggt þá afstöðu á lyfjaskrám og öðrum upplýsingagrunnum auk afdráttarlausra staðhæfinga sjúklingsins sjálfs sem hafi lagt fast að honum að gefa út vottorðið. Skráði engin fyrirmæli um inntöku eða skammta Embætti landlæknis gaf lítið fyrir þær mótbárur læknisins. Honum hafi borið að vita hvað hann væri að votta og hann hafi borið ábyrgð samkvæmt því. Að öðrum kosti væri um að ræða vanrækslu á starfsskyldum. Læknirinn gæti ekki borið fyrir sig að hann hefði verið í góðri trú og varpað þannig lagalegri ábyrgð sinni á að kynna sér betur hvað hann vottaði á sjúklinginn. Með vottorði sínu hafi læknirinn skrifað upp á lyf sem í raun var ætlað dýrum og hafi þar vottað að sjúklingurinn þyrfti á því að halda og að það væri til eigin nota sjúklingsins. Þetta hafi hann gert þrátt fyrir að hann hefði kynnt sér áreiðanleika og gagnsemi lyfsins eins og hann staðhæfði í kæru. Fyrirliggjandi gögn í málinu sýndu á hinn bóginn með engu móti að vottorðið hefði verið byggt á vel ígrunduðum upplýsingum og ákvarðanatöku sem byggð væri á læknisfræðilegum viðurkenndum grunni vísinda og staðfestrar reynslu. „Það sé mat embættisins að kærandi hafi hvorki við meðferð eftirlitsmálsins né í kærunni komið fram með marktæk eða trúverðug rök eða upplýsingar sem réttlæti útgáfu og gerð vottorðsins á nokkurn hátt. Þvert á móti megi leiða rök að því að með því að athuga ekki hvaða lyf sjúklingurinn hygðist flytja inn og hvort það hentaði til notkunar þeirrar sem sjúklingurinn og kærandi ætluðu, hafi kærandi ýtt undir hættu á rangri notkun og skömmtun stungulyfs sem ætlað er dýrum,“ sagði í umsögn landlæknisembættisins um kæru læknisins. Læknirinn skráði hvorki fyrirmæli né leiðbeiningar til sjúklingsins varðandi inntöku, skammta, hugsanlegar aukaverkanir eða viðbrögð við óæskilegum einkennum sem bent gætu til eitrunar, fylgikvilla eða aukaverkana. Markaðsleyfi fyrir ivermerctin fyrir menn nær yfir meðferð við sýkningum af völdum orma, lúsa og húðsjúkdóma eins og rósroða.Vísir/Getty Gekk bersýnilega ekki úr skugga um hvaða lyf hann vottaði Heilbrigðisráðuneytið hafnaði rökum í kæru læknisins. Ekkert hefði komið fram sem gæfi tilefni til þess að fella ákvörðun embættis landlæknis um áminningu úr gildi. Ekki yrði litið fram hjá því við mat á alvarleika brotsins að lyfið sem læknirinn skrifaði upp á var dýralyf. Því hafi læknirinn bersýnilega ekki gengið úr skugga um hvaða lyf hann hefði vottað. Því taldi ráðuneytið að vægara úrræði eins og tilmæli hefði ekki náð settu markmiði.
Lyf Heilbrigðismál Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Hestar Stjórnsýsla Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Ákærður fyrir banatilræði við Trump Erlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Innlent „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Innlent Óvenjulegu tímabili að ljúka Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Fleiri fréttir „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Sjá meira