Sú besta á EM missir að öllum líkindum af HM Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 29. mars 2023 07:01 Beth Mead var valin besti leikmaður EM síðasta sumar, en hún missir að öllum líkindum af HM. Naomi Baker/Getty Images Enska knattspyrnukonan Beth Mead, sem var valin besti leikmaður Evrópumóts kvenna síðasta sumar er Englendingar tryggðu sér Evrópumeistaratitilinn, verður að öllum líkindum ekki með enska liðinu þegar HM í Ástralíu og Nýja-Sjálandi fer fram í sumar.
Þetta segir þjálfari liðsins, Sarina Wiegman, en Mead sleit krossband í nóvember á síðasta ári. Heimsmeistaramótið í Ástralíu og Nýja-Sjálandi hefst þann 20. júlí næstkomandi, og fyrsti leikur enska liðsins er gegn Haíti tveimur dögum síðar. „Við erum bara raunsæ og hún er mjög raunsæ,“ sagði Wiegman um stöðuna á Mead í dag. „Eins og staðan er núna er hún ekki hluti af okkar plönum því hún þarf að taka sér tíma í að ná sér að fullu. Ef að kraftaverkið gerist og hún nær sér nógu fljótt þá munum við auðvitað endurskoða það, en eins og staðan er núna býst ég ekki við því.“ Enska liðið tekur á móti Brasilíu í vináttuleik þann 5. apríl næstkomandi áður en liðið fær Ástralíu í heimsókn fimm dögum síðar. Verða það seinustu tveir æfingaleikir liðsins fyrir HM. „Hún er komin mjög langt í sinni endurhæfingu,“ bætti Wiegman við. „En ef þú horfir á þann tíma sem það tekur venjulega að ná sér af svona meiðslum þá er hún ekki að fara að ná HM.“ „Við erum búin að ræða þetta við hana. Við munum ekki taka neinar áhættur sem gætu orðið til þess að hún meiðist aftur. Auðvitað vill hún spila, en hún veit hver staðan er.“
HM 2023 í Ástralíu og Nýja-Sjálandi Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Liverpool - Arsenal | Englandsmeistararnir mæta í Bítlaborgina Sport Segir félagið í skítnum Enski boltinn Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Fleiri fréttir Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Andreulegt upplegg í sigri Anderlecht Dramatík í stórleiknum í Þýskalandi Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Njarðvík sagði upp samningi við Smit Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Freyr að eignast markakóng eftir enn einn sigurinn Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sjá meira