Fullnaðarsigur Eflingar í félagatalsdeilu við sáttasemjara Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 13. febrúar 2023 15:30 Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar fagnar sigri í dómsmáli sínu gegn sáttasemjara. Vísir/Vilhelm Landsréttur hefur komist að þeirri niðurstöðu að Efling þurfi ekki að afhenda ríkissáttasemjara félagatal sitt. Þetta staðfestir lögmaður Eflingar í samtali við fréttastofu.
Í niðurstöðu Landsréttar segir að ákvæði laganna kvæðu ekki á um heimild ríkissáttasemjara til að fá kjörskrá Eflingar afhenta. Það myndi raunar ganga gegn tilgangi laga. Þá taldi Landsréttur að atkvæðagreiðsla um miðlunartillögu fæli í sér inngrip í samningsrétt stéttarfélaga og atvinnurekenda sem nyti verndar af stjórnarskrá og Mannréttindasáttmála Evrópu. Var ekki fallist á að sáttasemjari ætti lögbundið tilkall til umráða yfir kjörskrána. Unnu saman að flýtimeðferð Aðalsteinn Leifsson ríkissáttasemjari lagði sem kunnugt er fram miðlunartillögu í deilu Eflingar við Samtök atvinnulífsins sem komin var í algjöran hnút. Var hún á þann veg að allir félagsmenn Eflingar skyldu greiða atkvæði um kjarasamning til eins árs með sambærilegum kjörum og afturvirkni og félagsmenn Starfsgreinsambandsins og VR. Krafðist sáttasemjari að Efling afhenti félagatal sitt svo hægt væri að hefja atkvæðagreiðslu. Því hafnaði Efling og ákvað sáttasemjari því að stefna Eflingu. Héraðsdómur Reykjavíkur komst að þeirri niðurstöðu að Efling ætti að láta félagatal sitt af hendi. Réttaráhrifum skyldi ekki fresta þótt úrskurðurinn yrði kærður til Landsréttar. Aðalsteinn Leifsson er ríkissáttasemjari. Ekki hefur náðst í hann við vinnslu fréttarinnar.Vísir/Vilhelm Sólveig Anna og félagar í Eflingu kærðu úrskurðinn og neituðu að afhenda félagatalið. Sáttasemjari hugðist leita til sýslumanns og gera aðfararbeiðni til að starfsmenn sýslumanns myndu ná í félagatalið með valdi. Fór svo að samkomulag tókst með Eflingu og sáttasemjara um að leggja sitt af mörkum til að málið hlyti flýtimeðferð í Landsrétti. Varð samkomulag að staðfesti Landsréttur úrskurðinn úr héraði myndi Efling láta félagatal sitt af hendi. Málið fékk flýtimeðferð og var úrskurður kveðinn upp í dag, Eflingu í vil. Niðurstaðan er sú að Eflingu er ekki skylt að afhenda ríkissáttasemjara kjörskrá sína. Dómararnir hafi kynnt sér málið vel „Þetta er versti áfellisdómur yfir vinnubrögðum ríkissáttasemjara sem hægt var að hugsa sér. Ég treysti því að íslenska ríkið taki rækilega til í sínum ranni gagnvart kjaradeilu Eflingar og SA í ljósi þessarar niðurstöðu. Við krefjumst þess að Aðalsteinn Leifsson verði látinn segja sig samstundis frá deilunni. Við fögnum þessari niðurstöðu innilega,“ segir Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar í tilkynningu. Rætt er við Sólveigu Önnu hér að neðan. Daníel Isebarn Ágústsson, lögmaður Eflingar, segir um fullnaðarsigur að ræða fyrir Eflingu. Ríkissáttasemjari hafi farið langt út fyrir sínar heimildir með því að krefja Eflingu um félagatal sitt. Hann segir niðurstöðu Landsréttar vel rökstudda og skýra. Dómararnir þrír hafi greinilega nýtt helgina vel til að kynna sér málið og sögu lagaákvæðanna. Aðspurður hvaða áhrif þetta hafi á miðlunartillögu ríkissáttasemjara minnir hann á að Efling hafi vísað þeirri ákvörðun til héraðsdóms til að fá á hreint hvort hún væri lögmæt. Það hafi verið stóra málið hjá Eflingu að fá úr því skorið. Beiðni um flýtimeðferð hafi verið hafnað eftir niðurstöðu héraðsdóms um að Efling ætti að afhenda félagatalið. Verkfallslota tvö á miðvikudaginn Verkfall tæplega sjö hundruð starfsmanna á sjö hótelum Íslandshótela í Reykjavík hófst í síðustu viku. Á miðvikudaginn hefst svo verkfall olíubílstjóra og fleiri hótelstarfsmanna sem talið er að gæti haft mikil áhrif á aðgengi að bensíni á höfuðborgarsvæðinu. Þá var tilkynnt í dag um að fram undan væri atkvæðagreiðsla meðal um 1650 félagsmanna Eflingar sem starfa á hótelum, við öryggisgæslu og við ræstingar. Það verkfall tæki gildi í næstu viku. Þá virðist kominn á friður á milli Eflingar og Íslandshótela varðandi verkfallsvörslu sem stuggur hefur staðið um. Efling sinnir verkfallsvörslu án þess sem verkfallsvörðum sé fylgt eftir. Á sama tíma lofar Eflingar að ónáða ekki gesti á hótelunum. Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, sagði á Sprengisandi á Bylgjunni í gær engan tilgang með verkföllum Eflingar sem stæðu yfir á meðan niðurstaða í Landsrétti lægi ekki fyrir. „Það eru engir samningafundir boðaðir. Ríkissáttasemjari boðaði samningafund í síðustu viku en Efling neitaði að mæta á þann fund. Þetta skiptir algeru höfuðmáli í þessari umræðu. Vegna þess að tilgangur og eðli verkfalla er til þes að knýja samningsaðila sinn til gerðar kjarasamnings en það eru engir fundir í þessari deilu. Það eina sem aðilar eru að bíða eftir Kristján er úrskurður Landsréttar þar sem Efling skaut áfram dómi héraðsdóms til Landsréttar og þegar að sá úrskurður liggur fyrir þá liggur fyrir hver verður framvinda þessarar vinnudeilu,“ sagði Halldór Benjamín. Nú liggur sú niðurstaða fyrir. Uppfært klukkan 16:45 Fyrirsögn var breytt þar sem Aðalsteinn Leifsson segir ekki rétt haft eftir lögmanni Eflingar um að sáttasemjari hafi farið langt út fyrir sínar heimildir. Það komi skýrt fram í úrskurði Landsréttar. Tengd skjöl ÚrskurðurEflingSáttasemjariPDF121KBSækja skjal
Kjaraviðræður 2022-23 Kjaramál Tengdar fréttir Efling boðar til atkvæðagreiðslu um verkfall tæplega 1700 manns Samninganefnd Eflingar samþykkti einróma á fundi sínum í gær 12. febrúar þrjár verkfallsboðanir. Þær ná til starfsfólks á hótelum, öryggisfyrirtækjum og ræstingarfyrirtækja. 13. febrúar 2023 12:38 Löng bið eftir bensíni hjá Costco Svo virðist sem íbúar á höfuðborgarsvæðinu séu byrjaðir að fylla á bíla sína í ljósi verkfalls olíubílstjóra sem hefst að óbreyttu á miðvikudag. Löng röð hefur verið í Costco í Kauptúni í Garðabæ í morgun eftir bensíni. 13. febrúar 2023 11:28 Munu ekki ónáða gesti og öryggisverðir fylgi ekki verkfallsvörðum Forsvarsmenn Eflingar og Íslandshótela hafa náð samkomulagi um framkvæmd verkfallsvörslu á hótelum Íslandshótela. 13. febrúar 2023 09:46 Mest lesið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Erlent Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Erlent Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Erlent Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Innlent Fleiri fréttir Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Sjá meira
Efling boðar til atkvæðagreiðslu um verkfall tæplega 1700 manns Samninganefnd Eflingar samþykkti einróma á fundi sínum í gær 12. febrúar þrjár verkfallsboðanir. Þær ná til starfsfólks á hótelum, öryggisfyrirtækjum og ræstingarfyrirtækja. 13. febrúar 2023 12:38
Löng bið eftir bensíni hjá Costco Svo virðist sem íbúar á höfuðborgarsvæðinu séu byrjaðir að fylla á bíla sína í ljósi verkfalls olíubílstjóra sem hefst að óbreyttu á miðvikudag. Löng röð hefur verið í Costco í Kauptúni í Garðabæ í morgun eftir bensíni. 13. febrúar 2023 11:28
Munu ekki ónáða gesti og öryggisverðir fylgi ekki verkfallsvörðum Forsvarsmenn Eflingar og Íslandshótela hafa náð samkomulagi um framkvæmd verkfallsvörslu á hótelum Íslandshótela. 13. febrúar 2023 09:46