Aron atkvæðamikill þegar Álaborg gerði jafntefli við Kiel Smári Jökull Jónsson skrifar 2. nóvember 2022 21:31 Aron skoraði sex mörk í kvöld gegn gömlu félögunum. Álaborg Aron Pálmarsson skoraði sex mörg fyrir lið Álaborgar þegar liðið gerði jafntefli við Kiel í Meistaradeildinni í handknattleik í kvöld.
Fyrir leikinn í kvöld var Álaborg með sex stig í B-riðli Meistaradeildarinnar eftir þrjá sigra gegn Celje Lasko, Elverum og Pick Szeged. Kiel var hins vegar sæti neðar með tvo sigra í fimm leikjum. Jafnt var í upphafi leiks en Álaborg náði frumkvæðinu fljótlega og komst þremur mörkum yfir í stöðunni 9-6. Þeir leiddu lengst af í fyrri hálfleik en heimamenn í Kiel skoruðu fjögur af síðustu fimm mörkum fyrri hálfleiks og voru einu marki yfir í leikhléi, staðan þá 17-16. Síðari hálfleikur þróaðist á svipaðan hátt. Álaborg var skrefinu á undan en Kiel hélt alltaf í við þá. Þegar rétt um tíu mínútur voru eftir komst Kiel síðan yfir í stöðunni 30-29 og tveimur mörkum yfir skömmu síðar. RESULT: No winner in Kiel! @thw_handball and #AalborgHaandbold split the points after a hard fought battle that ends 36:36 #ehfcl pic.twitter.com/Iu3mUcJjx9— EHF Champions League (@ehfcl) November 2, 2022 En Aron Pálmarsson og félagar gáfust ekki upp. Aron jafnaði í 35-35 þegar réttar tvær mínútur voru eftir en Nikola Bilyk kom Kiel yfir á ný þegar rúm mínúta var eftir. Það var hins vegar Sebastian Barthold sem skoraði síðasta mark leiksins þegar 34 sekúndur voru eftir, lokatölur 36-36. Aron Pálmarsson skoraði sex mörk fyrir Álaborg í kvöld og var næst markahæstur leikmanna liðsins á eftir Mikkel Hansen sem var markahæstur með sjö mörk. Hjá Kiel skoraði Eric Johansson níu mörk og áðurnefndur Nikola Bilyk sjö.
Meistaradeild Evrópu í handbolta karla Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Enski boltinn Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Segir félagið í skítnum Enski boltinn Fleiri fréttir Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Atli Steinn kláraði Stjörnuna Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik „Sóknarleikurinn vel smurður“ Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Fimmti sigur Eyjakvenna í röð Fjórði sigur Valskvenna í röð Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Sjá meira