Þungbúið vestantil og fallegur haustdagur í vændum fyrir austan Atli Ísleifsson skrifar 19. október 2022 07:13 Hiti yfirleitt á bilinu þrjú til átta stig. Vísir/Vilhelm Útlit er fyrir áframhaldandi suðvestanátt í dag. Má reikna með fimm til tíu metrum á sekúndu víðast en tíu til fimmtán metrar á sekúndu um landið norðvestanvert.
Á vef Veðurstofunnar kemur fram að ávestanverðu landinu verði þungbúið og dálítil súld eða rigning. „Á austurhelmingi landsins verður hins vegar léttskýjað og fallegur haustdagar í vændum þar. Hiti yfirleitt á bilinu 3 til 8 stig. Á morgun snýst í austlæga átt, en vindur hægur víðast hvar. Það rofar til vestanlands og ætti að sjást til sólar þar þegar kemur fram á daginn. Smáskúrir verða viðloðandi nærri suðurströndinni á morgun og þegar líða fer að kvöldi færast ský yfir austan- og norðanvert landið. Útlit er fyrir að það verði eilítið kaldara á morgun en í dag,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á fimmtudag: Snýst í austan 3-8 m/s, en 8-13 við suðurströndina. Skýjað með köflum og yfirleitt þurrt. Hiti 1 til 6 stig, en vægt frost norðaustanlands. Á föstudag: Norðaustan 3-8, skýjað og dálítil él við norður- og austurströndina, en bjartviðri suðvestanlands. Hiti 0 til 6 stig, en vægt frost í innsveitum. Á laugardag (fyrsti vetrardagur): Hæg suðlæg eða breytileg átt, skýjað með köflum og dálítil væta syðst. Hiti 1 til 5 stig á Suður- og Vesturlandi, annars um eða undir frostmarki. Á sunnudag: Suðaustan 5-15, hvassast vestast á landinu. Lítilsháttar væta sunnan- og vestanlands, en bjartviðri á Norður- og Austurlandi. Hiti 1 til 7 stig. Á mánudag og þriðjudag: Austlæg eða breytileg átt og rigning með köflum í flestum landshlutum. Hlýnar heldur í veðri.
Veður Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Fleiri fréttir Blautur dagur í flestum landshlutum Lægðin fyrr á ferðinni Norðan kaldi og snjókoma til fjalla Lægðardrag á leiðinni Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Krapi og hálkublettir víða Skafið og saltað Engar viðvaranir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Sjá meira