Ekki bjartsýnn á að sættir náist Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 12. október 2022 18:58 Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segir að það eigi eftir að koma í ljóst hvort að Efling og VR myndu vinna saman í komandi kjaraviðræðum. Vísir/Vilhelm Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segist ekki vera bjartsýnn á að sátt náist á vettvangi Alþýðusambandsins á milli þeirra sem gengu út af þingi sambandsins í gær og þeirra sem eftir sitja. Hann segir engin bandalög utan ASÍ hafa verið mynduð.
Sem kunnugt er hættu Ragnar Þór, Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar og Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins við framboð þeirra til miðstjórnar Alþýðusambands Íslands. Þau, ásamt fjölmörgum félögum sinna félaga, gengu út af þinginu. Ákveðið var í dag af þeim eftir sitja að fresta þinginu um hálft ár. Það þýðir að sitjandi forseti Kristján Þórður Snæbjarnarson, mun sinna því starfi þangað til næsta þing verður haldið. Hann hefur sagst treysta sér til að ná sáttum innan sambandsins. Ragnar Þór var í beinni útsendingu í kvöldfréttum Stöðvar 2 í kvöld þar sem Heimir Már Pétursson fréttamaður spurði Ragnar Þór hvort að einhverjar líkur væru á því að sættir myndi nást á milli þeirra sem gengu út í gær og þeirra sem eftir sátu þannig að þau gætu áfram starfað saman innan vettvangs ASÍ, mögulega fyrir kjaraviðræðna lotu sem þegar er hafin. „Ég er ekki bjartsýnn á það. Ég er búinn að taka ákvörðun hvað varðar mína aðkomu að Alþýðusambandinu. Svo er þetta svolítið eins og spyrja einhvern sem var á fyllerí í gær hvort hann ætli að drekka í dag. Þetta er alls ekki tímabært að fara að ræða þessa hluti á þessu stigi. En ég er búinn að taka mína ákvörðun og hún stendur,“ sagði Ragnar Þór. Bjartsýnn á að hægt sé að breikka hópinn Aðspurður hvort að einhver blokk utan ASÍ væri að myndast sagðist Ragnar Þór vera bjartsýnn á það að hægt væri að breikka hópinn fyrir kjarasamningana, líkt og hann orðaði það. „Við vorum byrjuð að þreifa fyrir okkur fyrir þing, meðal annars með iðnaðarmönnum og starfsgreinafélögunum. Það var bara mjög góður andi í því spjalli þannig að ég er bara nokkuð bjartsýnn á að við náum að breikka hópinn fyrir kjarasamningana,“ sagði Ragnar Þór. Aðspurður sérstaklega um hvort að VR og Efling hyggðust vinna saman sagði Ragnar Þór að engar viðræður um slíkt hefðu farið fram. Slíkt ætti eftir að koma í ljós. Ragnar Þór var einnig spurður hvort að í raun hafi verið einhver ástæða fyrir þau að ganga út af þinginu, hvort þau hefðu ekki bara átt að taka slaginn þrátt fyrir hvassa umræðu og una þeirri niðurstöðu sem kæmi út úr þinginu. „Jújú, en þetta snerist í raun ekki um það. Þetta snerist um val. Að vera inn í þessu umhverfi. Ég hafði í raun val um að fara aftur í VR og vinna með mínu frábæra fólki og ég bara tók þessa ákvörðun. Ég ákvað að láta ekki bjóða mér þessa framkomu lengur.“
ASÍ Kjaramál Vinnumarkaður Stéttarfélög Tengdar fréttir Segir Ólöfu Helgu veruleikafirrta og valdsjúka Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar segir Ólöfu Helgu Adolfsdóttur, frambjóðanda til forseta ASÍ, veruleikafirrta. Sólveig hafnar því að hún og félagar Eflingar viðstaddir þingi ASÍ hafi strunsað út af þinginu. Hún segir að þau hafi fylkt liði í samstöðu hvert við annað. 12. október 2022 12:45 Vonast til að hægt verði að lægja öldurnar fyrir kjaraviðræður Búast má við hörðum framboðsslag á þingi Alþýðusambandsins sem hófst í dag. Tvær fylkingar takast á en settur forseti sambandsins vonast til að hægt verði að sætta hópana í mikilvægum málefnum og marka stefnu fyrir komandi kjaraviðræður. 10. október 2022 11:50 Þingi ASÍ frestað með þorra atkvæða Þingi ASÍ var rétt í þessu frestað fram á næsta vor með þorra atkvæða. Tillagan var samþykkt með 183 atkvæðum þingfulltrúa gegn 20. Kristján Þórður Snæbjarnarson, formaður Rafiðnaðarsambands Íslands, verður því áfram forseti sambandsins. Ólöf Helga Adolfsdóttir, ritari stjórnar Eflingar, sem bauð sig fram til forseta sambandsins, greiddi atkvæði gegn tillögunni. 12. október 2022 11:28 Verkalýðsfélögin sundruð til viðræðna við stjórnvöld Verkalýðsfélögin á almenna vinnumarkaðnum koma að óbreyttu sundruð til viðræðna við stjórnvöld í tengslum við komandi kjarasamninga. Starfandi forseti Alþýðusambandsins segir það skyldu sína að reyna að ná sáttum við þau stóru stéttarfélög sem gengu af þingi sambandsins, sem í dag var frestað fram á næsta vor. 12. október 2022 19:40 Mest lesið Var vöruð við dögum áður en henni var rænt Erlent Mesta kvikusöfnun til þessa Innlent Ætla að fara fram á frávísun málsins Innlent „Kostuðu páskaeggin sjö hundruð þúsund krónur?!“ Innlent Engin egg í Skaftahlíðina Innlent Veiðimenn klæði sig í föðurlandið á morgun Innlent „Hann er bara dáinn“: Telur að mistök hafi verið gerð hjá Neyðarlínunni Innlent Fyrsti mótframbjóðandi formannsins rekinn af skrifstofunni Innlent „Ég stend ekki hér út af minni fortíð“ Innlent Maðurinn er kominn í leitirnar Innlent Fleiri fréttir Veiðimenn klæði sig í föðurlandið á morgun Mesta kvikusöfnun til þessa Maðurinn er kominn í leitirnar „Ég stend ekki hér út af minni fortíð“ Tengdust þjófnaðinum ekki á nokkurn hátt Ætla að fara fram á frávísun málsins Handteknir eftir vopnaða líkamsárás Engin egg í Skaftahlíðina Stöðvuðu ferðamenn sem reyndust ekkert grunsamlegir Logi hleypur í skarðið fyrir Jóhann Pál Guðmundur Ingi leiðir Flokk fólksins Bein útsending: Flokkur fólksins kynnir efstu fimm Vilja 140 milljarða skattalækkun og sölu ríkiseigna fyrir 680 milljarða Fyrsti mótframbjóðandi formannsins rekinn af skrifstofunni Edition-málið komið aftur til saksóknara og farbann framlengt Skúli Tómas: Áfall að ákært sé í einu máli Þremur vísað úr landi eftir að hafa stolið fatnaði „Þetta er í fyrsta sinn á ævinni sem mér er stefnt fyrir eitthvað“ Engin þjóðarsátt án skýrra aðgerða „Við krossum bara fingur“ „Kostuðu páskaeggin sjö hundruð þúsund krónur?!“ Útlit fyrir að rætist úr páskaveðrinu og ASÍ kallar eftir frumkvæði frá ríkisstjórninni Skúli Tómas ákærður fyrir manndráp en fimm mál felld niður Ekki sannfærð um aðild en kallar eftir kjölfestu í umræðu Gripinn með fíkniefni í bíl um borð í Norrænu Í meðferð eftir fjárdrátt hjá Viðreisn Hellisheiði opin en Þrengsli enn lokuð Færri strætóferðir um páskana Fær vægari dóm en greiðir hærri miskabætur Hellisheiðin opin að nýju og snjókoma í borginni Sjá meira
Segir Ólöfu Helgu veruleikafirrta og valdsjúka Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar segir Ólöfu Helgu Adolfsdóttur, frambjóðanda til forseta ASÍ, veruleikafirrta. Sólveig hafnar því að hún og félagar Eflingar viðstaddir þingi ASÍ hafi strunsað út af þinginu. Hún segir að þau hafi fylkt liði í samstöðu hvert við annað. 12. október 2022 12:45
Vonast til að hægt verði að lægja öldurnar fyrir kjaraviðræður Búast má við hörðum framboðsslag á þingi Alþýðusambandsins sem hófst í dag. Tvær fylkingar takast á en settur forseti sambandsins vonast til að hægt verði að sætta hópana í mikilvægum málefnum og marka stefnu fyrir komandi kjaraviðræður. 10. október 2022 11:50
Þingi ASÍ frestað með þorra atkvæða Þingi ASÍ var rétt í þessu frestað fram á næsta vor með þorra atkvæða. Tillagan var samþykkt með 183 atkvæðum þingfulltrúa gegn 20. Kristján Þórður Snæbjarnarson, formaður Rafiðnaðarsambands Íslands, verður því áfram forseti sambandsins. Ólöf Helga Adolfsdóttir, ritari stjórnar Eflingar, sem bauð sig fram til forseta sambandsins, greiddi atkvæði gegn tillögunni. 12. október 2022 11:28
Verkalýðsfélögin sundruð til viðræðna við stjórnvöld Verkalýðsfélögin á almenna vinnumarkaðnum koma að óbreyttu sundruð til viðræðna við stjórnvöld í tengslum við komandi kjarasamninga. Starfandi forseti Alþýðusambandsins segir það skyldu sína að reyna að ná sáttum við þau stóru stéttarfélög sem gengu af þingi sambandsins, sem í dag var frestað fram á næsta vor. 12. október 2022 19:40