Þau sóttu um embætti safnstjóra Listasafns Íslands Atli Ísleifsson skrifar 28. september 2022 15:56 Listasafn Íslands. Stjr Alls bárust sjö umsóknir um embætti safnstjóra Listasafns Íslands, en staðan var auglýst þann 27. ágúst síðastliðinn og umsóknarfrestur rann út þann 20. september síðastliðinn.
Staðan var auglýst laus til umsóknar eftir að Lilja Alfreðsdóttir menningarmálaráðherra ákvað að skipa Hörpu Þórsdóttur safnstjóra í embætti þjóðminjavarðar líkt og mikið hefur verið fjallað um. Þriggja manna hæfnisnefnd skipuð af menningar- og viðskiptaráðherra mun meta hæfni umsækjenda og skila greinargerð til ráðherra. Menningar- og viðskiptaráðherra skipar í embættið til fimm ára. Nöfn umsækjenda: AlmaDís Kristinsdóttir, safnstjóri Björg Erlingsdóttir, sveitarstjóri Dagný Berglind Gísladóttir, verkefnastjóri Gunnar B. Kvaran, ráðgjafi Hanna Styrmisdóttir, prófessor Ingibjörg Jóhannsdóttir, skólastjóri Vigdís Rún Jónsdóttir, verkefnastjóri sýninga Staða safnstjóra var auglýst eftir að Harpa var flutt í embætti þjóðminjavarðar en í auglýsingunni kom fram að leitað væri að einstaklingi til að stýra Listasafni Íslands, sem hafi sýnt ótvíræða leiðtogafærni og til að bera þá þekkingu, reynslu og aðra eiginleika til að takast á við það verkefni, svo sem frekar greinir í auglýsingu þessari. Í framhaldinu eru starfsskyldur safnstjóra nefndar. Dagleg stjórnun og rekstur Listasafns Íslands svo sem fyrir er mælt í lögum og reglum Yfirstjórn og varðveisla safneignar Fjárhagsleg ábyrgð, áætlanagerð um meðferð fjármuna og rekstur safnsins Stjórnun listaverkainnkaupa og listaverkagjafa til safnsins Stjórnun sýningarhalds, fræðslustarfsemi, útgáfu og þjónustu við safngesti þ.m.t vörusölu Stjórnun lána á listaverkum til hins opinbera og til annarra safna í samræmi við lög og reglur Skipulagning og tilhögun rannsókna sem safnið hefur með höndum Leiða ráðgjafahlutverk og samvinnu viðurkenndra listasafna á landsvísu Móta framtíðarsýn fræðslu, miðlunar og sýningarhalds Listasafns Íslands Ábyrgð á öryggi safneignar og húsakosts Ábyrgð á þróun sýningahalds og rannsókna- og fræðslustarfsemi Annast umsýslu safneignar, aðgengi og kynningu fyrir almenning og opinbera gesti Að vera menningar- og viðskiptaráðráðuneyti til ráðgjafar um myndlist og listsögulegan menningararf Hæfniskröfur og eiginleikar umsækjanda: Háskólamenntun sem nýtist í starfi og staðgóð þekking á starfssviði Listasafnsins Þekking á starfsumhverfi og lögum um Listasafn Íslands Framúrskarandi leiðtogahæfni, skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði Árangursrík reynsla af stjórnun og mótun liðsheildar Árangursrík reynsla af mannauðsmálum, mannþekking og drifkraftur Þekking á opinberri stjórnsýslu og lagaumhverfi opinberra stofnana Þjónustulund, ásamt lipurð og færni í mannlegum samskiptum Reynsla og hæfileiki til að koma fram opinberlega og við miðlun upplýsinga Góð íslensku- og enskukunnátta ásamt hæfni til og tjá sig í ræðu og riti Samband íslenskra myndlistarmanna og Listfræðafélag Íslands gerðu athugasemdir við auglýsinguna og þá sér í lagi að meiri áhersla væri lögð á leiðtogahæfni en myndlistarþekkingu í auglýsingunni um stöðu safnstjóra Listasafns Íslands. Var menningarmálaráðherra hvött til að endurskoða auglýsinguna sem félögin sögðu heldur ekki hafa verið gerða með nægjanlega góðum fyrirvara.
Vistaskipti Menning Söfn Stjórnsýsla Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Deilur um skipun þjóðminjavarðar Tengdar fréttir Saka Lilju um metnaðarleysi við ráðningu eftirmanns Hörpu Samband íslenskra myndlistarmanna og Listfræðafélag Íslands gera athugasemdir við að meiri áhersla sé gerð á leiðtogahæfni en myndlistarþekkingu í auglýsingu um stöðu safnstjóra Listasafns Íslands. Þeir hvetja Lilju Alfreðsdóttur menningarmálaráðherra til að endurskoða auglýsinguna sem sé heldur ekki gert með nægjanlega góðum fyrirvara. 7. september 2022 14:28 Mest lesið Klæddi sig upp sem hjákona eiginmannsins Tíska og hönnun Fékk hvorki að setja eigið nafn né dulnefni á þættina sína Lífið Fyrrverandi ráðherra Dana: „Þið voruð aldrei nýlenda“ Menning Floppin í haust og sjónvarpslaus sjónvarpsverðlaun Menning Svona er kynlífsþjónusta á Íslandi Lífið Stjörnulífið: „Ef fólk hættir að gagnrýna mig svelt ég“ Lífið „Ég sótti ekki einu sinni um háskóla á Íslandi“ Lífið Leikstýrir kærastanum í stærsta harmleik sögunnar Lífið Dagur Sig genginn í það heilaga Lífið Hefur farið í gegnum sambandsslit, gjaldþrot og fjárkúgunarmál frammi fyrir þjóðinni Lífið Fleiri fréttir Floppin í haust og sjónvarpslaus sjónvarpsverðlaun Fyrrverandi ráðherra Dana: „Þið voruð aldrei nýlenda“ Samkeppnin í New York minnti á X-Factor keppni Hrekkjavökubúningar sem er best að forðast Magnús Karel og Inga Lára hlutu menningarviðurkenningu Árborgar Cecilie tekur við af Auði Þórdís Dröfn hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar Katrín og Ragnar snúa aftur með nýja bók Fullkominn vettvangur til að verja vetrarfríinu Hver er uppáhaldsbókin þín eftir Halldór Laxness? Ný gjaldfrjáls íslensk-ensk veforðabók opnuð Ryan Eyford handhafi Vigdísarverðlaunanna 2025 Víkingur Heiðar hlýtur tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs Lína orðin að „peningasjúkum TikTok-trúði“ eða sjálfsögð markaðssetning? Páll Baldvin fer fram gegn tillögu kjörnefndar Menningarvaktin: Ráðning óperustjóra jafn spennandi og þjálfara KR Trylltust við taktinn í barokkbúningum László Krasznahorkai hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels? „Léleg“ hönnun gervigreindar reyndist mannanna verk Áhersla á hæglæti á Sequences Fögnuðu Heimsins besta degi í helvíti Markmiðið að græða ekkert og „helst tapa pening“ Heiður að fá að segja sögu kvennanna sem ruddu brautina „Kunna ekki að reikna, kunna svo ekki að skammast sín“ „Stefán er að hengja bakara fyrir að vera ekki smiður“ Sjá meira
Saka Lilju um metnaðarleysi við ráðningu eftirmanns Hörpu Samband íslenskra myndlistarmanna og Listfræðafélag Íslands gera athugasemdir við að meiri áhersla sé gerð á leiðtogahæfni en myndlistarþekkingu í auglýsingu um stöðu safnstjóra Listasafns Íslands. Þeir hvetja Lilju Alfreðsdóttur menningarmálaráðherra til að endurskoða auglýsinguna sem sé heldur ekki gert með nægjanlega góðum fyrirvara. 7. september 2022 14:28