Ástarsaga Meryl Streep er betri en í bíómyndunum Ása Ninna Pétursdóttir skrifar 23. júní 2022 14:10 Meryl Streep og eiginmaður hennar Don Gummer hafa verið gift í 44 ár og eiga saman 4 börn. Getty Hin ofurglæsilega leikkona Meryl Streep fagnaði 73 ára afmæli sínu í gær, þann 22. júní. Oft hefur verið talað um Meryl sem bestu leikkonu sinnar kynslóðar en hún hefur ekki síður vakið mikla aðdáun fólks fyrir sterkan og einkar sjarmerandi persónuleika.
Glæsileg og nýgift á Óskarnum árið 1979.Getty Hjónaband Meryl hefur einnig verið mjög farsælt og líklega eitt af langlífari hjónaböndum í Hollywood en hún og eiginmaður hennar, listamaðurinn Don Gummer, hafa nú verið saman í 44 ár. Enn syrgjandi þegar hún varð ástfangin aftur Fyrstu kynnin voru þó ekkert í líkingu við rómantíska Hollywood bíómynd en þegar Meryl hitti Don í fyrsta skipti var hún djúpt syrgjandi kærasta sinni til tveggja ára, John Gazale. Dánarorsök Johns voru lungnakrabbamein og vék Meryl ekki frá honum eftir að hann var lagður inn á sjúkrahús í lokabaráttu sinni við meinið. Parið hafði búið saman í íbúð John í New York og var sorgin Meryl mjög þungbær. Þegar hún þurfti svo óvænt að flytja út úr íbúðinni eftir lát hans kom bróðir Meryl henni til aðstoðar með flutningana. Með í för var vinur hans, Don Gummer, sem hún þekkti lítillega til. Á þessum tíma var Don á leið í ferðalög erlendis og bauð hann þá Meryl að halda til í íbúð sinni í Soho á meðan, til að aðstoða tímabundið í húsnæðismálum. Sama ár, árið 1979, létu hjónin sjá sig í frægu gamlárspartýi Woody Allen í New York.Getty Þó svo að Meryl hafi á þessum tíma enn verið syrgjandi mynduðust fljótt sterk tengsl milli hennar og Johns, en fljótlega eftir að hann hélt út byrjuðu þau að skrifast á. Þó svo að bréfaskriftin hafi fljótt orðið ástríðufyllri og ákafari var Meryl ekki sannfærð um að hún væri þá tilbúin að hefja nýtt samband. Einn, tveir og brúðkaup Vinkona hennar, sem var þá orðin ekkja, hvatti hana til að opna fyrir möguleikann og þegar Don snéri aftur heim eftir ferðalagið varð Meryl um kyrrt í íbúðinni. Aðeins sex mánuðum síðar gekk parið í hnapphelduna, eða þann 30. september 1978. Athöfnin var haldin í garði foreldra Meryl á Mason's Island í Connecticut en móðir hennar er sögð hafa haft töluverðar áhyggjur af því hversu hratt ástarsagan þróaðist. Áhyggjur hennar reyndust óþarfar því nú 4 börnum og 44 árum síðar eru Meryl og Don enn hamingjusamlega gift. Hér fyrir neðan er hægt að sjá fleiri myndir af þessum stórglæsilegu hjónum í gegnum árin. Með soninn Henry Wolf sem kom í heiminn 13. nóvember 1979, rétt rúmu ári síðar en Meryl og Don giftu sig. Getty Árið 1981 sýningu Twyla Tharp Dance Company í New York. Getty Baksviðs á Óskarnum árið 1983 í Los Angeles. Getty Árið 1989 á New York Film Critics Awards í New York.Getty Árið 1988 á leið heim til New York frá Los Angeles. Getty Árið 1990 í Warner Bros stúdíóinu í Burbank. Getty Á ferð og flugi í desember árið 1993.Getty Árið 2004 þegar Meryl tók við verðlaunum fyrir ævistarfsitt. Getty Árið 2009 á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Róm. Getty Innilegur koss á Óskarnum árið 2012. Getty Árið 2017 á Óskarnum. Getty
Hollywood Ástin og lífið Mest lesið „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Lífið Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Lífið Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Lífið Ókunnug mamma ekki sátt með kaupin Tíska og hönnun Fann ástina og tók sénsinn í New York Lífið Kokkur ársins grillar tvo rétti sem allir geta leikið eftir Lífið samstarf Mormónastjarna kemur út úr skápnum Lífið Fyrsta stiklan úr mynd Eggers og Sjónar Bíó og sjónvarp Halldór Haraldsson er látinn Tónlist Lést af völdum alnæmis Lífið Fleiri fréttir „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Mormónastjarna kemur út úr skápnum Fann ástina og tók sénsinn í New York Lést af völdum alnæmis Alþjóðlegi drullumallsdagurinn: „Við viljum ekki fara heim af því að það er svo skemmtilegt“ Fjarlægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás „Þetta eru pjöllu-klútar“ Kanada getur nú tekið þátt í Eurovision Syntu í tæpa þrettán tíma með höfrungum og hákörlum Segist ekki hafa viljað láta kenna sig við Zuckerberg Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Sambandi Cox og McDaid lokið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Kominn á toppinn Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir Lét drauminn rætast á Ítalíu Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Sindri gerðist trukkabílstjóri Piparmeyjan Paul mæti á skjáinn í júlí Sjá meira