Horfa til Katalóníu í leit að arftaka Mané Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 30. maí 2022 09:00 Ousmane Dembélé gæti verið á leið til Bítlaborgarinnar. EPA-EFE/BRETT HEMMINGS Jürgen Klopp horfir til Katalóníu í leit að arftaka Sadio Mané sem virðist vera á leið frá Liverpool í sumar.
Hinn þrítugi Mané á ár eftir af samningi við félagið og getur því farið tiltölulega ódýrt í sumar. Hann hefur lýst því yfir að hann sé í leit að nýrri áskorun og virðist samkvæmt öllu vera á leið til Þýskalandsmeistara Bayerm München. Klopp virðist nú þegar hafa fundið arftaka Mané en sá leikur í dag í Katalóníu eftir að hafa verið í Borussia Dortmund, gamla liðinu hans Klopp, þar á undan. Um er að ræða hinn 25 ára gamla framherja Ousmane Dembélé sem leikur með Barcelona en spænski vefmiðillinn Sport greinir frá. Dembélé hefur farið í taugarnar á hinum ýmsu aðilum hjá Barcelona síðan félagið keypti hann á 140 milljónir evra sumarið 2017. Hann hefur verið þekktur fyrir að mæta seint á æfingar, vera mikið meiddur og almennt frekar latur. Eftir að Xavi tók við stjórnartaumunum á nýafstaðinni leiktíð þá lifnaði Dembélé heldur betur við. Alls kom hann að 14 mörkum í þeim 21 leik sem hann spilaði í La Liga, spænsku úrvalsdeildinni, á leiktíðinni. Samningur Dembélé rennur út 30. júní og hefur hann ekki enn skrifað undir nýjan samning. Því gæti Liverpool fengið franska framherjann frítt fari svo að Xavi nái ekki að sannfæra hann um að vera áfram í Katalóníu.
Fótbolti Enski boltinn Mest lesið Tólf Íslandsmet féllu á Íslandsmótinu í sundi Sport Markaregn í enska boltanum í dag Fótbolti Sjáðu mörkin og allt það helsta úr meistaraslagnum Fótbolti Inter aftur á toppinn eftir sigur á Lazio Fótbolti Þrenna frá Lewandowski og Rashford í stuði Fótbolti Norris með aðra höndina á titlinum Formúla 1 Öruggur sigur City Enski boltinn Íslenskan mesta eftirsjáin: „Tala hana mest fullur niðri í bæ“ Íslenski boltinn Kristall Máni á skotskónum í sigurleik Fótbolti Vonast til að Barcelona geti stöðvað sigurgöngu Lyon Fótbolti Fleiri fréttir Fjögur mörk, varið víti og Villa upp í sjöunda sætið Öruggur sigur City Færðu auglýsingaskiltin til að trufla löng innköst Arsenal Sjáðu alla dramatíkina og mörkin í enska í gær Sanngjarn heimasigur Tveir í röð hjá West Ham og þægilegt hjá Everton Dramatík í uppbótartíma Amorim fannst vanta hugrekki til að klára leikinn Stefán Teitur og félagar upp í þriðja sætið Tvö mörk í uppbótartíma í ótrúlegum leik Boro bannar Edwards að stýra liðinu í dag Ósammála Wenger að Wirtz hafi skemmt miðju Liverpool „Allt sem er satt í dag gæti verið lygi eftir þrjár vikur“ Þakklátur Klopp fyrir ríginn: „Ég sakna hans“ Dæmdur sekur vegna sex viðbjóðslegra færslna Fantasýn: Er að hugsa um að taka fyrirliðabandið af Haaland Slot segir að Isak sé byrjaður aftur að æfa en bað um eitt Fantasýn: Sölvi Tryggva með leynivopn Fótboltaleikur í beinni á TikTok í fyrsta sinn Góður í að þekkja stórstjörnur sem börn Segir að Man United sé ekki að búa til Harlem Globetrotters-lið Spilaði meira en síðustu tvo mánuði til samans „Mér finnst þetta ekki leiðinlegur fótbolti“ Rooney að kenna að Liverpool er komið á sigurbrautina á ný? Fékk faðmlag frá konu Diogo Jota í miðju maraþoni Ógnaði leikmanni Tottenham með byssu út á götu David Beckham aðlaður: „Ég gæti ekki verið stoltari“ Viðtal Kjartans við Carrick: „Þolinmæðin minni og dómharkan meiri í hverri viku“ Sjáðu glæsilegan einleik Ndiayes og jöfnunarmarkið frá Xhaka Fannst Tottenham spila eins og fjórðu deildarlið gegn Chelsea Sjá meira