Kalt loft streymir yfir landið Atli Ísleifsson skrifar 12. maí 2022 07:14 Hiti verður á bilinu núll til sjö stig í dag, mildast sunnantil. Vísir/Vilhelm Kalt loft streymir yfir landið og nú í morgunsárið er víða ansi vetrarlegt um að litast.
Á vef Veðurstofunnar segir í dag verði norðaustan og norðan átta til fimmtán metrar á sekúndu og allvíða snjókoma eða slydda. Þó verður hægari vindur sunnanlands fram eftir degi og skúrir eða él. „Á vegum norðan- og austanlands má því víða búast við vetraraðstæðum, einkum á fjallvegum. Hiti 0 til 7 stig, mildast sunnantil. Það dregur úr ofankomu í kvöld. Hægari norðlæg átt á morgun, en strekkingur austast á landinu fram eftir degi. Dálítil él á norðanverðu landinu með hita nálægt frostmarki, en sunnan heiða verður bjart að mestu og hiti 3 til 8 stig yfir daginn, en þar eru þó líkur á einhverjum síðdegisskúrum,“ segir í tilkynningunni. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á föstudag: Norðlæg átt 5-10 m/s, en 10-15 austast á landinu fram eftir degi. Dálítil él á norðanverðu landinu og hiti nálægt frostmarki. Bjart að mestu sunnan heiða með hita 3 til 9 stig yfir daginn, en líkur á stöku síðdegisskúrum. Á laugardag: Suðaustan og austan 5-13 og rigning með köflum, en lengst af úrkomulítið á Norður- og Austurlandi. Hlýnandi, hiti 2 til 8 stig eftir hádegi. Á sunnudag: Suðlæg átt 3-10 og súld eða dálítil rigning með köflum, en léttir til um landið norðaustanvert. Hiti 4 til 12 stig. Á mánudag og þriðjudag: Austlæg átt, skýjað með köflum og lengst af þurrt. Milt í veðri, einkum vestanlands. Á miðvikudag: Útlit fyrir austlæga átt með vætu á köflum.
Veður Mest lesið „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Fleiri fréttir Lægðin fyrr á ferðinni Norðan kaldi og snjókoma til fjalla Lægðardrag á leiðinni Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Krapi og hálkublettir víða Skafið og saltað Engar viðvaranir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Sjá meira