Salah bænheyrður: „Þurfum að jafna um sakirnar“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 5. maí 2022 07:31 Mohamed Salah liggur á Ólympíuleikvanginum í Kænugarði eftir viðskipti sín við Sergio Ramos í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu 2018. getty/Chris Brunskill Mohamed Salah varð að ósk sinni að Liverpool myndi mæta Real Madrid í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu. Egyptinn er í hefndarhug eftir úrslitaleikinn 2018.
Salah fór meiddur af velli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar fyrir fjórum árum. Real Madrid vann þá Liverpool í Kænugarði með þremur mörkum gegn einu. Eftir að Liverpool vann Villarreal, 2-3, í seinni leik liðanna í undanúrslitunum á þriðjudaginn sagði Salah að hann vildi mæta Real Madrid í úrslitaleiknum í París 28. maí. Salah var því hæstánægður þegar Real Madrid komst í úrslitaleikinn með endurkomusigri á Manchester City, 3-1, í gær. „Við þurfum að jafna um sakirnar,“ skrifaði Salah á Twitter eftir leikinn á Santiago Bernabéu. We have a score to settle. pic.twitter.com/MWxfhIIW78— Mohamed Salah (@MoSalah) May 4, 2022 Salah fór í axlarlið í úrslitaleiknum gegn Real Madrid 2018 eftir baráttu við Sergio Ramos, þáverandi fyrirliða Madrídarliðsins, og neyddist til að yfirgefa völlinn í fyrri hálfleik. Staðan að honum loknum var markalaus en Real Madrid skoraði þrjú mörk í seinni hálfleik gegn einu marki Liverpool.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Mest lesið Biður Dag afsökunar Handbolti Leynast öflugar íslenskar skyttur einhvers staðar? Handbolti Gísli Þorgeir og Viktor Gísli á toppnum en Óðinn í öðru sæti Handbolti Sjáðu sturlað mark Solanke og ótrúlegar lokamínútur á Old Trafford Enski boltinn Gísli Þorgeir og allir hinir verðlaunastrákar sögunnar Handbolti Með fleiri mörk með langskotum en Ísland og samt með sex færri leiki spilaða Handbolti Bónus frá ríkinu, bannaða bandið og aftur hátíð fyrir Dag og hans menn Handbolti „Fáránlegt ef við ætlum að fara breyta til“ Handbolti Ákváðu að spila þrátt fyrir banaslys á leið á mótið og unnu síðan mótið Sport Segja að bestu árin hjá þessum hóp séu fram undan Handbolti Fleiri fréttir Mateta fer ekki til Mílanó Valgeiri létt eftir langa martröð Ísak Andri til Danmerkur rétt fyrir lok gluggans Ronaldo í fýlu og skrópar í leik kvöldsins Jón Dagur bætist í Íslendingalið Freys Meistararnir fá liðsstyrk af Akranesi Kvennalið Arsenal vann sér inn meira en 280 milljónir króna Szoboszlai segir að framtíð hans hjá Liverpool sé „ekki í hans höndum“ Kolbeinn lánaður til Noregs „Ég er ekki Gandálfur hinn grái“ Liverpool keypti varnarmann fyrir tíu milljarða en fær hann ekki fyrr en í sumar Sjáðu sturlað mark Solanke og ótrúlegar lokamínútur á Old Trafford „Búið að vera smá erfitt fyrir hausinn en svona gerist“ Willum snýr aftur í hollenska boltann Vondar fréttir úr herbúðum Arsenal sem skoðar markaðinn Manchester City glutraði niður tveggja marka forystu Bragi Karl stimplaði sig inn með marki í fyrsta leik Aston Villa tapaði gegn tíu mönnum Brentford Mbappé bætti upp fyrir hrikalegt klúður Sesko tryggði þriðja sigurinn í röð Sjáðu tvennuna hjá Ekitike, endurkomu Chelsea og öll mörkin úr enska í gær Hearts náði sjö stiga forskoti Yamal og Rashford á skotskónum í sigri Börsunga Ekitike með tvö á tveimur og langþráður sigur Liverpool Þreföld hálfleiksskipting og endurkoma hjá Chelsea Fiorentina tapaði fyrir meisturunum Beto bjargaði stigi á afmælisdaginn Öruggt hjá Arsenal á Elland Road og sjö stiga forskot Íslandsmeistararnir byrja vel og KR sótti sigur á Akureyri Valur er Reykjavíkurmeistari árið 2026 Sjá meira