Myndband: Nýr smart #1 Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar 13. apríl 2022 07:00 smart #1 Rafbíllinn smart #1 var frumsýndur í Berlín síðustu viku. Bíllinn verður fáanlegur bæði fjórhjóladrifinn og afturdrifinn. Uppgefin drægni er 420-440 km.
Innanrýmið er nútímalegt og skemmtilegt og býður upp á gott pláss fyrir ökumann og farþega. Bíllinn er hlaðinn tækni og hljóðkerfi frá BEATS auk 12,8“ margmiðlunarskjás í mælaborði með einstaklingsbundnu notendaviðmóti. Myndband af YouTube-rásinni YOUCAR, þar sem smart #1 er sýndur. Smart#1 verður meðal annars með fjarstýrðri bílastæðaaðstoð, þverumferðavara, veglínufylgd, akreinaaðstoð og 360° myndavél svo eitthvað sé nefnt. Eftirfarandi er unnið upp úr fréttatilkynningu frá bílaumboðinu Öskju. Bíllinn er hannaður af Mercedes-Benz Geely og framleiddur í nýrri verksmiðju smart í Kína. Bíllinn var fyrst kynntur sem hugmyndabíll á bílasýningunni í Munchen í fyrra en er nú kominn í endanlega framleiðslu. Bílaumboðið Askja hefur hafið samstarf við smart og mun kynna smart #1 hér á Íslandi. Mercedes-Benz og Geely, einn stærsti bílaframleiðandi Kína, hófu í lok árs 2019 samstarf um þróun og framleiðslu Smart. Félögin eiga hvort fyrir sig 50% hlutdeild í fyrirtækinu. Mercedes-Benz leggur þannig til hönnun og Geely framleiðsluþekkingu og verksmiðjur.
Vistvænir bílar Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent