Hæg sunnanátt og víða þurrt á landinu Atli Ísleifsson skrifar 1. apríl 2022 07:13 Morgundagurinn mun líka byrja með rólegri sunnanátt. Vísir/Vilhelm Veðurstofan spáir hægri sunnanátt í dag þar sem hiti fer upp í þrjú til átta stig en á Austfjörðum verður hiti nálægt frostmarki.
Í hugleiðingum veðurfræðings segir að svæði með lítilsháttar rigningu eða súld sé á norðurleið yfir vestanverðu landinu en þurrt verði í öðrum landshlutum. „Laugardagurinn byrjar líka með rólegri sunnanátt og dálitlum skúrum eða éljum við norðurströndina. Eftir hádegi verður vaxandi suðaustanátt og rigning eða súld sunnan- og vestanlands. Hiti 4 til 9 stig en eins og áður heldur svalara fyrir austan. Sunnudagurinn verður víða blautur. Rigning í fyrstu, skúrir síðdegis. Hiti breytist lítið. Kólnandi veður eftir helgina og sums staðar snjókoma eða él og hiti um eða undir frostmarki,“ segir í tilkynningunni. Spákortið fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag: Hæg breytileg átt framan af degi og þurrt, en dálitlir skúrir eða él um landið norðanvert. Hiti 1 til 7 stig, mildast syðst. Gengur í suðaustan 8-15 m/s seinnipartinn með rigningu og súld vestantil. Á sunnudag: Suðlæg eða breytileg átt 5-13 og víða rigning, en slydda á Austurlandi. Hiti frá 1 stigi við austurströndina, upp í 8 stig syðst. Norðlægari og kólnar með snjókomu norðanlands um kvöldið, en styttir upp syðra. Á mánudag: Norðan 8-15, él og vægt frost. Bjartviðri sunnan heiða og hiti 1 til 6 stig yfir daginn. Á þriðjudag: Norðaustan 5-13 og dálítil él, en þurrt um landið vestanvert. Frost 1 til 7 stig, en frostlaust við suðurströndina yfir daginn. Á miðvikudag: Breytileg átt og víða þurrt og bjart veður, en skýjað að mestu og dálítil él norðantil. Hiti breytist lítið. Á fimmtudag: Hæg breytileg átt og bjart og þurrt að mestu. Frost 0 til 5 stig yfir daginn en hiti yfir frostmarki sunnantil. Töluvert næturfrost.
Veður Mest lesið „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Fleiri fréttir Lægðin fyrr á ferðinni Norðan kaldi og snjókoma til fjalla Lægðardrag á leiðinni Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Krapi og hálkublettir víða Skafið og saltað Engar viðvaranir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Sjá meira