Tíu prósent allrar raforkuframleiðslu heims nú frá vind- og sólarorku Gunnar Reynir Valþórsson og Atli Ísleifsson skrifa 30. mars 2022 07:19 Raforkuþörf heimsins sem bættist við á síðasta ári, í kjölfar þess að heimsfaraldur kórónuveirunnar skall á, er sögð vera jafn mikil og raforkuþörf alls Indlands. Getty Þeim áfanga var náð á síðasta ári að tíu prósent allrar raforku sem framleitt var á jörðinni fékkst með vind- eða sólarorku í fyrsta sinn.
Þetta sýnir ný úttekt sem breska ríkisútvarpið fjallar um en þar segir ennfremur að um fimmtíu ríki í heiminum fái tíu prósent eða meira af sinni orku með þessum leiðum. Það eru þó dökkar hliðar í skýrslunni einnig en þar er rakið hvernig gríðarleg eftirspurn eftir orku í kjölfar kórónuveirunnar hafi orsakað mikla framleiðsluaukningu á raforku sem búin er til með kolum. Vaxtahraðinn í kolaverum er slíkur að annað eins hefur ekki sést frá árinu 1985. Raforkuþörfin sem bættist við á síðasta ári, í kjölfar þess að heimsfaraldur kórónuveirunnar skall á, er sögð vera jafn mikil og raforkuþörf alls Indlands. Samtals skaffa vistvænar framleiðsluaðferðir rafmagns, á borð við sólar-, vind-, vatnsafls- og jarðhita 38 prósent alls rafmagns sem framleitt var í heiminum á síðasta ári og hefur hlutdeild sólar- og vindorku tvöfaldast frá árinu 2015, þegar Parísarsamkomulagið var undirritað. Í skýrslunni segir að hlutfallsleg framleiðsluaukning vind- og sólarorku hafi verið hröðust í Hollandi, Ástralíu og Víetnam. Þannig jókst framleiðsla sólarorku í Víetnam um heil 300 prósent á einu ár.
Orkumál Loftslagsmál Vindorka Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Erlent Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Erlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Fleiri fréttir Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Sjá meira