Óttar Magnús enn og aftur á faraldsfæti Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 14. febrúar 2022 23:01 Óttar Magnús Karlsson í treyju Venezia. Venezia FC Framherjinn Óttar Magnús Karlsson er á leið til Bandaríkjanna. Verður það sjötta landið sem Óttar Magnús hefur spilað í þrátt fyrir ungan aldur.
Óttar Magnús er í dag leikmaður ítalska úrvalsdeildarfélagsins Venezia. Hann var á láni hjá Siena í C-deildinni þar í landi en lánssamningnum var rift vegna ýmissa vandræða hjá forráðamönnum Siena. Orðrómur fór fljótt á kreik að Óttar Magnús væri á leið til Bandaríkjanna. Nú er svo gott sem staðfest að sóknarmaðurinn muni ganga til liðs við Oakland Roots sem spilar í USL-deildinni eða bandarísku B-deildinni. Óttar Magnús er uppalinn hjá Víkingi. Alls hefur hann spilað 42 leiki í efstu deild hér á landi og skorað 21 mark. Hann fór hins vegar ungur að árum til Hollands og lék með Ajax og Sparta Rotterdam áður en hann kom til Íslands á nýjan leik. Þaðan fór hann til Molde í Noregi og svo til Svíþjóðar þar sem hann lék með Trelleborg og Mjällby. Hann gekk svo aftur í raðir Víkings og lék með liðinu sumarið 2020 áður en Venezia keypti hann um haustið sama ár. Eftir stutta dvöl hjá Siena er komið að því að spila í Bandaríkjunum. USL-deildin hefst þann 13. mars en þá mætast Oakland Roots og Rio Grande Valley. Óttar Magnús á að baki níu A-landsleiki fyrir Íslands hönd. Skoraði hann í þeim tvö mörk. Þá á hann að baki 47 leiki fyrir yngri landslið Íslands þar sem hann skoraði 11 mörk.
Fótbolti Ítalski boltinn Mest lesið Dramatík í Barcelona: Félagið í mál við eigin leikmann Fótbolti Liverpool búið að samþykkja tilboð en nú veltur allt á Darwin Nunez Enski boltinn Lyon krækir í leikmann Liverpool Enski boltinn Tölvuleikurinn Grand Theft Auto boðar mjög gott fyrir Man. United Enski boltinn Fótboltamaður drukknaði Fótbolti Patrick: Léttir að sjá boltann í netinu Fótbolti Ómar Björn: Misreiknaði boltann Fótbolti Dagskráin: Besta deildin ræður ríkjum Sport Son verður sá dýrasti í sögunni Enski boltinn NFL-stjarna dæmd fyrir þátt í hundaati Sport Fleiri fréttir Fótboltamaður drukknaði Liverpool búið að samþykkja tilboð en nú veltur allt á Darwin Nunez Dramatík í Barcelona: Félagið í mál við eigin leikmann Tölvuleikurinn Grand Theft Auto boðar mjög gott fyrir Man. United Patrick: Léttir að sjá boltann í netinu Lyon krækir í leikmann Liverpool Ómar Björn: Misreiknaði boltann Markalaust í baráttunni um brúna Uppgjör: ÍA - Valur 2-2 | Skaginn náði í stig með ótrúlegu marki Brann á toppinn og Lyngby skreið áfram í bikarnum Hansen hamingjusamur í Víkinni næstu árin Tryggvi þurfti að bíða í 257 daga eftir að bæta metið Jorge Costa látinn Partey laus á skilorði Fór að gráta þegar hún skoraði Son verður sá dýrasti í sögunni Man. United bauð 74 milljónir punda í Sesko Gervigreindin fór illa með mótherja Víkinga „Margir sem voru tilbúnir að koma honum fyrir kattarnef fyrir mig“ Frank Mill er látinn Shearer með skilaboð til Newcastle: Losið ykkur við Isak Natasha með slitið krossband Sjáðu guttann skora geggjað mark fyrir Liverpool: Ný stjarna fædd á Anfield Máluðu dvergana sjö í kringum fræga veggmynd af Lamine Yamal Eigandi Newcastle gæti hjálpað Liverpool að kaupa Isak Hinn óendanlegi leikmannahópur Chelsea Stuðningsmönnum danska liðsins ekki hleypt inn í Svíþjóð Lars Lagerbäck lenti í slysi og kemur ekki til Íslands „Þeir standa fyrir eitthvað annað“ Kári reynir að hjálpa HK upp um deild Sjá meira