Ziyech leggur landsliðsskóna á hilluna aðeins 28 ára gamall Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 8. febrúar 2022 17:31 Hakim Ziyech lætur ekki bjóða sér það að vera ekki valinn í landsliðið og er hættur. Vísir/Getty Hakim Ziyech, leikmaður enska knattspyrnufélagsins Chelsea, mun ekki gefa kost á sér í fleiri landsliðsverkefni Marokkó eftir að leikmaðurinn var ekki valinn í hópinn sem tók þátt á Afríkumótinu í fótbolta.
Ziyech er aðeins 28 ára gamall en hann hefur ekki verið valinn í landslið Marokkó síðan í júní á síðasta ári eftir að hann „neitaði að vinna“ eins og þjálfari liðsins, Vahid Halihodzic, orðaði það. „Auðvitað skil ég þeirra hlið, en ég mun ekki snúa aftur í landsliðið,“ sagði Ziyech í dag. „Já, þetta er endanleg ákvörðun. Það er augljóst fyrir mér hvað er í gangi hjá þeim og núna ætla ég bara að einbeita mér að því sem ég er að gera og einmitt núna er það að spila fyrir félagslið mitt.“ „Eins og ég sagði þá mun ég ekki snúa aftur í landsliðið. Ég skil þá og vorkenni þeim,“ sagði Ziyech að lokum. "I will not return to the national team.”After being left out of the AFCON squad, Hakim Ziyech has announced his retirement from the Moroccan national team. pic.twitter.com/gpK8FunqVc— B/R Football (@brfootball) February 8, 2022 Eins og áður segir talaði Vahid Halihodzic, þjálfari marokkóska landsliðsins, um ástæðu þess að Ziyech hafi ekki verið valinn í liðið síðasta sumar. „Hegðun hans í seinustu tveimur leikjum, sérstaklega í síðasta leik, var ekki sæmandi landsliðsmanni. Hann sem leiðtogi í hópnum þarf að vera jákvæð fyrirmynd,“ sagði þjálfarinn í júní síðastliðnum. „Hann mætti seint og neitaði meira að segja að vinna eftir það. Fyrir mér er landsliðið ofar öllu og það er enginn yfir það hafinn.“ Ziyech hefur leikið 41 leik fyrir Marokkó og skorað í þeim 17 mörk.
Fótbolti Enski boltinn Mest lesið Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Fótbolti Willum vill fara norsku leiðina Sport Hafþór Júlíus gefst ekki upp þrátt fyrir vonbrigðin Sport „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Körfubolti Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Fótbolti Sakar lækni landsliðsins um loddaraskap Fótbolti „Skil ekki hvernig menn geta flaggað á eða séð eitthvað sem gerist ekki“ Íslenski boltinn Bróðir Yamals slær í gegn á HM Fótbolti Aukinn viðbúnaður vegna sögu Englands og Argentínu Fótbolti „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Enski boltinn Fleiri fréttir Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Sjá meira