Katrín og Svandís horfa til Norðurlandanna þar sem engar takmarkanir eru í gildi Birgir Olgeirsson skrifar 13. október 2021 10:14 Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra. Vísir/Vilhelm Íslensk stjórnvöld líta til þess að öll hin Norðurlöndin hafa nú aflétt öllum innanlandstakmörkunum sem ætlað var að hemja útbreiðslu kórónuveirunnar. Þetta kemur fram í minnisblaði forsætisráðherra og heilbrigðisráðherra, sem fréttastofa hefur undir höndum, um horfurnar fram undan í baráttunni við kórónuveirufaraldurinn. Forsætisráðherra segir takmarkalaust samfélag markmiðið og vonandi náist það í náinni framtíð. Sóttvarnalæknir hefur fengið minnisblaðið í hendurnar og mun væntanlega taka mið af þeim þegar hann vinnur að tillögum að næstu aðgerðum. Hvað svo hann leggur til á eftir að koma í ljós. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir mun ræða við heilbrigðisráðherra mun minnisblaðið á næstu dögum. Vísir/Vilhelm Í minnisblaðinu benda ráðherrarnir á að stjórnvöld á hinum Norðurlöndunum hafi rökstutt ákvörðun sína um að aflétta öllum innanlandstakmörkunum með þeim rökum að ólíklegt sé að faraldur kórónuveirunnar í vel bólusettu samfélagi yrði ógn við samfélagið í heild. Þá hafi öll hin Norðurlöndin mun vægari aðgerðir á landamærum gagnvart bólusettum farþegum. Þá er komið inn á að þrátt fyrir að ekki séu strangar aðgerðir hér á landi og að samfélagið gangi nánast óáreitt, hafi það ekki leitt til veldisvaxtar í fjölgun smitaðra. Þar að auki hafi verið gripið til aðgerða til að efla viðnámsþrótt í heilbrigðiskerfinu og afrakstur þeirra muni koma til framkvæmda á næstu vikum. Sem dæmi um aðgerðir er nefnd styrking heimahjúkrunar á höfuðborgarsvæðinu, fjölgun legurýma, styrking sjúkraflutninga og samningur Sjúkratrygginga við hjúkrunarheimilið EIR um að létta undir Landspítalanum með því að annast aldraða sem eru smitaðir af Covid en þurfa ekki sjúkrahúsþjónustu. Þá megi gera ráð fyrir að breitt eðli faraldursins geti leitt til að endurskoða megi þjónustu og eftirlit með einkennalitlum og einkennalausum. Hvort það leiði til að sóttkví þeirra sem eru einkennalausir eða einkennalitlir eftir að hafa verið útsettir fyrir veirunni verði breytt, kemur ekki fram í minnisblaði ráðherranna. Heilbrigðisráðherra mun á næstu dögum ræða við sóttvarnalækni um næstu skref í sóttvarnaráðstöfunum innanlands. Takmarkalaust samfélag markmiðið Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra sagði fyrir fund í Ráðherrabústaðnum í morgun liggja fyrir að ríkisstjórnin hefði valið að fylgja aðferðarfræði temprunar í stað þess að reyna að bæla niður veiruna. Töluverður fjöldi sé enn að smitast í samfélaginu. „Þegar við tókum þá ákvörðun að setja á takmarkanir í sumar þá vorum við óviss hvernig Delta afbrigðið myndi hegða sér,“ sagði Katrín. Þá hafi verið óvissa uppi um áhrif varðandi alvarleg veikindi. Nú liggi fyrir að bólusetning veiti góða vörn. Í forgangi sé að létta frekar á aðgerðum innanlands. Núverandi aðgerðir á landamærum séu til að gæta að nýjum afbrigðum og koma í veg fyrir að þær berist til landsins. „Ég tel að þessar aðgerðir hafi reynst ágætlega.“ Varðandi fyrirmyndir á Norðurlöndunum sagði Katrín að aðgerðir eigi alltaf að henta tilefninu. „Það skiptir mestu máli að meta hverngi veikin er að leggjast í landsmenn.“ Hvort fólk sé að verða alvarlega veikt og leggjast inn á spítala. Henni finnist sjálfsagt að takmarkanir séu ekki meiri en tilefni sé til. „Takmarkið er alltaf takmarkalaust samfélag,“ sagði Katrín. Hún vonast til þess að það verði niðurstaðan í náinni framtíð en stöðuna þurfi að meta á hverjum tíma. Forsætisráðuneytið M i n n i s b l a ð Viðtakandi: Ríkisstjórn Íslands Sendandi: Forsætisráðherra og heilbrigðisráðherra Dagsetning: 12.10.2021 Málsnúmer: FOR20100056 Bréfalykill: 2.6 Efni: Framkvæmd temprunarleiðar – horfurnar framundan Frá 1. ágúst hafa 3.953 greinst innanlands með veiruna og 144 greinst í skimun vegna komu til landsins. Á þeim tíma hafa legið inni mest 25 einstaklingar samtímis og mest 9 á gjörgæslu. Þrír hafa látist á Íslandi frá 1. ágúst og voru tveir þeirra erlendir ferðamenn en einn Íslendingur. Mánudaginn 11. október lágu fimm einstaklingar á sjúkrahúsi og enginn var á gjörgæslu. Alls hafa 11.674 lokið einangrun frá upphafi faraldursins á Íslandi en 33 hafa látist (0,28%). Frá 1. ágúst hefur um 0,06% þeirra sem greinst hafa vegna COVID-19 innanlands látist. Stefna ríkisstjórnarinnar frá upphafi faraldursins hefur verið að vernda líf og heilsu landsmanna en lágmarka efnahagsleg og samfélagsleg áhrif faraldursins. Í því ljósi hefur ríkisstjórnin reglulega lagt mat á þá nálgun sem best nær því markmiði. Í því samhengi er mikilvægt að stöðugt sé lagt gagnrýnið mat á: a) hvað er áunnið með þeim takmörkunum sem eru viðhafðar í þágu sóttvarna og hvers virði er sá ábati, b) hverju er til kostað vegna þeirra takmarkana sem eru viðhafðar og hversu mikils virði er sú fórn. Á fundi ríkisstjórnarinnar 26. ágúst sl. var ákveðið að rétt væri að viðhafa áfram hóflegar takmarkanir í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis í því skyni að tempra útbreiðslu veirunnar. Í ákvörðun ríkisstjórnarinnar fólst að leið temprunar ætti ekki að standa lengur en í takmarkaðan tíma nema alvarlegar breytingar yrðu á eðli faraldursins. Í því minnisblaði kom fram að stefnt væri að sífellt minni takmörkunum og að drög yrðu lögð að slíkum áætlunum á næstunni. Nú þegar ljóst er að dreifing smita mun halda áfram þrátt fyrir bólusetningu, en þó með mun vægari afleiðingum heldur en í óbólusettu samfélagi, hefur mat á áhættu breyst. Verndun almennra lífsgæða landsmanna, til lengri tíma, þar á meðal eðlilegs skóla- og frístundastarfs, menningarlegrar og efnahagslegrar virkni, vegur því þyngra en áður. Reynslan af afléttingu sóttvarnaaðgerða 26. júní sl. og mikil fjölgun greindra smita í kjölfarið, leiddi í ljós að hjarðónæmi, í þeim skilningi að dreifing veirunnar stöðvist algjörlega og fjari út, á grundvelli bólusetningar yrði líklega ekki náð. Bólusett fólk mun smitast af kórónaveirunni, það mun smita aðra og munu smitin valda veikindum hjá einhverjum hluta smitaðra, og alvarlegum veikindum hjá sumum. Sú vörn sem felst í bólusetningunni hefur hins vegar dregið stórlega úr alvarlegum afleiðingum fyrir þá einstaklinga sem smitast, og eru einkenni lítil sem engin hjá stórum hluta þeirra. Þá hefur opnun skólastarfs í haust og sú staðreynd að samneyti milli fólks hefur stóraukist ekki leitt til þess að faraldurinn hafi farið í veldisvöxt. Reynsla af síðustu vikum og mánuðum, þar sem litlar raunverulegar sóttvarnir hafa verið viðhafðar innanlands, gefur tilefni til að ætla að hættan á óviðráðanlegum faraldri COVID-19 hafi minnkað. Íslensk stjórnvöld líta þar að auki til þess að öll hin Norðurlöndin hafa nú aflétt öllum innanlandstakmörkunum. Hafa stjórnvöld þar rökstutt ákvörðun sína með þeim rökum að ólíklegt sé að faraldur kórónaveiru í vel bólusettu samfélagi yrði alvarleg ógn við samfélagið í heild. Þá hafa öll hin Norðurlöndin mun vægari aðgerðir á landamærum gagnvart bólusettum farþegum. Í Færeyjum eru þó til staðar tilmæli um að farþegar fari af eigin frumkvæði í skimun innan tveggja daga frá komu til landsins. Aukinn viðnámsþróttur í heilbrigðiskerfinu Gripið hefur verið til aðgerða til þess að efla viðnámsþrótt í heilbrigðiskerfinu og mun afrakstur þeirrar vinnu koma til framkvæmda á næstu vikum. Það mun leiða til þess að innviðir í heilbrigðiskerfinu eru betur búnir undir að eiga við afleiðingar þess ef fjölgun smita verður í kjölfar afléttingar takmarkana, og einnig ef álag á heilbrigðiskerfið vegna árlegrar inflúensu og umgangspesta verður meira en í venjulegu árferði. Sem dæmi um þær aðgerðir er styrking heimahjúkrunar á höfuðborgarsvæðinu, tímabundin fjölgun legurýma á heilbrigðisstofnunum og hjúkrunarheimilum á suðvesturhorni landsins, undirbúningur varanlegrar fjölgunar legurýma á LSH og styrking sjúkraflutninga til að meðhöndla sjúklinga í heimahúsum þegar það á við, í stað flutnings á bráðamóttöku. Því til viðbótar má nefna að Sjúkratryggingar eru að ganga frá samningi við hjúkrunarheimilið EIR sem mun létta undir Landspítala með því að annast Covid-smitaða aldraða sem ekki þarfnast sjúkrahúsþjónustu en geta ekki uppfyllt einangrunarkröfur á sínu heimili, hvort sem er hjúkrunarheimili eða eigið heimili. Til viðbótar við þær aðgerðir sem gripið hefur verið til í því skyni að efla getu LSH til þess að bregðast við útbreiddum veikindum, má gera ráð fyrir að breytt eðli COVID-19 faraldursins geti leitt til þess að endurskoða megi þá þjónustu og eftirlit sem einkennalitlir og einkennalausir einstaklingar fá. Niðurlag Heilbrigðisráðherra hyggst á næstu dögum ræða við sóttvarnalækni um næstu skref í sóttvarnaráðstöfunum innanlands. Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Tengdar fréttir Tveir af þremur sem létust í ágúst voru erlendir ferðamenn Þrír hafa látist á Íslandi frá 1. ágúst vegna Covid-19. Tveir þeirra voru erlendir ferðamenn og einn þeirra Íslendingur. Þetta kemur fram í minnisblaði forsætis- og heilbrigðisráðherra sem lagt var fram á fundi ríkisstjórnarinnar í gær. 13. október 2021 09:57 Mest lesið Óheppilegt ef fölsk mynd varpar sök á saklausan mann Innlent Sakar sveitastjórann um atvinnuróg og „kæfandi klámhögg“ Innlent „Eins og að vera úti á rúmsjó“ í Eyjum annað kvöld Veður Skiptar skoðanir um umfang og kostnað vegna listaverks Ólafs í Eyjum Innlent Níu ára og með sitt eigið „Fannars bakarí“ í Njarðvík Innlent „Komið nóg af áföllum“ Innlent Hafi látið högg og spörk dynja á foreldrunum í tíu klukkustundir Innlent Ferðamaður lést við Breiðamerkursand Innlent Eldri borgarar sem verði fyrir ofbeldi ættingja geti hvergi leitað Innlent Á bát í Kyrrahafi þegar skjálftaflóðbylgjur skullu á Innlent Fleiri fréttir Óheppilegt ef fölsk mynd varpar sök á saklausan mann Skiptar skoðanir um umfang og kostnað vegna listaverks Ólafs í Eyjum Sakar sveitastjórann um atvinnuróg og „kæfandi klámhögg“ „Komið nóg af áföllum“ Níu ára og með sitt eigið „Fannars bakarí“ í Njarðvík „Þetta er hættuleg helgi“ Eldri borgarar sem verði fyrir ofbeldi ættingja geti hvergi leitað Aldraðir beittir ofbeldi af ættingjum og gervigreindarmistök lögreglu Ferðaþjónustuþorpið Vík: „Við erum ein á báti“ Tjaldsvæði á Norðurlandi óðum að fyllast Framkvæmdir við Hvammsvirkjun stöðvaðar Borgin hafnar yfirlýsingum KSÍ Fólk varist dúfur í Vestmannaeyjum Ógnaði vegfarendum með stórum hníf Ferðamaður lést við Breiðamerkursand „Í Evrópumálum tel ég að þetta sé ekki rétti tíminn að fara í þá vegferð“ Falið ofbeldi gegn eldri borgurum: „Þetta er barnið mitt, ég ól það upp, gerði ég mistök?“ Ísbjarnareftirlit á Vestfjörðum Íslenskum nemendum fækkar en erlendum fjölgar Lögregla biðst afsökunar vegna myndarinnar Þyrlan kölluð út vegna bráðra veikinda á Breiðamerkursandi Ofbeldi gegn eldri borgurum oft hulið Aukið viðbragð í öllum deildum lögreglu Lögregla dreifði gjörbreyttri mynd af díselþjófum Sendinefnd ESB tjáir sig ekki um tollana Líkir aðferðum forstjóra Landsvirkjunnar við heimilisofbeldi Breiðan „tjakkast upp“ og varað við framhlaupi við hraunjaðrana Meiddist á handlegg og fótum þegar glerhurð brotnaði „Það er rosalega ljótt að segja þetta en mér líður bara þannig“ Segir viðbrögð Bjarnheiðar vekja „óþægilegar minningar“ Sjá meira
Forsætisráðuneytið M i n n i s b l a ð Viðtakandi: Ríkisstjórn Íslands Sendandi: Forsætisráðherra og heilbrigðisráðherra Dagsetning: 12.10.2021 Málsnúmer: FOR20100056 Bréfalykill: 2.6 Efni: Framkvæmd temprunarleiðar – horfurnar framundan Frá 1. ágúst hafa 3.953 greinst innanlands með veiruna og 144 greinst í skimun vegna komu til landsins. Á þeim tíma hafa legið inni mest 25 einstaklingar samtímis og mest 9 á gjörgæslu. Þrír hafa látist á Íslandi frá 1. ágúst og voru tveir þeirra erlendir ferðamenn en einn Íslendingur. Mánudaginn 11. október lágu fimm einstaklingar á sjúkrahúsi og enginn var á gjörgæslu. Alls hafa 11.674 lokið einangrun frá upphafi faraldursins á Íslandi en 33 hafa látist (0,28%). Frá 1. ágúst hefur um 0,06% þeirra sem greinst hafa vegna COVID-19 innanlands látist. Stefna ríkisstjórnarinnar frá upphafi faraldursins hefur verið að vernda líf og heilsu landsmanna en lágmarka efnahagsleg og samfélagsleg áhrif faraldursins. Í því ljósi hefur ríkisstjórnin reglulega lagt mat á þá nálgun sem best nær því markmiði. Í því samhengi er mikilvægt að stöðugt sé lagt gagnrýnið mat á: a) hvað er áunnið með þeim takmörkunum sem eru viðhafðar í þágu sóttvarna og hvers virði er sá ábati, b) hverju er til kostað vegna þeirra takmarkana sem eru viðhafðar og hversu mikils virði er sú fórn. Á fundi ríkisstjórnarinnar 26. ágúst sl. var ákveðið að rétt væri að viðhafa áfram hóflegar takmarkanir í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis í því skyni að tempra útbreiðslu veirunnar. Í ákvörðun ríkisstjórnarinnar fólst að leið temprunar ætti ekki að standa lengur en í takmarkaðan tíma nema alvarlegar breytingar yrðu á eðli faraldursins. Í því minnisblaði kom fram að stefnt væri að sífellt minni takmörkunum og að drög yrðu lögð að slíkum áætlunum á næstunni. Nú þegar ljóst er að dreifing smita mun halda áfram þrátt fyrir bólusetningu, en þó með mun vægari afleiðingum heldur en í óbólusettu samfélagi, hefur mat á áhættu breyst. Verndun almennra lífsgæða landsmanna, til lengri tíma, þar á meðal eðlilegs skóla- og frístundastarfs, menningarlegrar og efnahagslegrar virkni, vegur því þyngra en áður. Reynslan af afléttingu sóttvarnaaðgerða 26. júní sl. og mikil fjölgun greindra smita í kjölfarið, leiddi í ljós að hjarðónæmi, í þeim skilningi að dreifing veirunnar stöðvist algjörlega og fjari út, á grundvelli bólusetningar yrði líklega ekki náð. Bólusett fólk mun smitast af kórónaveirunni, það mun smita aðra og munu smitin valda veikindum hjá einhverjum hluta smitaðra, og alvarlegum veikindum hjá sumum. Sú vörn sem felst í bólusetningunni hefur hins vegar dregið stórlega úr alvarlegum afleiðingum fyrir þá einstaklinga sem smitast, og eru einkenni lítil sem engin hjá stórum hluta þeirra. Þá hefur opnun skólastarfs í haust og sú staðreynd að samneyti milli fólks hefur stóraukist ekki leitt til þess að faraldurinn hafi farið í veldisvöxt. Reynsla af síðustu vikum og mánuðum, þar sem litlar raunverulegar sóttvarnir hafa verið viðhafðar innanlands, gefur tilefni til að ætla að hættan á óviðráðanlegum faraldri COVID-19 hafi minnkað. Íslensk stjórnvöld líta þar að auki til þess að öll hin Norðurlöndin hafa nú aflétt öllum innanlandstakmörkunum. Hafa stjórnvöld þar rökstutt ákvörðun sína með þeim rökum að ólíklegt sé að faraldur kórónaveiru í vel bólusettu samfélagi yrði alvarleg ógn við samfélagið í heild. Þá hafa öll hin Norðurlöndin mun vægari aðgerðir á landamærum gagnvart bólusettum farþegum. Í Færeyjum eru þó til staðar tilmæli um að farþegar fari af eigin frumkvæði í skimun innan tveggja daga frá komu til landsins. Aukinn viðnámsþróttur í heilbrigðiskerfinu Gripið hefur verið til aðgerða til þess að efla viðnámsþrótt í heilbrigðiskerfinu og mun afrakstur þeirrar vinnu koma til framkvæmda á næstu vikum. Það mun leiða til þess að innviðir í heilbrigðiskerfinu eru betur búnir undir að eiga við afleiðingar þess ef fjölgun smita verður í kjölfar afléttingar takmarkana, og einnig ef álag á heilbrigðiskerfið vegna árlegrar inflúensu og umgangspesta verður meira en í venjulegu árferði. Sem dæmi um þær aðgerðir er styrking heimahjúkrunar á höfuðborgarsvæðinu, tímabundin fjölgun legurýma á heilbrigðisstofnunum og hjúkrunarheimilum á suðvesturhorni landsins, undirbúningur varanlegrar fjölgunar legurýma á LSH og styrking sjúkraflutninga til að meðhöndla sjúklinga í heimahúsum þegar það á við, í stað flutnings á bráðamóttöku. Því til viðbótar má nefna að Sjúkratryggingar eru að ganga frá samningi við hjúkrunarheimilið EIR sem mun létta undir Landspítala með því að annast Covid-smitaða aldraða sem ekki þarfnast sjúkrahúsþjónustu en geta ekki uppfyllt einangrunarkröfur á sínu heimili, hvort sem er hjúkrunarheimili eða eigið heimili. Til viðbótar við þær aðgerðir sem gripið hefur verið til í því skyni að efla getu LSH til þess að bregðast við útbreiddum veikindum, má gera ráð fyrir að breytt eðli COVID-19 faraldursins geti leitt til þess að endurskoða megi þá þjónustu og eftirlit sem einkennalitlir og einkennalausir einstaklingar fá. Niðurlag Heilbrigðisráðherra hyggst á næstu dögum ræða við sóttvarnalækni um næstu skref í sóttvarnaráðstöfunum innanlands.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Tengdar fréttir Tveir af þremur sem létust í ágúst voru erlendir ferðamenn Þrír hafa látist á Íslandi frá 1. ágúst vegna Covid-19. Tveir þeirra voru erlendir ferðamenn og einn þeirra Íslendingur. Þetta kemur fram í minnisblaði forsætis- og heilbrigðisráðherra sem lagt var fram á fundi ríkisstjórnarinnar í gær. 13. október 2021 09:57 Mest lesið Óheppilegt ef fölsk mynd varpar sök á saklausan mann Innlent Sakar sveitastjórann um atvinnuróg og „kæfandi klámhögg“ Innlent „Eins og að vera úti á rúmsjó“ í Eyjum annað kvöld Veður Skiptar skoðanir um umfang og kostnað vegna listaverks Ólafs í Eyjum Innlent Níu ára og með sitt eigið „Fannars bakarí“ í Njarðvík Innlent „Komið nóg af áföllum“ Innlent Hafi látið högg og spörk dynja á foreldrunum í tíu klukkustundir Innlent Ferðamaður lést við Breiðamerkursand Innlent Eldri borgarar sem verði fyrir ofbeldi ættingja geti hvergi leitað Innlent Á bát í Kyrrahafi þegar skjálftaflóðbylgjur skullu á Innlent Fleiri fréttir Óheppilegt ef fölsk mynd varpar sök á saklausan mann Skiptar skoðanir um umfang og kostnað vegna listaverks Ólafs í Eyjum Sakar sveitastjórann um atvinnuróg og „kæfandi klámhögg“ „Komið nóg af áföllum“ Níu ára og með sitt eigið „Fannars bakarí“ í Njarðvík „Þetta er hættuleg helgi“ Eldri borgarar sem verði fyrir ofbeldi ættingja geti hvergi leitað Aldraðir beittir ofbeldi af ættingjum og gervigreindarmistök lögreglu Ferðaþjónustuþorpið Vík: „Við erum ein á báti“ Tjaldsvæði á Norðurlandi óðum að fyllast Framkvæmdir við Hvammsvirkjun stöðvaðar Borgin hafnar yfirlýsingum KSÍ Fólk varist dúfur í Vestmannaeyjum Ógnaði vegfarendum með stórum hníf Ferðamaður lést við Breiðamerkursand „Í Evrópumálum tel ég að þetta sé ekki rétti tíminn að fara í þá vegferð“ Falið ofbeldi gegn eldri borgurum: „Þetta er barnið mitt, ég ól það upp, gerði ég mistök?“ Ísbjarnareftirlit á Vestfjörðum Íslenskum nemendum fækkar en erlendum fjölgar Lögregla biðst afsökunar vegna myndarinnar Þyrlan kölluð út vegna bráðra veikinda á Breiðamerkursandi Ofbeldi gegn eldri borgurum oft hulið Aukið viðbragð í öllum deildum lögreglu Lögregla dreifði gjörbreyttri mynd af díselþjófum Sendinefnd ESB tjáir sig ekki um tollana Líkir aðferðum forstjóra Landsvirkjunnar við heimilisofbeldi Breiðan „tjakkast upp“ og varað við framhlaupi við hraunjaðrana Meiddist á handlegg og fótum þegar glerhurð brotnaði „Það er rosalega ljótt að segja þetta en mér líður bara þannig“ Segir viðbrögð Bjarnheiðar vekja „óþægilegar minningar“ Sjá meira
Tveir af þremur sem létust í ágúst voru erlendir ferðamenn Þrír hafa látist á Íslandi frá 1. ágúst vegna Covid-19. Tveir þeirra voru erlendir ferðamenn og einn þeirra Íslendingur. Þetta kemur fram í minnisblaði forsætis- og heilbrigðisráðherra sem lagt var fram á fundi ríkisstjórnarinnar í gær. 13. október 2021 09:57