Magdeburg og Bergischer höfðu betur í Íslendingaslögum dagsins Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 23. september 2021 19:14 Ómar Ingi fagnar marki fyrr á leiktíðinni en hann lék á alls oddi í dag. Uwe Anspach/Getty Fjórir leikir fóru fram í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag og tveir af þeim voru Íslendingaslagir. Magdeburg með Ómar Inga Magnússon og Gísla Þorgeir Kristjánsson innanborðs vann öruggan sigur gegn Daníel Þór Ingasyni og HBW Balingen-Weilstetten 28-17. Arnór Þór Gunnarsson skoraði tvö mörk fyrir Bergischer sem vann með minnsta mun gegn Andra Má Rúnarssyni og félögum hans í Stuttgart, 26-25.
Magdeburg tók forystuna strax á fyrstu mínútu og hleypti Balingen aldrei nálægt sér eftir það. Þegar að flautað var til hálfleiks var munurinn sex mörk, 14-8. Magdeburg hélt áfram að þjarma að Daníel Þór og félögum í seinni hálfleik og náðu mest tólf marka forskoti. Að lokum unnu þeir öruggan ellefu marka sigur, 28-17. Ómar Ingi skoraði fjögur mörk fyrir Magdeburg og Gísli Þorgeir eitt. Daníel Þór gerði eitt mark fyrir Balingen sem hefur aðeins unnið einn af fyrstu fjórum leikjum sínum. Magdeburg hefur hins vegar byrjað tímabilið mun betur og er með fullt hús stiga eftir fjórar umferðir. Leikur Bergischer og Stuttgart bauð upp á mun meiri spennu en viðuregin Magdeburg og Balingen. Mikið jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik og staðan var 12-10 þegar að gengið var til búningsherbergja. Arnór Þór og félagar náðu mest fjögurra marka forskoti um miðjan seinni hálfleik, en Stuttgart minnkaði muninn aftur niður í eitt mark þegar að lítið var eftir. Þeir náðu þó ekki að jafna metin og Arnór Þór og félagar unnu því með minnsta mun, 26-25, og hefur unnið þrjá af fyrstu fjórum leikjum sínum. Stuttgart hefur leikið einum leik minna, en er enn í leit að sínum fyrstu stigum.
Handbolti Þýski handboltinn Mest lesið Fresta ákvörðun um hugsanlegt bann á Trump Sport „Þýðir mikið fyrir mig og leikmennina að fá ást frá stuðningsmönnunum“ Enski boltinn Schmeichel um áfall sonarins: „Vil ekki að þetta endi svona“ Fótbolti Tottenham beit frá sér en Bayern München kjöldróg Ítalana Fótbolti Neitaði að stökkva í skíðastökki: „Ég hugsaði um kærustuna mína“ Sport Salah bætti fyrir vítaklúðrið og Liverpool raðaði inn mörkum í seinni Fótbolti „Við hefðum getað unnið 10-0“ Fótbolti „Einn leikur eftir og því miður erum við ekki með pálmann í höndunum“ Sport „Enginn tími til að vorkenna sjálfum okkur“ Fótbolti Glósublað Rosenior og meira fíaskó: „Fáránlegur leikþáttur“ Fótbolti Fleiri fréttir Deildarmeistarar Vals unnu nauman sigur fyrir norðan Uppgjörið: Stjarnan - Fram 34-34 | Stjarnan heldur lífi í fallsætisbaráttunni „Ekki endilega það sem maður vildi“ Leiðtoginn Sigvaldi fer til Þýskalands Alfreð með skýrt svar: „Þeir verða að ráða framhaldinu“ Strákarnir okkar slógu í gegn í Smáralindinni „Allt of snöggur og óvæntur endir“ Hægt að hitta handboltahetjurnar í dag Enginn slaki gefinn Hótar eigin leikmönnum og þjálfurum Ísak dró sig úr hópnum gegn Svíum VIP-miðar í boði til að komast nær strákunum okkar Viggó og Andri fengu skell gegn meisturunum Nýbakaði faðirinn með níu mörk Íslendingaliðið úr leik eftir tap í undanúrslitum Víkingur Reykjavík upp í Olís deildina „Þetta er ekki búið“ Sara Dögg í miklum ham er ÍR styrkti stöðu sína Valur - Fram 32-31 | Risaleikur Lovísu kláraði Fram „Hefði verið leiðinlegt að skora öll þessi mörk og tapa“ Donni drjúgur og Elvar með frábæran leik Selfoss hafði sætaskipti við Stjörnuna á botninum Haukar stöðvuðu sigurgöngu Eyjakvenna Stiven flaug áfram í átta liða úrslit Teitur og Elliði unnu Íslendingaslaginn Haukur og félagar eyðilögðu hátíðarhöld Guðmundur og Ísak að missa af úrslitakeppninni Tvisvar markakóngur fyrir tvítugt „Þetta er svolítið skrítið því ég vil ekki „jinxa“ neitt“ „Þórsarinn er svo geggjaður“ Sjá meira