Ian Jeffs: Þetta var markmiðið þegar við tókum við Dagur Lárusson skrifar 4. september 2021 16:46 Ian Jeffs er til vinstri á myndinni. Mynd/Eyjafréttir.is Ian Jeffs, þjálfari ÍBV, var bæði ósáttur og sáttur í leikslok eftir naumt 3-2 tap gegn Þrótti í Pepsi Max deild kvenna í dag.
ÍBV var 2-0 undir í hálfleik en liðið átti síðan frábæra endurkomu í seinni hálfleiknum áður en Andrea Rut Bjarnadóttir skoraði síðan sigurmark Þróttara. ,,Við vorum virkilega slakar í fyrri hálfleiknum en í seinni hálfleiknum var þetta allt annað. Kannski var sanngjörn niðurstaða bara jafntefli,” sagði Ian Jeffs, aðspurður hvort að úrslitin hafi verið sanngjörn. ,,Málið er að við gefum alltaf liðum mörk, liðin sem við mætum þurfa eiginlega ekki að gera neitt til þess að skora gegn okkur því við gefum þeim alltaf mörk og þetta hefur verið að hrjá okkur í sumar. Við virðumst gefa mörk úr föstu leikatriði í hverjum einasta leik,” hélt Ian Jeffs áfram. ÍBV kom til baka í seinni hálfleiknum eftir að hafa verið 2-0 undir og var staðan orðin 2-2 á 70.mínútu. Ian vill meina að hápressan hafi skilað þessari endurkomu. ,,Ég vil hrósa liðinu mínu fyrir þennan hluta í leiknum. Við fórum einfaldlega að pressa þær betur. Það var uppleggið fyrir leikinn að vera með hápressu en við gerðum það ekki vel í fyrri hálfleiknum, en á þessum tíma í leiknum þá gerðum við það vel sem skilaði þessum tveimur mörkum.” Þrátt fyrir tapið er ÍBV með örugt sæti í efstu deild næsta sumar þar sem Fylkir tapaði í dag. Ian er að sjálfsögðu ánægður með það. ,,Það var markmiðið þegar við tókum við þessu um mitt sumarið, að halda okkur í deildinni. Þetta er búið að vera erfitt hjá okkur, erum búin að vera án okkar helsta markaskorara, hún er ekkert búin að spila í seinni hlutanum. Þannig það gleður mig mikið að þetta félag verði áfram í efstu deild næsta sumar,” endaði Jeffs á að segja.
Pepsi Max-deild kvenna ÍBV Mest lesið Kristófer Acox kallar sig glæpamann Körfubolti Svona var blaðamannafundur Arnars Fótbolti Arnar Gunnlaugsson las yfir vælandi fýlupúkum hjá Real Madrid Fótbolti Rooney að kenna að Liverpool er komið á sigurbrautina á ný? Enski boltinn Littler kjörinn kynþokkafyllsti íþróttamaður heims Sport Hópurinn fyrir lokaleikina: Hörður og Jóhann snúa aftur Fótbolti „Ég myndi ekki óska neinum þess að lenda í þessu“ Fótbolti Besta tenniskona heims tekur þátt í nýrri „Baráttu kynjanna“ Sport Fékk faðmlag frá konu Diogo Jota í miðju maraþoni Enski boltinn Þurfti að kaupa nýjan iPhone fyrir alla í liðinu Fótbolti Fleiri fréttir „Við viljum koma Haukum á fótboltakortið“ Fram líka fljótt að finna nýja ást „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Hermann tekinn við Val Fóru nýja leið í ár og auglýstu eftir þjálfara: Tommy Nielsen ráðinn Pablo og Óskar Örn inn í þjálfarateymi Hauka FH-ingar kveðja Kjartan Henry Tölur úr Bestu: Bjartur Bjarmi fór í flestar tæklingar af öllum Gísli semur við Skagamenn Óskar Smári tekur við Stjörnunni Bretinn ráðinn tæknilegur ráðgjafi hjá Val Fram þvertekur fyrir metnaðarleysi og leitar að nýjum þjálfurum Tölur úr Bestu: Hallgrímur Mar bjó til langflest færi „Mjög sáttur með samninginn“ „Hefði séð eftir því alla ævi“ Magnús Már í viðræðum við HK Uppgjörið: Ísland - Norður-Írland 3-0 | Áfram hluti af elítunni Tölur úr Bestu 2025: Klúðraði langflestum dauðafærum í sumar FH bíður með að tilkynna nýjan þjálfara Óskar Hrafn fer ekki fet Birnir frá Akureyri í Garðabæ Hættir með Fram Heimir kynntur til leiks í Árbænum Túfa rekinn frá Val Leyndarmáli ljóstrað upp þegar Heimir og Björn kvöddu Leikmenn kusu Patrick og Guðmund Sjáðu bananabombu Antons Loga og önnur síðustu mörk tímabilsins Uppgjörið: Stjarnan - Breiðablik 2-3 | Stjarnan í Evrópu þrátt fyrir tap Sjá meira