Blikar búnir að vinna sjö leiki í röð á gervigrasi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. ágúst 2021 12:30 Höskuldur Gunnlaugsson skoraði tvö mörk fyrir Breiðabliksliðið í sigrinum í Garðabænum í gær. Vísir/Hafliði Breiðfjörð Það er erfitt að ráða við léttleikandi lið Blika á gervigrasi og það sýnir líka tölfræðin. Blikar unnu Stjörnuna 3-1 í Pepsi Max deildinni í gærkvöldi og hafa þar með unnið sjö leiki í röð á gervigrasi hvort sem það eru deildarleikir eða leikir í Evrópukeppni. Það sem meira er að markatala Blika í þessum sjö síðustu gervigrasleikjum er átján mörk í plús eða 22 mörk á móti 4. Þeir eru því búnir að skora 3,14 mörk í leik í leikjunum sjö. Það gengur ekki eins vel á grasvöllunum því Blikar hafa ekki unnið grasleik síðan þeir sóttu sigur til Lúxemborgar í fyrstu umferð Evrópukeppninnar 8. júlí síðastliðinn. Í þeim leik lentu þeir 2-0 undir á móti Racing FC Union en tókst að komast til baka og vinna 3-2 sigur. Blikar eru síðan án sigurs í fjórum síðustu grasleikjum sínum og meðal þeirra er fyrri leikurinn á móti Aberdeen á Laugardalsvellinum í síðustu viku. Liðin mætast síðan aftur á grasinu á Pittodrie leikvanginum á fimmtudaginn. Blikar duttu líka út úr bikarnum eftir 2-0 tap í framlengingu á móti Keflavík á grasvellinum í Keflavík. En þegar þeir spila á gervigrasi þá virðast fáir ráða við þá þessa dagana. Síðasti til að vinna þá á gervigrasi voru Valsmenn 16. júní síðastliðinn.
Blikar unnu Stjörnuna 3-1 í Pepsi Max deildinni í gærkvöldi og hafa þar með unnið sjö leiki í röð á gervigrasi hvort sem það eru deildarleikir eða leikir í Evrópukeppni. Það sem meira er að markatala Blika í þessum sjö síðustu gervigrasleikjum er átján mörk í plús eða 22 mörk á móti 4. Þeir eru því búnir að skora 3,14 mörk í leik í leikjunum sjö. Það gengur ekki eins vel á grasvöllunum því Blikar hafa ekki unnið grasleik síðan þeir sóttu sigur til Lúxemborgar í fyrstu umferð Evrópukeppninnar 8. júlí síðastliðinn. Í þeim leik lentu þeir 2-0 undir á móti Racing FC Union en tókst að komast til baka og vinna 3-2 sigur. Blikar eru síðan án sigurs í fjórum síðustu grasleikjum sínum og meðal þeirra er fyrri leikurinn á móti Aberdeen á Laugardalsvellinum í síðustu viku. Liðin mætast síðan aftur á grasinu á Pittodrie leikvanginum á fimmtudaginn. Blikar duttu líka út úr bikarnum eftir 2-0 tap í framlengingu á móti Keflavík á grasvellinum í Keflavík. En þegar þeir spila á gervigrasi þá virðast fáir ráða við þá þessa dagana. Síðasti til að vinna þá á gervigrasi voru Valsmenn 16. júní síðastliðinn. Síðustu leikir Blika á gervigrasi 9. ágúst: 3-1 sigur á Stjörnunni 2. ágúst: 4-0 sigur á Víkingi 29. júlí: 2-1 sigur á Austria Vín 15. júlí: 2-0 sigur á Racing FC Union 3. júlí: 4-0 sigur á Leikni 27. júní: 3-2 sigur á HK 20. júní: 4-0 sigur á FH -- Síðustu leikir Blika á náttúrulegu grasi 5. ágúst: 2-3 tap fyrir Aberdeen 25. júlí: 0-2 tap fyrir Keflavík 22. júlí: 1-1 jafntefli við Austria Vín 18. júlí: 1-1 jafntefli við KR 8. júlí: 3-2 sigur á Racing FC Union
Síðustu leikir Blika á gervigrasi 9. ágúst: 3-1 sigur á Stjörnunni 2. ágúst: 4-0 sigur á Víkingi 29. júlí: 2-1 sigur á Austria Vín 15. júlí: 2-0 sigur á Racing FC Union 3. júlí: 4-0 sigur á Leikni 27. júní: 3-2 sigur á HK 20. júní: 4-0 sigur á FH -- Síðustu leikir Blika á náttúrulegu grasi 5. ágúst: 2-3 tap fyrir Aberdeen 25. júlí: 0-2 tap fyrir Keflavík 22. júlí: 1-1 jafntefli við Austria Vín 18. júlí: 1-1 jafntefli við KR 8. júlí: 3-2 sigur á Racing FC Union
Pepsi Max-deild karla Breiðablik Mest lesið Ógeðslega erfitt og ógeðslega vont en brosir oft í viku á eftir Sport „Nú er nóg komið“ Fótbolti Fram þvertekur fyrir metnaðarleysi og leitar að nýjum þjálfurum Íslenski boltinn Skortir Liverpool breidd þrátt fyrir gríðarleg fjárútlát síðasta sumar? Enski boltinn Grafalvarleg staða: „Þurfum að fara í sársaukafullar aðgerðir“ Handbolti Sádar eru ekki að fara að byggja HM-leikvang ofan á skýjakljúfi Fótbolti Nefna greinar Íslandsmótsins í CrossFit í höfuðið á íslenskum íþróttakonum Sport „Búnir að sýna hvað við getum verið lélegir“ Körfubolti Eldgos og brjósklos skapa óvissu: „Vonum bara að móðir náttúra leyfi þetta“ Sport NBA-leikmaður með krabbamein Körfubolti Fleiri fréttir Bretinn ráðinn tæknilegur ráðgjafi hjá Val Fram þvertekur fyrir metnaðarleysi og leitar að nýjum þjálfurum Tölur úr Bestu: Hallgrímur Mar bjó til langflest færi „Mjög sáttur með samninginn“ „Hefði séð eftir því alla ævi“ Magnús Már í viðræðum við HK Uppgjörið: Ísland - Norður-Írland 3-0 | Áfram hluti af elítunni Tölur úr Bestu 2025: Klúðraði langflestum dauðafærum í sumar FH bíður með að tilkynna nýjan þjálfara Óskar Hrafn fer ekki fet Birnir frá Akureyri í Garðabæ Hættir með Fram Heimir kynntur til leiks í Árbænum Túfa rekinn frá Val Leyndarmáli ljóstrað upp þegar Heimir og Björn kvöddu Leikmenn kusu Patrick og Guðmund Sjáðu bananabombu Antons Loga og önnur síðustu mörk tímabilsins Uppgjörið: Stjarnan - Breiðablik 2-3 | Stjarnan í Evrópu þrátt fyrir tap „Held að ég geti ekki gert mikið meira“ Uppgjörið: Vestri - KR 1-5 | KR bjargaði sér og sendi Vestra í Lengjudeildina Uppgjörið: ÍA - Afturelding 1-0 | Afturelding staldraði stutt við í efstu deild Uppgjörið: Víkingur - Valur 2-0 | Meistararnir klára tímabilið með stæl Uppgjörið: ÍBV - KA 3-4 | KA tryggði sér Forsetabikarinn þriðja árið í röð Ráðast örlög Aftureldingar inni í höll? „Þetta verður bara veisla fyrir vestan“ Vestri og KR mætast á fyrsta degi vetrar: „Vona að það snjói ekki í nótt“ Lárus Orri framlengir á Skaganum „Kominn tími á sigur í Sambandsdeildinni“ Tekur við af læriföður sínum Snjó kyngir niður á Akureyri og Evrópuleikur færður inn Sjá meira