Esjan er horfin Jakob Bjarnar skrifar 19. júlí 2021 10:52 Gosmengunin hefur sjaldan verið meiri en nú á höfuðborgarsvæðinu. Þannig hylur gosmóðan bæjarfjall Reykvíkinga, ekki svo mikið sem grillir í fjallið sem yfirleitt blasir tignarlegt við frá þessu sjónarhorni. vísir/vésteinn Gosmóða hylur nú bæjarfjall höfuðborgabúa. Sjaldan eða aldrei hefur gosmengunin verið svo mikil í höfuðborginni.
Veðurstofan hefur sent út ítrekun þar sem hún vill koma á framfæri ábendingum til almennings vegna gosmóðunnar á höfuðborgarsvæðinu öllu sem berst frá eldgosinu í Fagradalsfjalli. „Nokkuð há gildi á bennisteinsdíoxíð og súlfötögnum hafa mælst á höfuðborgarsvæðinu og upp í Hvalfirði frá því árla í morgun auk þess sem móðan er vel sýnileg á höfuðborgarsvæðinu,“ segir í skeyti Veðurstofunnar. En Veðurstofu hefur borist tilkynningar víðar en af höfuðborgarsvæðinu um gosmóðuna miklu, þannig hefur hennar orðið vart alla leið austur í Hreppa og þar finnur fólk fyrir áhrifum gossins. Þá mældist gosmóðan einnig í Færeyjum í gær þannig að áhrifanna gætir víða. Til samanburðar má hér sjá Esjuna frá sama sjónarhorni. Myndin er tekin í kvöldsólinni að vetrarlagi.Vísir/Jakob Mælt er með því að einstaklingar sem viðkvæmir eru fyrir loftmengun fari sér varlega og þá er varað við því að kornabörn séu látin sofa utandyra við þessar aðstæður. Ef fólk erfiðar utandyra í gosmóðunni gæti það haft áhrif á viðkvæma. Viðkvæmir ættu að fara sér varlega Á Facebooksíðu SUM – Samtök um áhrif umhverfis á heilsu segir að þeir sem eru sérlega viðkvæmir gætu fundið fyrir verulegum óþægindum í öndunarvegi og er í slíkum tilfellum mælt með því að þeir haldi sig innan dyra með lokaða glugga. Fjölkerfaáhrif eru misjöfn eftir einstaklingum en dæmi eru um að fólk hafi haft samband við lækni, heilsugæslu, læknavakt og LSH. Í þeim hópi er fólk með öndunarfærasjúkdóma og fólk sem er viðkvæmt fyrir umhverfismengun, til að mynda eftir að hafa veikst vegna myglu- og rakaskemmda eða eitrunar af öðru tagi. Gosmóðan inniheldur mengun sem hefur náð að umbreytast og greinist hún því ekki með hefðbundnum mælingum á brennisteinsdíoxíði (SO2) heldur sést sem hækkun í fínasta svifrykinu, PM2,5 og PM1. Kl. 9:00 mældist PM2,5 32,3 míkrógrömm á rúmmeter og PM1 31,8 míkrógrömm á rúmmeter í mælistöð Heilbrigðiseftirlitsins við Bústaðarveg. Klukkan 10:00 mældist PM 2,5 50 míkrógrömm á rúmmeter í mælistöð Umhverfisstofnunar við Grensásveg. Gosmóða næstu daga (Uppfært 11:22) Reykjavíkurborg hefur sent út sérstaka tilkynningu vegna gosmóðunnar sem fer hér á eftir: „Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni gæti gosmóðan legið áfram yfir höfuðborginni á morgun en ætti að færast í burtu á miðvikudag. Vindátt breytist seint á miðvikudag eða fimmtudag og mun þá SO2 mengun hætta að berast frá gosinu yfir borgina. Gosmóðan eða blámóða (Volcanic smog) er loftmengun sem verður til þegar SO2, önnur gös og agnir hvarfast við súrefni og raka með tilstuðlan sólarljóssins. Þær agnir sem myndast eru m.a. brennisteinssýra og önnur brennisteinssambönd. Hún hefur einkennandi blágráan lit sem myndast er sólarljósið brotnar á ögnum/úða. Almenningur er hvattur til að fylgjast með tilkynningum Veðurstofunnar um gosmóðuna og einnig má skoða stöðu loftgæða á vef Umhverfisstofnunar en þar má sjá kort yfir staðsetningu loftgæðamælistöðva í Reykjavík og fylgjast með styrk brennisteinsdíoxíðs (SO2), svifryks og annarra efna.“ Almennar ráðleggingar varðandi gasmengun eru eftirfarandi: Lungna og hjartasjúklingar hafi sín lyf tiltæk Andið sem mest með nefi og forðast líkamlega áreynslu utandyra í mikill mengun því það dregur úr þeim styrk sem kemst niður í lungu. Dvöl innanhúss með lokaða glugga og slökkt á loftræstingu veitir verulega vörn fyrir menguninni. Athugið að rykgrímur veita enga vörn gegn gasmengun Ráðstafanir til varnar SO2 og annari gosmengun mengun innandyra Lokaðu gluggum og minnkaðu umgengni um útidyr. Hækkaðu hitastigið í húsinu. Loftaðu út um leið og loftgæði batna utandyra.
Eldgos í Fagradalsfjalli Loftslagsmál Heilbrigðismál Umhverfismál Esjan Mest lesið Lak trúnaðargögnum um Icesave til viðskiptamógúls Erlent Landfylling í Skerjafirði: Óttast að borgin vaði af stað Innlent „Þá er Ísland kannski næsti biti“ Innlent Skotinn til bana við að ógna lögreglumönnum með hníf og skærum Erlent Kanna samninga við Klíníkina vegna „hamfaraástands“ Innlent Fjölmargir Íslendingar á ADHD-lyfjum sviptir bílprófi Innlent Loðnutorfur á hraðferð með suðurströndinni Innlent „Ég hef aldrei séð svona samninga“ Innlent Á leið til Íslands átta vikum eftir slysið Innlent Siguðu lögreglu á sofandi fastakúnna Innlent Fleiri fréttir Landfylling í Skerjafirði: Óttast að borgin vaði af stað Loðnutorfur á hraðferð með suðurströndinni „Þá er Ísland kannski næsti biti“ Algjör samstaða sé um að hækka bætur Kanna samninga við Klíníkina vegna „hamfaraástands“ Vildi fá hestinn endurgreiddan þar sem hann var með aukatönn Viðræður við Klíníkina, barátta stórvelda og Breiðholt Got Talent Óðinn Svan leiðir L-listann Siguðu lögreglu á sofandi fastakúnna „Ég hef aldrei séð svona samninga“ Tveir veiðimenn fengu tvær milljónir frá Hval Boðar tímabundna heimild svo unnt sé að senda erlenda fanga fyrr úr landi Kominn undan feldi og svarið er nei Féll allt að tuttugu metra við foss á Snæfellsnesi Bíða enn gagna mánuði frá upphafi rannsóknar Gagnrýnin byggi „að miklu leyti á misskilningi“ Framlag Íslands mun minna en annarra Norðurlanda Á leið til Íslands átta vikum eftir slysið VG vex og býður á stefnumót og Vor til vinstri leitar að fólki Allt rykbindiefni búið Fjölmargir Íslendingar á ADHD-lyfjum sviptir bílprófi Bruninn látinn klára sig og vettvangur afhentur lögreglu Framlag Íslands hlutfallslega lítið og svifrykið hrellir borgarbúa Dorrit líkaði aldrei við „slepjulegan“ Epstein Tveggja bíla árekstur á Hellisheiði Fá sálfræðitíma en vilja bætur Yngra fólk líklegra til að strengja áramótaheit Kettir drápust á meðan eigandinn var á ferðalagi Ekki innritað í fjóra leikskóla í Reykjavík í haust Logar í yfirgefnum bústað við Elliðavatn Sjá meira