Elding banaði ellefu á þekktum túristastað Óttar Kolbeinsson Proppé og Gunnar Reynir Valþórsson skrifa 12. júlí 2021 08:10 Eldingar verða um tvö þúsund manns að bana í Indlandi á hverju ári. getty/amlan matur Ellefu hið minnsta létu lífið þegar eldingu laust niður í gamlan virkisturn á Indlandi í gær. Atvikið átti sér stað í Jaipur héraði í norðurhluta landsins en virkið er vinsæll áfangastaður túrista og turn þess þykir sérlega vel fallinn til að taka svokallaðar sjálfumyndir á símann sinn.
Um 27 manns voru í turninum þegar eldingunni laust niður og létu sumir lífið þegar þeir köstuðu sér niður úr turninum. Að sögn lögreglu á svæðinu voru flestir þeirra sem létust ungir að aldri. Eldingaveður eru tíð á Indlandi en samkvæmt frétt BBC láta um tvö þúsund manns lífið árlega af völdum eldinga á Indlandi. Til viðbótar við þá ellefu sem létu lífið í turninum létust níu aðrir í sama héraði vegna eldinga í gær. Svokallaður monsúntími er nú á Indlandi og fylgja honum miklar rigningar og eldingaveður. Hann varir oftast frá júní og fram í september. Dauðsföll af völdum eldinga hafa tvöfaldast í landinu síðan á sjöunda áratug síðustu aldar og kenna vísindamenn í landinu hlýnun jarðar um þá þróun.
Indland Náttúruhamfarir Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Erlent Fleiri fréttir Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Sjá meira