Eyðileggur sjóðheitur Cristiano Ronaldo síðasta séns belgísku gullkynslóðarinnar? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. júní 2021 10:45 Cristiano Ronaldo fagnar einu af fimm mörkum sínum á Evrópumótinu. AP/Darko Bandic Evrópumeistarar Portúgals lifðu af Dauðariðilinn þökk sé því að Cristiano Ronaldo var í miklum markaham. Nú er komið að uppgjöri á móti einu af sigurstranglegasta liði keppninnar.
í fótbolta Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Var klár í samkeppnina við Ingvar Íslenski boltinn „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Enski boltinn Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn Fleiri fréttir Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Sjá meira
Tvö af þeim þremur liðum sem voru með fullt hús í riðlakeppni Evrópumótsins í knattspyrnu mæta til leiks í útsláttarkeppninni í dag. Það er líka von á mörkum í dag því þrjú markahæstu liðin í mótinu verða þá í eldlínunni. Nágrannarnir Holland og Belgía unnu bæði alla þrjá leiki sína í riðlakeppninni og þau spila bæði í sextán liða úrslitunum í dag. Hollendingar mæta Tékkum, sem urðu í þriðja sæti í D-riðli en Belgar mæta Evrópumeisturum Portúgals sem náðu bara þriðja sætinu í F-riðlinum. Á sama tíma og Hollendingar og Belgar hafa unnið þrjá leiki í röð þá unnu lið Tékka og Portúgals góða sigra í fyrsta leik sínum á mótinu en hafa síðan ekki náð að fagna sigri í tveimur leikjum. Leikur Hollands og Tékklands hefst klukkan 16.00 en leikur Belgíu og Portúgals klukkan 19.00. Það var búist við miklu af Belgum á þessu móti þar sem Gullkynslóðin fær ekki mörg tækifæri í viðbót til að vinna stórmót og landslið þeirra er vissulega í efsta sæti á heimslista FIFA. Belgar afgreiddu sinn riðil líka frekar sannfærandi og enduðu með sex stiga forskot á næsta lið og markatöluna 7-1. @Cristiano in the City of Sevilla Sevilla FC & Real Betis1 4 Games1 7 Goals [Ratio 1.21] 3 Hattricks [Including 1 POKER] 8 Wins (57%) 1 Draw (7%)5 Losses (36%)His next Game in the City of Sevilla : Portugal vs Belgium #Euro2020 pic.twitter.com/MDYt8om4YH— #EURO2020 (@Twitugal) June 24, 2021 Hollendingar voru meira spurningarmerki fyrir mótið en þeir hafa unnið þrjá góða sigra. Þeir hleyptu reyndar Úkraínumönnum inn í fyrsta leikinn sinn sem Hollendingar unnu á endanum 3-2 en síðustu tveir leikir hafa unnist sannfærandi, 2-0 og 3-0. Augun verða á Portúgalanum Cristiano Ronaldo sem fyrr en hann hefur verið sjóðheitur á mótinu og er markahæsti leikmaður keppninnar með fimm mörk í fyrstu þremur leikjunum. Portugal at Euro 2020 had to:Play Hungary in Budapest. Play Germany in Munich. Play the defending world champions. Now have to face number one ranked Belgium. If I ever meet the guy who decided on this format he s getting a kick in the face.— Sid Seixeiro (@Sid_Seixeiro) June 23, 2021 Portúgalar ættu líka að vera farnir að þekkja það vel að mæta öflugum liðum því tveir síðustu mótherjar hafa verið Þýskaland og heimsmeistarar Frakka. Belgíska liðið fékk mun minni mótspyrnu í sínum riðli og þetta voru frekar létt dagsverk fyrir utan leikinn á móti Dönum þar sem þeir komu til baka eftir að hafa lent undir snemma leiks. Hollendingar hafa sloppið við stórlið í byrjun móts þökk sé frekar þægilegum riðli og Tékkar eru ekki lið sem ætti að stoppa hollenska liðið. Tékkinn Patrik Schick skoraði þrisvar í fyrstu þremur hálfleikjum mótsins þar á meðal ógleymanlegt mark frá miðju á móti Skotum. Hvorki Patrik Schick né liðsfélagar hans hafi fundið marknetið á síðustu 143 mínútum mótsins. Cristiano Ronaldo = Portugal legend 1st Portuguese player to score in all 3 group games at a EURO 48 goals in his last 45 international matches 7 goals in Portugal s last 4 EURO group matches#EURO2020 pic.twitter.com/0eaj5OWi2S— UEFA EURO 2020 (@EURO2020) June 23, 2021 Það búast því flestir við sigri Hollendinga á móti Tékkum í dag. Georginio Wijnaldum og Memphis Depay hafa verið í miklum ham og áhyggjur hollenska knattspyrnusérfræðinga af þjálfaranum Frank de Boer hafa verið ástæðulausar hingað til. Hollenska liðið er að keppa á sínu fyrsta stórmóti síðan á HM 2014 en þá fóru Hollendingar alla leið í undanúrslitin. Þeir eru aftur á móti í fyrsta sinn í útsláttarkeppni Evrópumótsins síðan 2008 og hafa ekki unnið leik í útsláttarkeppni EM síðan 25. júní 2004. EM 2020 verður sýnt á Stöð 2 Sport EM 2020 sem er hluti af Sportpakkanum, Stóra pakkanum og Risapakkanum. EM 2020 er einnig hægt að kaupa stakt á lækkuðu verði frá og með 24. júní á kr. 3.990.
EM 2020 verður sýnt á Stöð 2 Sport EM 2020 sem er hluti af Sportpakkanum, Stóra pakkanum og Risapakkanum. EM 2020 er einnig hægt að kaupa stakt á lækkuðu verði frá og með 24. júní á kr. 3.990.
EM 2020 í fótbolta Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Var klár í samkeppnina við Ingvar Íslenski boltinn „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Enski boltinn Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn Fleiri fréttir Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Sjá meira